Bókatíðindi - nov. 2025, Blaðsíða 64
IB
Gömlu íslensku jólafólin
Fróðleikur og ljótar sögur
Höf: Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir
Myndh: Sunneva Guðrún Þórðardóttir
Í gamla daga voru sagðar margar ljótar sögur um
Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og jólaköttinn. Grýla
hefur t.d. búið með sex ferlegum tröllkörlum og
Leppalúði haldið framhjá kerlu sinni. Jólasveinarnir
eru mun fleiri en þrettán og stundum var sagt að
þeir fitnuðu af blótsyrðum. Flotnös og Lungnaslettir
koma ekki lengur til byggða, sem betur fer.
112 bls.
Sögusmiðjan
IB
Helförin
í nýju ljósi
Höf: Laurence Rees
Þýð: Jón Þ. Þór
Um Helförina er jafnan spurt: Hvernig í ósköpunum
gerðist þetta og hvers vegna? Fáar bækur svara
þessum spurningum með jafn mannlegum og
tæmandi hætti og þessi marglofaða bók eftir
breska sagnfræðinginn Laurence Rees.
466 bls.
Ugla
IB
Hlaðan
Þankar til framtíðar
Höf: Bergsveinn Birgisson
Bergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja
hlöðu forfeðra sinna norður á Ströndum sem
er komin að hruni. Það fær hann til þess að
hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum.
Útkoman er ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem
raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík.
271 bls.
Bjartur
SVK RAF
Horfin athygli
Hvers vegna er svona erfitt að einbeita sér – og hvað
er til ráða?
Höf: Johann Hari
Þýð: Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór
Jónsson
Börn og fullorðnir eiga æ erfiðara með einbeitingu:
að lesa, læra og fást við flókin verkefni. En hver er
ástæðan og hvað er til ráða? Hér er rýnt í þá ólíku
þætti sem ræna okkur getu til djúprar og sjálfstæðrar
hugsunar, með uggvekjandi afleiðingum. Einstaklega
áhugaverð og læsileg metsölubók um brýnt málefni.
368 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
IB
Hrossafræði
Alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta
Höf: Ingimar Sveinsson
Einstaklega aðgengilegt upplýsinga- og fræðirit
um allt sem við kemur hestum og hestamennsku.
Þetta er ómissandi bók fyrir alla þá sem stunda
hestamennsku, áhugafólk jafnt sem atvinnumenn.
334 bls.
Veröld
IB
Árbók Ferðafélags Íslands
Fuglar og fuglastaðir
Höf: Daníel Bergmann
Í árbók FÍ 2025 er ítarleg umfjöllun um nærri 100
fuglaskoðunarstaði víðsvegar á landinu. Einnig er sagt
frá fuglaskoðun sem áhugamáli, fuglaljósmyndun og
sögu hennar, þátttöku almennings í fuglavísindum
og fuglaskoðun eftir árstíðum. Í bókinni eru yfir
400 ljósmyndir af fuglum og fuglastöðum.
320 bls.
Ferðafélag Íslands
KIL
Fyrsti bjórsopinn
og fleiri smálegar lífsnautnir
Höf: Philippe Delerm
Þýð: Friðrik Rafnsson
Myndh: Jean-Philippe Delhomme
Þessi litla perla franska rithöfundarins Philippes
Delerm, fagurlega myndskreytt, sló hressilega í
gegn þegar hún kom út í Frakklandi og hefur selst
í meira en milljón eintaka þar í landi. Bókin hlaut
frönsku Grandgousier-bókmenntaverðlaunin en þau
eru veitt fyrir bækur sem lofa glaðlyndi og lífsins
lystisemdir. Sannkallaður óður til Frakklands.
124 bls.
Ugla
SVK
Gripla 36 (2025)
Alþjóðlegt tímarit Árnastofnunar
Ritstj: Margrét Eggertsdóttir og Gísli Sigurðsson
Gripla er alþjóðlegt, ritrýnt tímarit á sviði norrænna
fræða fyrri alda og kemur út í desember á hverju ári.
Tímaritið er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á
sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita-
og textafræða, bókmennta og þjóðfræða.
350 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
KIL
Grænland og fólkið sem hvarf
Höf: Valur Gunnarsson
Hvað varð af norrænu byggðinni á Grænlandi
sem hvarf með dularfullum hætti fyrir 500
árum? Hér er reynt að ráða gátuna auk þess
sem rýnt er í sögu landsins frá komu danskra
nýlenduherra, mikilla þjóðfélagsbreytinga á 20.
öld sem og umsvifum Bandaríkjanna eftir síðari
heimsstyrjöld og fram á okkar daga. Aðgengilegt
sagnfræðirit og ferðasaga í bland.
272 bls.
Salka
SVK
Gæði kennslu
Námstækifæri fyrir alla nemendur
Ritstj: Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína
Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson
Bókin er sérstaklega skrifuð með starfandi
kennara og skólastjórnendur, kennaranema
og kennsluráðgjafa í huga. Höfundar hafa
að leiðarljósi að sameina fræðileg og hagnýt
sjónarhorn á viðfangsefni sín þannig að efnið nýtist
í kennaramenntun og við starfsþróun í skólum.
306 bls.
Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort64
Fræðirit, frásagnir og handbækur