Bókatíðindi - nov. 2025, Side 67
IB
Rósir fyrir íslenska garða
Höf: Vilhjálmur Lúðvíksson
Höfundur miðlar áratugalangri reynslu sinni
og Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands af
rósarækt við íslenskar aðstæður. Þekkingunni
er miðlað með hagnýtri nálgun og skýrum
ráðleggingum um þau atriði sem ráða mestu
um árangur í ræktun rósa hér á landi.
359 bls.
Sögur útgáfa
IB
Samvinnan
- umræðurit -
Höf: Jón Sigurðsson
Samvinnuhreyfingin á Íslandi markaði djúp spor í
sögu þjóðar í meira en eina öld og var samofin
vegferð hennar úr fátækt til velmegunar. Hér segir
höfundur þessa sögu á aðgengilegan og sannfærandi
hátt með sínum vel þekkta knappa stíl.
248 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Sálfræði peninganna
Höf: Morgan Housel
Þýð: Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna
Gunnarsdóttir
Þetta er ekki bók um hvernig á að ná árangri
í fjárfestingum og sigra markaðinn, eða verða
ríkur á einni nóttu. Þetta er bók um hegðun,
viðhorf og sjálfsþekkingu, og þar af leiðandi um
hvernig við getum tekið betri og meðvitaðri
ákvarðanir. – Metsölubók um allan heim.
Sögur útgáfa
IB
Silfuröld revíunnar
Höf: Una Margrét Jónsdóttir
Silfuröld revíunnar er síðari hluti íslenskrar revíusögu.
Fyrri hlutinn, Gullöld revíunnar, kom út 2019 og
var þar fjallað um íslenskar revíur 1880–1957. Í
þessari bók verður fjallar um revíur frá tímabilinu
1957–2015, og einnig munu kabarettar, áramótaskaup
og stakir gamansöngvar koma við sögu.
487 bls.
Skrudda
IB
Minningar um Sókrates
Höf: Xenófon
Þýð: Hjalti Snær Ægisson
Eftir að heimspekingurinn Sókrates kvaddi
hið jarðneska líf reis upp hreyfing manna sem
vildu halda nafni hans á lofti. Í þeim hópi
var Xenófon, Aþeningur sem safnaði sögum,
samræðum og spakmælum síns gamla kennara.
Markmið hans var þó ekki síður að verjast og
svara málflutningi ákærenda úr réttarhöldunum
þar sem Sókrates var dæmdur til dauða.
371 bls.
Ófelía
RAF TÍM
Orð og tunga 2024
Ritstj: Ellert Þór Jóhannsson og Jóhannes B.
Sigtryggsson
Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega.
Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku og ensku,
sem lúta að máli og málfræði. Sérstök áhersla
er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði,
nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.
Tímaritið er í opnum aðgangi.
174 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
IB
Þrjú hundruð sextíu og fimm
Pabbabrandarar
Höf: Þorkell Guðmundsson
Vegleg harðspjaldaútgáfa með 365 pabbabröndurum.
Höfundurinn Þorkell samdi einn pabbabrandara
á dag árið 2021 og birti á Facebook.
Pabbabrandarar eru í eðli sínu útúrsnúningar
og slæmir brandarar sagðir á skemmtilegan hátt.
Þessa bók þurfa allir pabbar (og afar) að eiga!
128 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Reykjalundur
Endurhæfing í 80 ár
Höf: Pétur Bjarnason
Stórskemmtileg og eiguleg bók með sögum og
myndum sem ekki hafa áður birst. Auðvelt er
að grípa niður í einstaka atburði eða tímabil og
rammagreinar gera bókina einkar aðgengilega. Tilvalin
gjafabók til stuðnings SÍBS og Reykjalundi.
416 bls.
SÍBS
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 67GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Fræðirit, frásagnir og handbækur
Við erum sérfræðingar í
prentun bóka og bjóðum upp
á Svansvottaða framleiðslu
Kiljur og harðspjaldabækur
Lyngháls 1, 110 Rvk 5 600 600
Gagnheiði 17, 800 Selfoss 482 1944
Glerárgötu 28, 600 Akureyri 4 600 700
prentmetoddi.is