Bókatíðindi - nov. 2025, Side 69
IB
Yfirrétturinn á Íslandi:
Dómar og skjöl V. 1742–1746
Ritstj: Gísli Baldur Róbertsson, Jóhanna Þ.
Guðmundsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal eru
spilling embættismanna, hórdómsbrot, rógburður og
hártog. Ólétt vinnukona var flutt hreppaflutningum
yfir sýslumörk og fyrrverandi sýslumaður var
dæmdur útlægur úr héraðinu. Skjöl Yfirréttarins veita
einstaka innsýn í íslenskt samfélag á 18. öld.
738 bls.
Sögufélag og Þjóðskjalasafn Íslands
SVK
Þingvallabók
Annáll 930-1930
Höf: Jón Kristjánsson
Saga Íslendinga kemur hvergi betur fram á einum
stað en á Þingvöllum við Öxará. Hér er safnað saman
á eina bók frásögnum af helstu atburðum sem taldir
eru hafa gerst þar, flestar teknar orðrétt upp úr
gömlum ritum, einkum annálum, Íslendingasögum,
Sturlungasögu, biskupasögum og alþingisbókum.
Fjöldi mynda prýðir bókina, margar ómetanlegar.
704 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Ritröð Árnastofnunar nr. 120
Þorsteins saga Víkingssonar
Útgáfa eftir AM 556 b 4to
Umsj: Þórdís Edda Jóhannesdóttir
Þorsteins saga Víkingssonar telst til fornaldarsagna
Norðurlanda og var að öllum líkindum samin á 14.
öld. Í sögunni er greint frá ævintýrum aðalhetjanna
sem ferðast víða, afla sér fjár og frægðar og sigrast á
margvíslegum hindrunum sem á vegi þeirra verða.
87 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
IB
Ævi Jesú og orð samkvæmt guðspjöllunum
fjórum
Ritstj: Karl Sigurbjörnsson
Hefur þig langað til þess að geta lesið alla söguna
um Jesú Krist á einum stað í réttri tímaröð? Hér
fetar höfundur slóð margra guðfræðinga og hugsuða
fyrri alda og spreytir sig á því að raða textum
guðspjallanna saman í eina heilstæða frásögn.
Útkoman vekur undrun og eftirvæntingu.
198 bls.
Skálholtsútgáfan - Kirkjuhúsið
KIL
Trúðu mér
Sönn saga af játningamorðingjanum Henry Lee Lucas
Höf: Ryan Green
Þýð: Ragnar Hauksson
Trúðu mér er áhrifamikil frásögn af einu undarlegasta
og hryllilegasta glæpamáli í sögu Bandaríkjanna.
Sumarið 1983 var Henry Lee Lucas handtekinn fyrir
óleyfilega byssueign. Lögreglan grunaði hann um
aðild að hvarfi tveggja kvenna og notaði tækifærið
til að þjarma að honum. Í kjölfarið játaði hann að
hafa myrt, nauðgað og limlest hundruð kvenna.
181 bls.
Ugla
IB
UFO 101
Höf: Gunnar Dan
Við erum ekki ein! Jörðina heimsækja reglulega
gestir utan úr geimnum sem búa yfir langtum
þróaðri tækni en við mannfólkið. Þessar heimsóknir
skilja eftir sig spor. Fjöldi fólks hefur sagt frá
samskiptum við aðkomnar verur. Enn fleiri eru
til vitnis um geimverur hér á jörð en óttast að
stíga fram og segja frá reynslu sinni.
237 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Vegferð til farsældar
Sýn sjálfstæðismanns til 60 ára
Höf: Vilhjálmur Egilsson
Vilhjálmur Egilsson fjallar um þróun íslensks
samfélags undanfarna áratugi og sýn sína á nokkur
mikilvæg viðfangsefni sem framundan eru. Vilhjálmur
bendir á að íslenskt samfélag sé nú í fremstu röð
vegna margvíslegra umbóta sem gerðar voru á
tíunda áratug síðustu aldar. En hvert stefnir, hvað
má betur fara og á hvað ber að leggja áherslu?
290 bls.
Ugla
KIL
Washington DC
Höf: Jón Óskar Sólnes
Washington DC vaknar til lífsins í fjörugri og
tæpitungulausri frásögn þar sem víða er drepið
niður fæti. Höfundur fer með lesendur í ferðalag um
höfuðborg Bandaríkjanna og oft um ótroðnar slóðir.
172 bls.
Skrudda
SVK
Yfirkennarinn
Afmælisrit til heiðurs Sigurði J. Grétarssyni
Ritstj: Andri Steinþór Björnsson, Árni Kristjánsson,
Heiða María Sigurðardóttir og Urður Njarðvík
Greinarnar sem hér birtast fjalla meðal annars um læsi,
spilaf íkn, áföll, mótþróaþrjóskuröskun, taugavísindi,
núvitund og sögu sálfræðinnar – og draga upp mynd af
manni sem hefur haft djúpstæð áhrif á bæði nemendur
og fræðasvið sitt. Í bókinni er jafnframt fjallað um
hlutverk leiðbeinandans og mikilvægi kennslunnar.
342 bls.
Háskólaútgáfan
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 69GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Fræðirit, frásagnir og handbækur
Gefum
börnum
bækur