Bókatíðindi - Nov 2025, Page 71
SVK
Þingvallabók
Annáll 930-1930
Höf: Jón Kristjánsson
Saga Íslendinga kemur hvergi betur fram á einum
stað en á Þingvöllum við Öxará. Hér er safnað saman
á eina bók frásögnum af helstu atburðum sem taldir
eru hafa gerst þar, flestar teknar orðrétt upp úr
gömlum ritum, einkum annálum, Íslendingasögum,
Sturlungasögu, biskupasögum og alþingisbókum.
Fjöldi mynda prýðir bókina, margar ómetanlegar.
704 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
Sálfræði, sjálfshjálp
og andleg leiðsögn
IB
Be Kind - ekki kind
Vertu þú og farðu þína eigin leið! Byggt á
sannreyndum aðferðum að vellíðan og hamingju
Höf: Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir og Helga Nína
Þórðardóttir
Sjálfsvinnudagbók sem nýtir sannreyndar
aðferðir til að styðja ungt fólk í að finna meiri
gleði og vellíðan í daglegu lífi. Hún er full af
skemmtilegum æfingum sem auðvelda að takast á
við streitu, samanburð og samkeppni – raunveruleg
verkfæri sem virka til að efla gleði, vellíðan og
trú á að eitthvað frábært sé framundan.
240 bls.
Eirð náttúruhús
IB
Ég er ekki fullkominn!
Ég stjórna – ekki kvíðinn
Höf: Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Myndh: Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Ég hef verið á botninum vegna hamlandi kvíða og líka
upplifað tímabil þar sem ég tók miklum framförum.
Á síðustu árum hef ég verið að uppskera eftir mikla
vinnu sem ég lagði á mig. Það er von mín og trú
að þessi bók komi mörgum að gagni sem glíma við
kvíða en geti einnig hjálpað þeim sem ekki hafa
upplifað slíkt til að skilja um hvað málið snýst.
72 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Gleði Bjargar - Hamingjan er markmið,
gleðin er afstaða
Höf: Björg Þórhallsdóttir
Þýð: Herdís H. Húbner
Ég er sannfærð um að við getum valið að vera
hamingjusöm. Ég veit einnig að það krefst
fyrirhafnar. Til að finna sanna innri gleði
þarftu að vinna rækilega hreinsunarvinnu og
losa þig við allt sem rænir þig orku.
216 bls.
Bókafélagið
IB
Samvinnan
- umræðurit -
Höf: Jón Sigurðsson
Samvinnuhreyfingin á Íslandi markaði djúp spor í
sögu þjóðar í meira en eina öld og var samofin
vegferð hennar úr fátækt til velmegunar. Hér segir
höfundur þessa sögu á aðgengilegan og sannfærandi
hátt með sínum vel þekkta knappa stíl.
248 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Síðasti formaðurinn
Höf: Ásgeir Jónsson
Janúar 1951 markaði endalok hákarlaútgerðar
á Íslandi. Þá fór Bjarni Jónsson, afi höfundar,
í síðustu hákarlaleguna. Þessi bók fjallar um
mannlíf og atvinnuhætti á Ströndum á fyrstu
áratugum síðustu aldar. Dr. Ásgeir Jónsson
fjallar hér um stórmerkilega sögu forfeðra sinna
og harða lífsbaráttu þessar kynslóðar.
202 bls.
Almenna bókafélagið
KIL
Sjálfstætt fólk
Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld – Kilja
Höf: Vilhelm Vilhelmsson
Vistarbandið var ein af grunnstoðum samfélagsins
á 19. öld. Það setti mark sitt á daglegt líf alþýðu
og hefur verið líkt við ánauð. En var það í raun
svo? Voru vinnuhjú þrælar undir hæl húsbænda
sinna? Eða voru þau agalaus og óhlýðin líkt og
tíðar umkvartanir ráðamanna gáfu til kynna?
314 bls.
Sögufélag
IB
Sjávarútvegur Íslendinga 1975-2025
Höf: Sigfús Jónsson og Sveinn Agnarsson
Í þessu fyrra bindi sögu sjávarútvegs Íslendinga
síðustu 50 árin, allt frá útfærslu landhelginnar í 200
sjómílur árið 1975, er fjallað um starfsumhverfi
og stjórnsýslu sjávarútvegsins. Jafnframt er
rætt um stofnanir sjávarútvegs, hafréttarmál og
alþjóðlega samninga og kjara- og verðlagsmál.
Lykilverk um sögu og þróun sjávarútvegsins.
340 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
KIL
Skrifin hans afa
Höf: Sveinn Sveinsson
Umsj: Sigurður Sigursveinsson og Sveinn
Runólfsson
Greinasafn Sveins Sveinssonar (1875-1965)
bónda á Norður-Fossi í Mýrdal. Stórmerk
heimild um veröld sem var.
317 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 71GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa TÍM Tímarit LKO Landakort
Sagnfræði og trúarbrögð Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn