Bókatíðindi - nov. 2025, Side 73

Bókatíðindi - nov. 2025, Side 73
RAF Matreiðsla Matvælabraut 2. og 3. þrep Höf: Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman og Ægir Friðriksson Gagnvirk vefbók þar sem síðari hluta matreiðslunáms, á 2. og 3. þrepi, eru gerð skil í máli og myndum. Annars vegar er um að ræða námsefni í aðferðafræði, hráefnisfræði og kalda eldhúsinu og hins vegar í fagfræði, matseðlafræði og eftirréttum. IÐNÚ útgáfa SVK Matur og meðlæti í Air Fryer Höf: Erla Steinunn Árnadóttir Í framhaldi af Eldað í Air Fryer kemur nú bókin Matur og meðlæti í Air Fryer, sem bætir við fjölda nýrra uppskrifta. Hér er að finna fjölbreytta rétti – allt frá einföldum smáréttum og kjötréttum yfir í spennandi meðlæti sem fullkomnar kvöldmáltíðina. Bókin er fullkomin gjöf fyrir áhugafólk um Air Fryer eldun. 120 bls. Erla Steinunn Árnadóttir IB Steikarbók Óskars Allt um nautasteikur og eldun Höf: Óskar Finnsson Hér er á ferðinni löngu tímabær handbók um steikur fyrir allt áhugafólk um góða nautasteikur – jafnt byrjendur sem lengra komna. 154 bls. Edda útgáfa SVK Súrkál fyrir sælkera Höf: Dagný Hermannsdóttir Viltu læra að gera súrkál, chutney, kimchi og fleira gerjað góðgæti sem bætir auk þess meltinguna og eflir heilsuna? Hér gefur Dagný Hermannsdóttir hagnýtar leiðbeiningar um grunnaðferðir, tæki og tól, hráefni, geymslu og fjölbreytta notkun sýrðs grænmetis auk fjölda einfaldra sælkerauppskrifta. Gagnleg og girnileg bók sem er loksins fáanleg aftur. 101 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell IB Mýkt 22 sígildar prjónauppskriftir Höf: Sari Nordlund Þýð: Guðrún Hannele Henttinen Glæsileg prjónabók með 22 uppskriftum að tímalausum kvenflíkum; opnum og heilum peysum, toppum, húfum, sjölum, sokkum og handstúkum. Falleg kaðlamynstur og gataprjón einkenna hönnunina og hvarvetna er hugsað út í f ínleg smáatriði. Stærðir eru fjölbreyttar auk þess sem verkefnin í bókinni henta bæði byrjendum og lengra komnum. 223 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell SVK Útsaumsverk Þorbjargar Halldórsdóttur frá Strandarhjáleigu Höf: Eiríkur G. Guðmundsson Fjallað er um ævi, feril og verk útsaumskonunnar Þorbjargar Halldórsdóttur (1875-1979). Að loknum bústörfum settist hún 69 ára gömul að á Selfossi árið 1944. Þá hófst ferill Þorbjargar sem tekstíllistakonu og varði í 30 ár. Myndir hennar með byggingum og sögustöðum eru einstakar og má telja nýmæli í tekstíllist. Fjöldi litmynda prýða bókina. 66 bls. Eiríkur G. Guðmundsson Matreiðsla SVK Bakað í Air Fryer Höf: Erla Steinunn Árnadóttir Bakað í Air Fryer er ný bók sem beinir sjónum sínum sérstaklega að því hvernig nýta má Air Fryer potta í bakstri. Í henni má finna fjölbreytt úrval uppskrifta, allt frá heimabökuðu brauði og bollum yfir í kökur, kleinur og jafnvel vínarbrauð. Þessi bók er ómissandi fyrir alla sem vilja fá meira út úr Air Fryer pottinum sínum. 120 bls. Erla Steinunn Árnadóttir IB Létt og loftsteikt í air fryer Hollir, gómsætir og fljótlegir réttir Höf: Nathan Anthony Þýð: Nanna Rögnvaldardóttir Spennandi matreiðslubók eftir breskan metsöluhöfund með 80 girnilegum uppskriftum að loftsteiktum réttum fyrir sanna sælkera. Hentar byrjendum jafnt sem reyndum, kjötætum, grænmetisætum og grænkerum. Það er fljótlegt og hollt að elda í air fryer sem er ótvíræður kostur fyrir önnum kafið fólk og þá sem vilja fækka hitaeiningum. 192 bls. Forlagið - Vaka-Helgafell B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 5 73GOR Gormabók  HSP Harðspjalda bók  HLB Hljóðbók  IB Innbundin bók  KIL Kilja  RAF Rafbók  G Sveigjanleg kápa  TÍM Tímarit  LKO Landakort Hannyrðir Matreiðsla   Matreiðsla Ánægja. Hrífandi orðfæri, frumleg hnyttni, mögnuð spenna, ólgandi tilfinningar, dýrmætur fróðleikur, forvitnilegt sögusvið og áhugaverðar sögupersónur veita lesendum gleði.

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.