Freyja - 01.12.1904, Síða 6

Freyja - 01.12.1904, Síða 6
102. FREYJA VII. 5* fór inn í hinn milka sai, þar sem hinir konungbornu lierrar og að- alsmenn biðu hans. Hinir konungbornu herrar og aðalsmenn heilsuðu Lailei, kon- ungi sínum og hneigðu sig til jarðar fyrir honum. Að því búnu tóku þeir sæti sín að boði hans, og hinn elsti þeirra sagði: ,,Vér getum ei lengur liðið ofsa og yfirgang Assarkhadons konungs og erum þess vegna neyddir til að segja honum stríð á hendur. “ Lað vildi Lailie konungur ekki,heldur vildi hann senda menn á fund Assarkhadons og semja frið við hann ef þess væri kostur. Og er hann hafði nefnt göfga menn til þeirrar farar og sagt þeim hvað gjöra skyldi, lét hann hina konungbornu herra og aðalsmenn frá sér fara. Að morgunverki sínu loknu, sá hann Assarkhadon, sem nú var Laiiei, ríða á veiðar sér til skemmtunar, og varð veiðiför sú honum þóknanleg, því sjálfur veiddi hann tvo villigelti. Þegar heim kom, mataðist hann með vinum sínum og skemmti sér við að horfa á dansleik ambátta sinna. Nœsta dag fór hann í réttarsalinn mikla og hlustaði á bænir hinna biðjandi og dæmdi mál manna. Að því búnu fór hann á veiðar og drap í þetta sinn ljónsinnu, en náði hvolpum hennar lifandi. Þegar hann kom heim, mataðist hann að vanda með vinum sínum og skemmti sér við söng og dans. Kvöldinu evddi hann hjá eiginkonu sinni, sem hann elskaði inni- l'ega. Þannig liöu vikur og dagar þar til sendimenn hans komu að mánuöi liðnum frá Assarkhadon konungi sem einu sinni var hann sjálfur, og voru þeir þá nef og eyrna iausir. Því Assarkhadon konungur hafði látið skera þessa hluti af þeim, og sagt að þannig mundi hann einnig fara með Lailie konung, nema því að eins að hann fœrði honum guil og gripi, silfur og cyprusvið og gjörðist þjónn hans í tilbót. Þá stemmdi Lailie konungur, sem áður var Assarkhadon, sam- an hinum konungbornu, hersum og aðalsmönnum og sagði þeim orðsending Assarkhadons konungs, og spurði þá hvað þeim sýndist bezt að gjöra. Ilvöttu þeir allir þess að herja á hann þegar í stað, áður en hann herjaði á þá. Féllst Lailie konungur á það, kallaði saman hersveitir sínar og lagði sjálfur af stað með þeim. Stóð

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.