Freyja - 01.12.1904, Síða 12

Freyja - 01.12.1904, Síða 12
I24. FREYJA VII. 5. eins og hríÖ létta af húsi, þegar hann fór burtu. En hann var undur góöur við hana litlu systur mína, líklega af því hún var stúlka og grét af öllu, og hún hlakkaði ætíö til, þegar hann kom heim og mamma gjörði það líka, svo ég auðvitað lét tilfinningar mfnar liggja á milli hluta, því ég fann til þess, að það voru engar samróma tiifinninngar við mínar tilfinningar á heimilinu. Það var aðfangadagur jóla. Veðrið var blítt, lítill snjór á jörðu, sem þjappaðist saman um há daginn. Við vorum úti um daginn, og af því ég átti í brösum við drengi á mínu reki fóru þeir að kasta í okkur snjó. Eg sá strags að hér var ærinn liðs- munur, en að flýja var ógjörningur af því systir mín var svo sein að hlaupa og ég sá að allar snjókúlurnar mundu lenda á henni. Ég áleit því réttast að verjast drengilega. Við vorum í lítilli brekku þegar þeir sóktu að okkur. Ég sagði systur minni að standa á bak við mig og búa til eins margar snjókúlur eins og hún gæti en ég skyldi henda þeim. Þetta gekk nú svona nokkuð vel, ég var hæf- inn og þeir sóktu að, að neðan. En þeir voru fleiri svo ég gat ekki varast allar snjókúlurnar, og svo fór líka systir mfn að gráta, þvi bœði var henni urðið kalt á höndunum og svo höfðu sumar snjókúlurnar lent framan í hana, þegar ég hafði vikið mér til hlið- ar. Mér gramdist, og gjörði eins harða atlögu að óvinunum, eins og mér var mögulegt. En allt kom fyrir ekkertT Það óx heldur lið þeirra en fækkaði, því aðrir drengir slóust í lið með þeim. Ég var að þrotum kominn, mig var farið að kala á neglur af kulda og svo var snjórinn farinn að minnka þar sem ég stóð, Með öðrum orðum, ég var að verða skotfœralaus, og til þess að gjöra útlitið enn þá ískyggilegra fyrir mér, þá var ég búinn að fá blóðnasir, því köggull hafði komið beint á nefið á mér. Systir mín grét nú ekki lengur, hún orgaði, svo ég hlaut að gefast upp eða biðja vægðar. En rétt í þeim svip kom faðir minn fyrir húshornið og sá aðfarirn- ar. Mér kom alls ekki til hugar að biðja hann að hjálpa mér, enda þurfti þess ekki, því drengirnir þekktu hann og lögðu óðar á flótta. Svo sagði faðir minn okkur að fara heim heldur önugur og það gjörðum við. Ég var allur votur og svo var systir mín. Mannna þvoði af mér blóðið og klœddi mig úr öllu og dreif mig ofan í rúm, Ég var þreyttur og sofnaði fljótt. Hvað lengi ég svaf,

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.