Freyja - 01.12.1904, Qupperneq 32

Freyja - 01.12.1904, Qupperneq 32
228. FREYJA VII. s. Giordano Brúnós. Frá hersveitum hinna ógleymanlegu, ódauö- legu—dánu, lítur hann til vor, og hver er svo spilltur að hann geti staðist hina laðandi, sannfærandi mælsku, þessa áhrifamiklu bæn, sem skín út úr ásjónu heimspekingsins og píslarvottsins, sem vog- aði allt og lét líf sitt fyrir sannleikann. —Asjónu, á hverri að ljómar hin eilífa sól. * Athugasemd.— Þing það sem átt er við í byrjun framanrit- aðrar greinar, var þing atheista (guðsafneitenda), sem haldið var í Róm á síðastl. sumri. Þar voru samankomnir mestu íræðimenn, vísindamenn, heimspekingar og bókmennta stórmenni hins mennt- aða heims og má meðal þeirra telja hinn mikla þýzka vísindamann, Haeckel, norska skáldið og rithöfundurinn Björnstjerne Björnson, Mangasarian, ritst. Liberal Review o. fl. Giordano Brúnó var fæddur í Nola á Italíu nálœgt 1548. Hann var frægur heimspekingur, gekk í svartmunka regluna í Naples (Napolí) árið 1563, flúði föðurland sitt 1576 til að komast hjá ofsóknum katólsku kyrkjunnar, sem ofsótti hann fyrir vantrú hans á vissum trúarbragða atriðum. I Geneva dvaldi hann '77, fór til Parísar ’y9, til Lundúnaborgar '83 og dvaldi þar undir vernd frakkneska konsúlsins um nokkur ár, og reit þar sín ágœt- ustu verk. Arin 1586 og ’88. héU hann fyrirlestra við Wittenberg háskólann, einnig ferðaðist hann á því tímabili um aðrar stór- borgir á Þjóðverjalandi, Frakklandi og Svisslandi. Árið 1592 hélt hann heim til ættlands síns og var þá skömmu seinna handtekinn samkvæmt skipun Rannsóknarréttarins og brénndur fyrir vantrú, í Rómaborg, á stað þeim er Campo dei Fiori heitir,—• blómatorgi nútíðar Rómaborgar, þar sem nú stendur miyndastytta hans. Myndin af þessari myndastyttu er nú sýnd á öðrum stað í þessu númeri Freyju. Ritst.

x

Freyja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.