Freyja - 01.01.1906, Page 10
138
FREYJA
VIII. 6.
bjóst ekki viö aö í þér væri annað eins efni í sjálfstœöa góða konu
eins og raun er nú á oröin, ég er verulega stolt af þér, Cora. “
,,Kvaö ertu aðsegja, Imelda? Þú getur ekki meint aö ég hafi
breytt rétt — ég — ég. “ Hér þagnaði Cora og staröi orðlaus og
undrandi á systur sína.
„Jú, eitthvaö meina ég líkt því, litla systir mín, “ sagöi Im-
elda. ,,Með breytni þinni hefir þú sýnt hugrekki og viljaþrek. I
seinni tíð hafa augu mín opnast fyrir því hvað ástin er hverri konu,
þau hafa einnig opnast fyrir ýmsum rangindum sem konan verður
að líða frá laganna hálfu—hversu ástarþrá sérhverrar konu er að
þeirra dómi glæpur áður en hún giftist, en verður sterkasti hlekk-
urihn í ánauðarkeðju hennar eftir að hún er gift. Einstöku menn
eru svo skynsamir að þeir sjá þetta og líða næstum eins mikið fyr-
ir það eins og konurnar sjálfar —meira en þær sem ekki sjá það,
og þœr eru því miður of margar. Owen þinn er einn af þessum
mönnum, og eítir sögu þinni að dæma er ég hálf hissa áj því aö þú
skyldir ekki leggja allt í sölurnar fyrir hann.
,,Er þetta virkilega þú, Imelda? Eg var ekki að hugsaurn mig,
ég heföi trúað honum skilyrðislaust fyrir mér, hann varsvo góður
og veglyndur, en ég fór til þess að frelsar hann frá sér og inér, því
samkvæmt lögunum átti hin konan hann og heimurinn og hún
hefðu eyðilagt hann á milli sín hefði ég ekki gjört það sem ég
gjörði. “
,,0, ég skil. Ástin til hans blindaði þig fyrir eigin hagsmun-
um og svo gleymdir þú einnig því, að við skilnaðinn leið hann eins
mikið og þú. O, hvílík bygging er það þjóðfélagsfyrirkomulag,
sem byggt er á sundurkrömdum, blœðandi hjörtum vesalings fóiks-
ins!“
Cora hlustaði með athygli á systur sína sem talaði lengi og al-
varlega við hana þar til geislar vonarinnar tóku að þrenga sér gegn-
um myrkur örvœntingarinnar í hjarta hennar, þegar henni fór að
skiljast að hún væri nú ekki eins svört og fyrirlitleg eins og heim-
urinn kaliaði hana og eins og hún hafði jafnvel sjálf haldiö sig.—
Skilja í því, að ástin er ást, göfgandi og blessandi jafnvel þó eng-
nn prestur hafi blessað hana og engin kyrkja alið hana.