Freyja - 01.01.1906, Page 21

Freyja - 01.01.1906, Page 21
VIII. 6. FREYJA 14? nokkuö eítir til aö skrifa. Ég vil ekki skrifa of mikið ef ske kynni að einhverjum kynni að finnast bréf mitt of vinsamlegt. En mér finnst ég geta lesiö á milli línanna í bréfum hans aö hann standi ekki svo mjög fjarri okkur. Og ég er sannfæröur um aö hann er ágætis/lrengur svo maöur af hans tegund œtti auðveld- lega aö sjá ranglœti þaö sem konan hefir orðið fyrir á liönum tím- um og veröur enn þá fyrir, hvort sem hún veit af því eöa ekki,— Rangindin sem koma fram í því að skoöa hana ávalt sem barn Óhæfa til að vilja og hafna í ástamálum eftir eigin geöþótía, en slengja þó á þetta barn stœrri ábyrgö en nokkrum karlmanni dettur í hug aö bera—nokkur karlmaður getur boriö. Er þaö ekkióttalegt aö sjá konurnar sem ávalt eru í sífeldri lífshættu til aö byggja upp og halda viö rnannkyninu, setta svo svívirðilega lágt svo að hún verði að leggja líf sitt í hættu til þess aö gjöra þetta œfinlega samkvcemt gefnum reglum einhverra sem aldrei hafa skilið í þessu og aldrei vilja sjá þaö, en oft ó, oft gagnstætt henn- ar eigin hjartans þrá. ÞaÖ er æfinlega rangt aö leggja höft á ást- ina og hversu sem þaö er reynt og gjört brýtur hún einatt af sér höftin. Höftin fjötra ef til vill líkamann—hulstriö, en sálin flýg- ur sína leið og guö hjálpi því mannkyni sem byggt er upp gagn- stætt því helgasta, því eina sem gjörir manninn að manni, hefur hann upp yfir dýrin. Og hví skyldu menn þá reyna að fjötra.—Reynum að byggja upp þetta sem menn kalia sáí.—Ástina, að hefja hana og göfga, láta hana stjórna í stað holdsins. Og þú, Imelda mín, veizt hvernig þú átt aö leiöbeina ásthuga þínum—drengnum, mannin- um sem ekki kastaði frá sér hugsunarlaust ást þinni, af því að þú hugsaðir hvorki né gekkst á vegum fjöldans. Ég er einatt í þess- um forboönu brautum—einatt aö prédika. Nú ætla ég að hætta því og segja þér þá einu frétt sem ég hefi aö segja þér. í haust, um það leyti sem þið Harrisburgbúar búist við sleðafæri. býst ég viö að koma austur ásamt Margaret og móður hennar. Ég hlakka til að sjá þig, og kyssa þig einu sinni enn þessum sama vinar og bróöur kossi sem þú þekkir svo vel og mér finnst einhvernveginn að Norman muni ekki sjá eftir honum. Ég veit að þœr mægður eiga vinum þar að fagna—eða réttara sagt.muni vinna sér vináttu

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.