Freyja - 01.01.1906, Blaðsíða 23
VIII. 6.
FREYJA
151
heföi heyrt hann tala, jafnvel þó hún hvorki heyrSi neitt eöa sæi.
Þaö greiphana óttaieg hrœösla, en samt stóð hún upp, fœröi stól
fram á mitt gólfiö, steig upp á stólinn, kveikti á gasljósunum og
leit svo um öxl sér og sá þar mann, en þó hún byggist við því, og'
þekkti hann,varð henni svo illt við að hún hefði hnigið niður af
stólnum hefði hann ekkitekið á móti henni. Hann var eins fölur
og hún, því svo varð honum mikið um að sjá hver áhrif nærvera
hans hafði á hana. Þegar hann hafði sett hana í stólinn, sem hann
gjörði eins gætilega og móðir hefði farið með veikt barn, hopaði
hann á hæli og beið þess að hún segði eitthvað, en er ekki varð af
því, sagöi hann í lágum titrandi róm: ,,Alica!“
Hún svaraði engu en fórnaði höndum og leit til hans eins og
vildi hún biðja um vœgð.
,, Alica/‘ endurtók hann, ,,verður mér aldrei fyrirgefiö? En
hlustaðu nú á mig. Hafi nokkur maður nokkurntíma reynt að
hugsa um afstöðu sína á heimili sínu þá hefi ég reynt að gjöra það.
Ég veit að ég hefi misboðið þér og nú langar mig til að bœta úr
því að svo miklu leyti sem ég get. ‘ ‘
Alica þfýsti höndunum að brjóstinu á sér, því hjartað barðist
svo þungt og fljótt að henni fannst sem það mundi springa, varir
hennar titruðu eins og hún œtti örðugt með aö verjast gráti, og á
þrí augnabliki gleymdi Lawrence öllu sem þeim hafði borið á
milli og vafði hana að brjósti sínu og sagði:
,,Alica,. Alica! litla systir, horfðu ekki svona á mig. Þú þarft
ekkí að óttast mig héðan af. Reyndu að treysta mér eins og til
forna. það er sú eina bón sem ég œtla að biðja þig. Geturðu
treyst mér, litla systir?“ '
,,Lit!a systir, “ hljómaði í eyrum hennar. Gat hún hafa heyrt
rétt? Loksins sigraði gráturinn hana og braust út í þungum and-
köfum. Hún lofaði honu m að vefja sig að sér og lagði sjálf
hendurnar um hálsinn á honum.
,,Lawrence, Lawrence, meinar þú þetta virkilega. Þú ert
ekki að spila með mig“.
,,Já, ég meina það—hvert orð. Framvegis verður þú systir
mín, með sömu réttindum á heimili mínu eins og elskuleg systir“.