Freyja - 01.01.1906, Side 39
VIII. 6.
FREYJA
167
Konur á starfssviöi heimsins.
Eftir þá sem vita.
Nú, þegar svo mikiö er talaö um jafnrétti kvenna og afstööu
þeirra í mannfélaginu undir núverandi kringumstœöum, hvað kon-
ur noti illa þau réttindi er þœr hafa þegar oröiö aönjótandi og
hvað þœr muni gjöra þegar jafnréttistakmarkinu sé náö, er gott
fyrir alla að sjá, hvað þeir menn hafa um þetta efni aö segja sem
mest kynni hafa af því. Ég ætla þess vegna aö taka upp í Freyju
úrdrátt úr greinum um það, eftir ýmsa menn og byrja á því sem
ritst. blaðsins Delinator segir í janúar númeri blaös síns:
Þegar Napóleon kom heim frá Italíu var hann í samsæti einu
spurður aö því, hver hann áliti að væri mesta konan í heiminum.
,,Sú, “ svaraði hann stuttlega, ,,sem á flest börn, “ Þetta þótti
sérlega vel svarað af því að Napóleon sagöi það og hefir síöan af
mörgum verið álitin speki. Þess var ekki gætt aö Napóleon haföi
sérstakt brúk fyrir menn og þess vegna var sú kona honum mest
viröi sem gat flest börn. Nú er öldin önnur. Frakkar eru ekki
lengur víkingar heldur friðsamir borgarar. Þar eins og annarstað-
ar í menntaða heiminum er menningarstig þjóðanna miðaö við af-
stööu konunnar í þjóðfélaginu —miðað viö menningu hönnar.
Ein hin mesta heiðursmedalía sem hægt er að ávinna sér er hin
svo nefnda ,,Legion of Honor, “ stofnuð af Napóleon sjálfum ein-
göngu ætluð karlmönnum og var lengi mynd af honum í miðri
medalíunni. Nú er einnig þetta breytt, því nú er konum veitt
þessi medalía, og í staðin fyrir myndina af konunginum er komin
konumynd.
Flestar konur sem hugsa nokkuð alvarlega út í lífið, keppa nú
að því takmarki að verða fjárhagslega sjálfstæðar, og jafnvel efn-
að fólk álítur skyldu sína að uppala dœtur sínar þannig, að þœr
geti unnið sér brauð á sómasamlegan hátt ef til þarf að taka. I
Bandar. einum saman eru nú frá4—miljón konur sem vinna ekki
einungis fyrir daglegu brauði sinna og annara, heldur og leggja ár-
lega á banka frá 50 til 100 miljónir dollara. Síðustu skýrslur sýna,