Freyja - 01.01.1906, Page 42
170
FREYJA
VIII. 6.
£if bréfum og póstsendingum á þeim tímuin. Enskur maður vel kunn-
ugur þessum málum, segir að ekki sé gott að vita hvenær konur hafi
fyrst verið teknar í þjónustu brezku póststjórnarinnar, en þegar hann
muni fyrst ef'tir hafi kona annast pósthúsið í Shefíield á Englandi og að
jafnvel pósthúsið í Gibraltar hafi verið í konuhöndum. En hærri og á-
byrgðarfyllri embsetti segir hann að konur hafi fyrst náð eftir að mál-
þráðurinn var settur í samband við póstmáladeildina kringum áiið 1875,
en síðan hafi líka meira og meira boiið á henni þar.
Sem dsemi upp á það hvernig konur hafi stundum náð þessurn em-
bættum, hveinig þær hafi stundað þau og hversu svo hefir verið reynt
að bola þeim frá af pólitískum ástæðum segir Cortelyous eftirfylgjandi
sögu-
I bæ nokkrum sóttu tveir menn um þetta embætti n. 1. póstafgreiðsl-
una. Mennirnir voru pólitískir andstæðingar og hitinn í sókninrii varð
svo mikill að hver um sig vildi heldur að þriðji maður lilyti embættið
en að andstæðingur sinn ynni. Svo fór að þriðji maður sótti og vann,
Þessi maður var kona, menntuð og vel fær. Þegar hún tók við póst-
liúsinu sá hún að þar þurfti mikilla umbóta við og hún ásetti sérstrax
að gjöra þær. Þangað höfðu allir slæpingar bæjarins safnast svo betra
fólkið dvaldi þar eins skammt og það gat. Eftir eins úrs veru hennar
þar var þetta gjörsamlega breytt, slæpingarnir áttu þar ekki lengur
hæli og pósthúsið var orðið að andlegri gróðrarstín beztu og fullkomn-
ustu hugsana bezta fólksins og hún sjálf búin að ávinna sér traust og
virðingu meðborgara sinna. En þar kom að þingmaður nokkur þurfti
að fá embætti þetta fyrir einn af vinum sínum og fiokksbræðrum. Hann
hafði lofað fiokknum að koma þessum manni að þessu embætti ef hann
næði kossingu og áleit skyldu sína að efna þf.ð. Hann bannaði bæjar-
búurn að ntæla með henni aftur þegar tíminn var útrunninn, en þeir
gjörðu það samt, og eftir langt stríð sem kostaði andstæðinga hennar
nokkur hundruð, kannske þúsundir dala, hélt hún embættinu, „því,1’
sagði póststjórnin, ,,að hún hefir leyst verk sitt betur af hendi en allir
fyrirrennarar hennar og hefir þess vegna meðmæli bezta fólksins í bæn-
um.“
Cortelyous álítur að konan hafi unnið póstmálastjórninni ómetan-
legt gagn, og hann álítur þá atvinnugrein bæði upphefjandi @g sérlega
vel lagaða fyrir konur.
í Canada hefir einnig orðið vart við kvennfrelsishieifinguna, þó
hún hafi enn ekki náð eins föstu haldi á hugum manna eins og í Br.(Frh.