Tíminn - 06.05.1919, Side 19
TfMINN
139
Ráðherra ákveður verksvið og vald vatna-
málastjóra í reglugerð.
114. gr.
Ráðherra eða sá, er hann setur í sinn
stað, heflr eftirlit með gerð, notkun og við-
haldi vatnsvirkja og orkuveitu, og eru eig-
endur vatsvirkjanna skyldir til að láta í tje
allar þær upplýsingar, er nauðsynlegar eru
til þess að framkvæma þetta eftirlit, sem og
að leyfa eftirlitsmanni tálmunarlausa rann-
sókn virkjanna.
115. gr.
Við byggingu meiri háttar vatnsvirkja get-
ur ráðherra krafist þess, að virkiseigandi
láti verkfróðan raann, er ráðherra tekur
gildan, annast verkið.
116. gr.
Ef um vatnsvirki er að ræða, sem mann-
hætta getur stafað af eða eignatjón, ef þau
bila, getur ráðherra skipað sjerstakan eftir-
litsmann, sem -gætir þess að verkið sje vand-
lega unnið og samkvæmt hinum samþyktu
skilyrðum og frumdráttum.
Ef fyrirmælum eftirlitsmanns er eigi
hlýtt, hefur hann vald til að banna að
verkinu verði haldið áfram, þangað til
úrskurður ráðherra er fenginn um deilu-
atriðið.
117. gr.
Nú er vatnsvirki að einhverju leyti svo
illa gert, eða viðhaldi þess svo ábótavant,
eða það er að öðru leyti í því ástandi, að
ráðherra telur búna af þvi mannhættu eða
eignatjón fyrir almenning eða einstaklinga,
og skal þá ráðherra gefa skipun um, að þvi
verði þegar í stað komið í viðunandi horf
eða rifið. Svo framarlega sem eigandi
hlýðnast ekki skipuninni tafarlaust, skal
ráðherra láta endurbæta eða rífa virkið á
hans kostnað.
118. gr.
Tilkynningar þær, er um getur í 89. gr.,
skulu vera skriflegar og sendast sýslumanni
eða bæjarfógeta, sem með umsögn sinni
sendir þær áleiðis til ráðherra.
í tilkynningu skal gerð grein fyrir verkina
í öllum aðalatriðum þannig, að tekið sje
fram, hvort ræða sje um vatnsveitu, áveitu,
þurkun lands, holræsi, orkunýtingu, breyt-
ingu farvegar, slíflur, uppfyllingar eða
önnur mannvirki. Einnig hvort það snerti
fleiri jarðir eða býli, eða hagsmuni annara
en umsækjanda, hvort heldur einstakra
manna, almennings eða rikisins.
119. gr.
Nú telur ráðherra upplýsingarnar full-
nægjandi, og heimilar hann þá verkið sam-
kvæmt tilkynningunni. Að öðrum kosti
getur ráðherra krafist, að hlutaðeigandi
sendi umsókn með ítarlegri gögnum, sam-
kvæmt fyrirmælum 120. gr.
120. gr.
Nú er ráðherra send umsókn um leyfi
til byggingar í vatni, og skal þá að jafnaði
fylgja henni fullkomin lýsing á verkinu,
ásamt nauðsynlegum landmælingum, jarð-
vegsrannsóknum, uppdráttum, útreikningum
og kostnaðaráætlun.
Ef um vatnsoi kuver er að ræða, skal á
uppdráttunum sýnd lega orkuversins, stiflur
og áhrif þeirra á orkuvatnið og landið
umhverfis. Ennfremur skal skýrt frá vatns-
magnsathugunum, fallhæð og vatnsmiðlun.
Pá skal og tilgreint hve mikil vatnsorka
áætlað er að notuð verði og til hvers.
í umsókn um leyfi til eignarnáms á eign
eða rjetttindum eða til þess að leggja á
kvaðir, skulu vera upplýsingar um hagnað
þanu og tjón, er áætlað er að fyrirtækið
hafi i för með sjer, livort heldur fyrir ein-
staklinga, almenning eða rikið. Fylgja skal