Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 24

Tíminn - 06.05.1919, Blaðsíða 24
144 TÍMINN 3. gr. Nú eru itök, skógar, fossar eða önnur jarðgögn, sem skilin eru eða skilin verða frá jörðu, önnur en laxveiði og sil- ungsveiði, seld eða leigð út af fyrir sig, og á pá sá forgangsrjett til kaups eða leigu, er land á undir. 2. Lög 10. nóv. 1905 um skyldu eigenda til að láta af hendi við bæjarstjórn Akur- eyrar eignarrjelt og önnur rjettindi ijfir Glerá og landi meðfram henni. 1. .gr. Sjerhver sá er heíir eignarrjetl eða önnur rjettindi yíir Glerá eða landinu með fram henni, skal vera skyldugur til þess að láta af hendi við bæjarstjórn Akureyrar- kaupstaðar gegn fullu endurgjaldi svo mikið af rjettindum þessum eða eign, sem nauð- synlegt er til þess að framkvæma megi veiting árinnar inn að eða inn í kaupstað- inn samkvæmt því, er ákveðið verður af bæjarstjórninni. 3. - Lög 22. nóvember 1913 utn vatnsveit- ingar. 3. gr. »........Álíti úttektarmenn liinum bagalaust, að vatn sje tekið í landi hans eða veitt gegnum það, skal það heimilt gegn hæfilegri þóknun. Telji þeir iandcig- anda baga að töku vatnsins eða veitu þess, skai þó upptaka þess eða veita heimil, ef úttektarmenn telja skaða landeiganda mun minni en hag hins af vatnstökunni eða veitunni, en þeir skuiu þá meta landeig- anda fullar skaðabætnr, enda verði vatn ekki tekið annarsstaðar eða leitt með ekki meiri kostnaði en skaði landeiganda er, svo sama gagn geri..........«. Minnihlutinn leit í fyrstu svo á, sem ofangreindar tilvitnauir væru svo gild sönn- unargögn fyrir eignarrjctti landeiganda að vatni, að ekki þyrfti nánari skýringa við, ekki síst fyrir þá sök, að minnihlutinn þekkir ekkert lagaboð i íslenskri löggjöf, sem innihaldi gagnstæða raeginreglu eða nokkuð þaö, er veiki það, sem að framan er sagt um eignarrjett að vatni. Að sönnu eru til bæði frá fyrri og siðari tímum lagaboð, er fela í sjer takmarkanir á eignarrjettinum yfir vatni, en þetta er ekkert sjerkennilegt, þvi að öllum eignar- rjetti yfirleitt eru settar ýmsar skorður af löggjöf og venju, og ekki síst eignarrjetti yfir vatni. Sjálfar takmarkanirnar skýra best innihald eða kjarna eignarrjettarins, en þær verða mismunandi eftir þvi, hvers eðlis það er, sem eignarrjetturinn nær til. Að minni hlutinn ekki frá byrjun vitnaði í þau lagaboð, er innihalda takmarkanir á eignarrjetli yfir vatni, kom til af þvi, að takmarkanirnar eru allar þess eðlis, og ekki meiri en það, að engum vafa getur verið undirorpið, að þau yfirráð og þau rjettindi, sem eftir eru yfir vatninu, geta með fulium rjetti heimfærst undir eignar- rjettarhugtakið. En þar sem nú einn nefndarmanna, Bjarni' Jónsson alþingism. frá Vogi, hefir vefengt skiining þann,. er haldið hefir verið fram hjer að framan um eignarrjett yfir vatni, mun minnihiutinn í ritgerð, sem er í smíð- um, gera nánari grein fyrir afstöðu sinni í þessu atriði. Hjer verður því aðeins í stór- um dráttum drepið á helztu atriðin til stuðnings skoðun minnihlutans á eignar- rjettarspurningunni, sem fyrir þá sök cr nauðsynlegt, að minnihlutinn býst ekki við að ofannefnd ritgerð inuni verða full- gjör á þeim tíma, sem óskað er eftir frum- vörpum nefndarinnar. í sambandi við lagaboð þau, sem til- greind hafa verið, skal enn sjerstaklega minst á lög 22. nóvbr. 1907 um vatnsveitu fyrir Reykjavík, lög 22. nóvbr. 1913, um vatnsveitingar, og lögin um áveitu á FIó- ann frá 26. oktbr. 1917, sökum þess að B. J. heldur fram þeim skilningi, að með lög- um þessum sjeu landeigendur skyldaðir til

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.