Tíminn - 06.05.1919, Síða 37
TÍMINN
157
hægt er. Undanþágu um þetta getur stjórn-
arráðið veitt, ef sjerstök eða knýjandi á-
stæða er til. Einnig skal leyfishafi nota
innlendar tryggingar eftir því, sem stjórnar-
ráðið nánar tekur til.
5. Fyrir sjerleyfi eftir 5. gr. má áskilja
árlegt gjald til rikissjóðs, er eigi fari fram
úr 1.50 kr. fyrir hverja notaða lxestorku,
sem fcr fram úr 500. Sje orkan keypt eða
leigð frá orkuveri, scm leyft hefir verið
eftir 4. gr., skal gjaldið þó eigi fara i'ram
úr I krónu á hestafl. Eindagi gjaldsins er í
árslok hver; það hefir íorgangsrjelt jafut
sköltum og má taka það lögtaki.
6. Að öðru leyti skal leyfið bundið þeim.
skilyrðum, sem á hverjum tíma gilda um
iðjurekstur og ákvæðum 4. gr. 4., 7.—11.,
15.—16. og 18. lið, eftir þvi sem við á.
Leyfisbrjefið skal þinglesiö á kostnað
sjerleyfishafa.
7. gr.
Umsókn um sjerleyfi eftir lögum þessum
skulu fylgja nauðsynlegar skýrslur um alt,
er að fyrirtækinu lýtur og máli skiftir.
Stjórnarráðið getur heimtað viðbætur við
skýrslurnar, uppdrælti og önnur skýringar-
gögu.
Sæki fjelag um leyfið, skal auk þess fylgja
yfirlýsing stjórnar þess um það, hvcrir eru
fjelagar, hvert stofnfje sje, hvort* það er
fengið eða hvernig ráðgjört er að afla þess.
Einnig skal frá því skýrt, ef þegnar annara
ríkja eiga í fyrirtækinu, hve mikil þeirra
hlutdeild er. Fáist leyfið skal stjórn fyrir-
tækisins uin hver áramót og þegar stjórnar-
ráðið krefst þess, gefa samskonar skýrslu
um hag fyrirlækisius og hlutföllin milli
eigna innlendra og úllendra manna i því.
Sannist að skýrslur þessar sjeu rangar,
skal með það farið eftir 155. gr. hegningar-
laganna.
Áður en sjerleyfi veitist eftir lögum þcss-
um skal leitað álils sveitarstjórna þeirra,
er í hlut eiga.
8. gr.
Brot gegn lögum þessuin og sjerleyfi
eftir þeim varða sektum frá 5—5000 krón-
um, nema þyngri hegning liggi við að lög-
um. Sektirnar renna í rikissjóð.
9. gr.
Með mál, sem rísa af vangæslu þessara
laga, skal farið eins og almenn lögreglumál.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi................Jafn-
framt falla úr gildi ákvæði 2. gr. í lögum
nr. 55, 22. nóv. 1907 að því cr snertir rjett
til að nota fossa.