Tíminn - 06.05.1919, Qupperneq 38

Tíminn - 06.05.1919, Qupperneq 38
158 TÍMINN Atliiigasemdir við frumvarp þetta. Inngctngur. Frá fornu fari heflr á íslandi verið viður- kendur umráðarjettur landeiganda lil vatns þcss, sem á landi hans er. Takmarkanir á umráðarjetti þessum hafa verið fáar vegna staðhátlanna. Nálega allar ár eru óskip- geugar og straumliarðar, og hafa þær því aðeins haft gildi fvrir landeiganda til veiði, heimilis og búsþarfa, en almenning skift þær litlu. Á siðuslu árum liefir skift um skoðanir manna á gildi fallvatna. Framfarir þær, sem orðið hafa við að hægt er að breyta vatnsorkunni í raforku til hita, lýsingar, og sjerstaklega til iðjureksturs, hafa orðið þess valdandi, að fallvötn geta nú talist ein lielsta afllind heimsins. Kolin, sem siðustu öldina hafa verið aðalaflgjafinn og undir- staða allrar iðju og eimsiglinga, fara sífelt þverrandi, verða dýrari og ósjeð live lengi þeirra nýtur við. Ætla má því, að i fram- tíðinni verði vatnsorkan enn mikilsverðari, og ef til vill það afl, sem mestöll fram- leiðsla verður að hvila á. Hve mikils virði það er fyrir riki, að eiga yfir afllindum að ráða, má sjá af þvi, að máttur Englands er aðallega að þakka kolanámunum. Sjest best nú á tímamótum stríðs og friðar, hve mikið kapp er lagt á af stórþjóðunum, að eignast slíkar afllindir og neyta siðan þessa styrks i samkepninni við aðrar þjóðir. Hið nýja notagildi vatnsorkunnar hefir meiri þýðingu fyrir ísland heldur en flest öunur löud. Hjer verða »hvitu ko!in« afl- gjafi framtíðarinnar og velferð landsins er undir því komin hvort, hvenær og hvernig þau verði notuð. Með hagnýtingu vatns- orkuunar er hægt að gera landið óháð aíl- lindum erlendra ríkja og gerhreyta atvinnu- háttum, en hins vegar gelur orkunýtingin einnig hafl miklar hæltur í för með sjer. Vandamálið, sem biður úrlausnar er : hvernig er hœgt að hagnýta vatnsorku landsins með sem minstri hœttu fijrir pjóðfjelagið? Sú spurning liggur nálægt, hvort eigi væri heppilegast að ríkið eignaðist uú öll vatns- rjettindi, Pví er svarað á öðrum stað, að óþarfi virðist i náinni framtíð að laka eign- arnámi, nema þá einstök völn, en á annan liátt getur ríkið ekki lekið valnið frá eig- endunum. Hins vegar er augsýnileg nauðsyn, að ríkið selji þær takmarkauir á umráðarjetti yfir vatni, sem hið nýja notngildi þess úl- útheimtir vegna almenningsheillar og lög- leg eru. Takmarkanir þær, sem gera þarf, eru aö- allega í þrennskonar tilgangi: 1. Til að vernda sjálfstæði Iandsins, þjóð- erni og tungu. 2. Til að vernda almenning gegn hættu þeirri, er stafað getur af ótakmörkuð- um umráðum auöfjelaga yfir afllind-r um landsins. 3. Til að koma í veg fyrir stórkostlegar byltingar á jafnvægi alvinnuvega lands- ins. Um 1. alriði. Erlendir auðmenn leita um allan heim að auðsuppsprettum, þar sem þeir geta fengið óvenjuháan arð af ije sínu, og er vatnsorkan þá ekki síst eftirsóknar- verð og það í landi, þar sem skattar eru tiltölulega lágir á við erlendis. Geta um- ráð útlendinga yfir fallvötnum vorum haft i för með sjer afskifti erlendra rikja af vor-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.