Morgunblaðið - 03.11.1981, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Þetta var fyrsti flokkurinn sem Atli þjálfaði árið 1950. í þesu liði voru margir sem síðar urðu landskunnir
knattspyrnumenn. í fremri röð má sjá Svein Jónsson, núverandi formann KR, Ellert Schram, formann KSÍ, Heimi
Guðjónsson og Þórólf Beck, allir þessir kappar léku marga landsleiki fyrir fslands hönd. Við hlið Atla í aftari röð er
Garðar Árnason einn besti knattspyrnumaður sem fsland hefur átt. En hér fara nöfnin á eftir:
IV. flokkur 1950: Fremri röð frá vinstri: Sveinn Jónsson, Ellert Schram, Þórólfur Beck, Heimir Guðjónsson,
Magnús Ólafsson, Leifur Gíslason, Pétur Stefánsson. Aftari röð: Atli Helgason, þjálfari, Garðar Árnason, Erlendur
Erlendsson, Pétur Axel Jónsson, Haraldur Baldvinsson, Gunnlaugur Sigurgeirsson, Ingólfur Babel, Daníel Benja-
mínsson.
FYRIR rétt rúmum mánudi lauk keppnistímabili knatt-
spyrnumanna. Margir flokkar voru í eldlínunni að venju og
árangur misgódur eins og gengur og gerist. Einn af yngri
flokkum KR náði á síðasta keppnistímabili mjög góðum
árangri. Var (tað fimmti flokkur félagsins. Strákarnir í
flokknum sigruðu í öllum þremur mótunum á tímabilinu,
Reykjavíkurmóti, íslandsmóti og haustmóti. Allstaðar hafði
liðið umtalsverða yfirburði. Reykjavíkurmótið unnu þeir til
dæmis með fullu húsi stiga, skoruðu 31 mark en fengu aðeins
á sig 1.
Þá tók flokkurinn þátt í keppn-
isferð til Danmerkur síðastliðið
suniar. Þar tók liðið þátt í hrað-
móti í Asnæs og sigraði glæsilega
í mótinu. Skoraði liðið 26 mörk
gegn engu. Leiknir voru margir
leikir í þessari ferð og tapaðist að-
eins einn þeirra. Ferð drengjanna
var sérlega vel skipulögð og vel að
henni staðið. En aðalfararstjóri
var Sigurgeir Guðmannsson.
Þjálfari 5. flokks KR er Atli
Helgason. En sennilega hefur eng-
inn starfað jafn lengi við knatt-
spyrnuþjálfun yngri flokka hér á
landi en Atli. Ávallt hefur Atli
þjálfað yngstu flokka KR. Þeir eru
orðnir marfíir sem hafa stigið sín
fyrstu skref í knattspyrnuþjálfun
hjá Atla. Atli hefur þjálfað sam-
fellt í 20 ár. Atli var inntur eftir
því hvort lið það sem um er rætt
hér á undan sé óvenju gott af
yngri flokki að vera.
— Já það er óhætt að segja það.
Þessi 5. flokkur er mjög sterkur.
Ekki síst vegna þess að helmingur
drennjanna verður áfram á næsta
sumri. Ganga ekki upp. Eg man
ekki eftir jafn góðum flokki í mörg
ár, sagði Atli.
Nú hefur Atli starfað sem ungl-
ingaþjálfari í 20 ár. Hann var því
spurður álits á því á hvað bæri að
leggja mesta áherslu hjá yngstu
kynslóðinni.
— Það ber að leggja aðaláhersl-
una á tæknisviðið. Knattleikni og
mýkt. Það verður alltof fljótt of
mikið um hörku í leikjum yngri
flokkanna.
En við náum ekki upp mýkt og
knattleikni fyrr en við látum ungu
drengina æfa alveg á grasi og
leika þar líka.
Við verðum að losna alveg við
malarvellina. Það er mesta vanda-
málið að þurfa að vera á mölinni.
Verður þú aldrei þreyttur á að
þjálfa þá yngstu?
Ég hef nú lengi ætlað að hætta,
en er enn að. Það koma margir
smástrákar til mín og segja við
mig: Veistu það að þú þjálfaðir
hann pabba. Þegar þeir fara að
koma til mín og segja þú þjálfaðir
hann afa, þá er ég ákveðinn í því
að hætta þessu.
Það er gaman að starfa með
yngstu mönnunum. Þar er svo gíf-
urlega mikill áhugi á knattspyrn-
unni. Það þarf aldrei að ganga á
eftir neinum. Ánægjan er líka svo
mikil.
I hverju liggja hinir miklu yfir-
burðir 5. flokks KR í knattspyrnu?
— Þessi flokkur er með efni-
legustu knattspyrnuflokkum sem
KR hefur eignast. Það get ég full-
yrt. Hin mikla geta liðsins liggur
fyrst og fremst í því hversu jafnir
að getu strákarnir eru. Þá er það
mjög óvanalegt að í svona liði séu
svo til allir efni í afburðagóða
knattspyrnumenn. Hæfileikarnir
leyna sér ekki.
- ÞR.
• Atli Helgason unglingaþjálfari KR í knattspyrnu hefur náð afbragðs
góðum árangri með þau lið sem hann hefur þjálfað. I.jóam. i>r.
„Þú þjálfaðir hann afa“
- þegar ég fæ að heyra það er
ég hættur segir Atli Helgason
sem starfað hefur við unglingaþjálfun í 20 ár
• Hér til hliðar má sjá hinn
sterka fimmta flokk KR í
knattspyrnu. Drengirnir sigr
uðu með glæsibrag í öllum
mótum sumarsins. Sannkall-
aðir meistarar. Nöfn þeirra
fara hér á eftir.
Efri röð frá vinstri:
Sveinn Jónsson form. KR.
Atli Ilelgason, þjálfari, Sig.
(luðmundsson, Olafur Magn-
ússon, Jóhann Lapas, Heimir
(iuðjónsson, Gunnar (iísla-
son, Jón Örvar Kristinsson,
I'orsteinn Stefánsson, I>or-
móður Egilsson, Ægir Jóns-
son, (iuðjón Guðmundsson
form. Knattspd. KR.
Fremri röð:
Viðar Halldórsson, Guðjón
Guðmundsson, Hilmar
Björnsson, I>orsteinn Guð-
jónsson, fyrirliði, Jóh. Ingi
Guðmundsson, Stefán Guð-
mundsson, Steinar Haralds-
son, Hörður Felix Harðar-
son.