Morgunblaðið - 03.11.1981, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
Stjórn Húsnæðismálastofnunar:
Ræðir fjárhagsvanda
á fundi með félags-
málaráðherra í dag
STJÓKN Húsnæðismálastofnun-
ar ríkisins mun í dag ræða á
fundi hvernig leysa megi fjár-
hagsvanda stofnunarinnar, en
vegna minni skuldabréfakaupa
lífeyrissjóðanna en lánsfjáráætl-
un gerði ráð fyrir er útlit fyrir að
ekki takist að standa við loforð
um lán í næsta mánuði.
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri stofnunar-
innar tjáði Mbl. að á fundinum
yrði rætt við félagsmálaráð-
herra og kannað hvort taka
yrði lán til að leysa þennan
vanda eða hvort búast mætti
við að skuldabréfakaup ykjust.
Sagðist hann ekki svartsýnn á
að úr þessum málum greiddist,
en það kæmi í ljós eftir fund-
inn með hvaða hætti það yrði.
t
Jaröarför eiginmanns míns,
DAÐA KRISTJÁNSSONAR
frá Hólmlátri,
veröur gerö frá Fossvogskirkju miövikudaginn 4. nóvember kl.
10.30.
Guðrún Jónsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóöir,
ÓLAFÍA G. ÁRNADÓTTIR,
sem andaöist 25. október sl., veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni í
dag, þriöjudag 3. nóvember, kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlegast láti Slysavarnafélag
Islands njóta þess.
Hebba og Gunnar Zoega,
Hrefna Herbertsdóttir, Árni M. Jónsson,
Gerða Herbertsdóttir, Haraldur Kristjánsson,
Geir Herbertsson, Málfríður Guðmundsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og dótturdóttir,
RAGNHEIÐUR SKÚLADÓTTIR
læknír,
Ljósheimum 2, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. nóvember
kl. 3 e.h.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlegast bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Jón Barðason,
Skúli Björn Jónsson,
Aðalbjörg Björnsdóttir,
Margrét B. Skúladóttir,
Erla B. Skúladóttir,
Barði Már Jónsson,
Skúli Guðmundsson,
Árni Tómasson,
Margrét Ásgeirsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, tengdasonar,
bróöur og afa,
VALDIMARS ÞÓRHALLS KARLS ÞORSTEINSSONAR,
Sörlaskjóli 60,
er lézt 26. október, veröur gerö frá Fossvogskirkju miövikudaginn
4. nóv. kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er góöfúslega bent á styrktarsjóö
Kiwanis.
Sigrún Guöbjörnsdóttir,
Margrét Valdimarsdóttir, Sigurjón Yngvason,
Steinunn Valdimarsdóttir, Steingrímur Dagbjartsson,
Þorbjörg Valdimarsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson,
Unnur Valdimarsdóttír, Eyþór Benedíktsson,
Margrét Gíssurardóttir, Guðbjörn Sigurjónsson,
Stefán Þorsteinsson
og barnabörn.
Elskulegur bróöir minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐJÓN JÓNSSON
frá Hvoli, Olfusi,
Skúlaskeiði 36, Hafnarfirði,
veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi miövikudaginn 4.
nóvember kl. 2 e.h.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd systkina hins látna,
Salvör Jónsdóttir,
Guðmundur Ingi Guðjónsson, Ásthíldur Bjarnadóttir,
Ása Guöjónsdóttir, Sígurður Bjarnason,
Gottskálk Guöjónsson, Guöbjörg Valgeirsdóttir
og barnabörn.
Eldri madur varð fyrir bfl
Alvarlegt slys varð á Bústaðavegi, rétt vestan Réttarholtsvegar um sjöleytið sl. laugardagskvöld. 72ja ára gamall
maður varð fyrir bíl. Hann var strax fluttur á slysadeildina og reyndist vera fótbrotinn og viðbeinsbrotinn.
Ljósm.: Mbl. Júlíus.
Jón Ragnarsson í Regnbog-
anum stofnar myndbandaleigu
Tekur til starfa sídar í þessum mánuði
JÓN Ragnarsson, eigandi kvikmynda-
hússins Kegnbogans, hefur nú ákveðið
að stofna myndbandaleigu, sem um-
boðsaðili fyrir brezku fyrirtækin Kmi
og Kank meðal annars. Hér mun að
mestu verða um að ræða myndir, sem
sýndar hafa verið á hans vegum áður
og verða myndböndin með íslenzkum
texta. Ætlunin er að myndbandaleigan
starfi þegar í upphafi um allt land og
hefur Jón þegar auglýst eftir umboðs-
mönnum víða um land.
Jón sagði í samtali við Morgun-
blaðið að um 25 aðilar hefðu þegar
haft samband við sig og sýnt áhuga
á að annast umboð í sínum byggð-
arlögum. Sagðist hann gera ráð
fyrir að myndbandaleigan tæki til
starfa síðar í þessum mánuði — yrði
þá 50—100 titlum dreift í alla kaup-
staði þar sem umboðsaðili væri til
staðar en færri í minni byggðarlög.
Yrði síðan skipt um á hálfs mánaðar
fresti þannig að myndbandaleigan
sæi viðskiptavinum sínum stöðugt
fyrir nýjum myndböndum.
Jón sagði að flestar myndirnar
hefði hann sýnt áður og væru þær
teknar upp á spólur hjá viðkomandi
fyrirtækjum og þá með íslenzkum
texta, en auk þess væri hann með
fjölda annarra mynda sem einnig
yrðu textaðar síðar. Hann sagði að
þetta væri í fuliri samvinnu við
þessi erlendu fyrirtæki, hann væri
umboðsmaður þeirra hérlendis. Því
yrði hann að halda uppi eftirliti með
„sjónræningjum" á myndbanda-
markaðinum til að vernda hagsmuni
umboðsaðila sinna og stoppa þessa
aðila af með fógetavaldi ef því væri
að skipta. „Umboðsaðilar mínir
hafa óskað eftir þessu og munu
greiða þann kostnað sem hugsan-
lega verður af málsókn," sagði Jón.
Jón sagði að sér væri kunnugt um
að fleiri kvikmyndahús væru að
setja á stofn kvikmyndaleigur og
hygðust einnig stemma stigu við
ólöglegri myndbandaleigu á svipað-
an hátt. Þó bæri að geta þess að
margar myndbandaleigur væru ein-
ungis með löglegar myndir, en það
væru þá yfirleitt ekki myndir sem
sýndar yrðu í kvikmyndahúsum hér
á landi eða væri búið að sýna.
Málsókn á hendur
myndbandaleigum
í þessum mánuði?
ÞAÐ VKRÐl'R líklega tekin um það
ákvörðun í þessum mánuði hvort og
hvenær höfðuð verður málsókn gegn
myndhandaleigum og fleiri aðilum
sem standa hér að ólöglegri dreif-
ingu efnis á myndhöndum, sagði
Gunnar Guðmundsson, héraðs-
dómslögmaður, í samtali við Morg-
unblaðið. Það eru að sjálfsögðu um-
bjóðendur mínir, Motion Picture
Kxport Association of America, sem
hafa umboð fyrir dreifingu mynda
frá stærstu kvikmyndafyrirtækjum í
Kandaríkjunum, sem taka ákvörðun
um málsókn, en ég er aðeins ráðu-
nautur þeirra.
Ég hef að undanförnu unnið að
könnun á því í hvað miklum mæli
dreifing á myndefni frá umbjóð-
endum mínum er hérlendis á
myndböndum. Ég treysti mér hins
vegar ekki til að gefa neitt upp um
niðurstöður mínar sem stendur og
vil að sinni segja sem allra
minnst, sagði Gunnar.
Kleppsspítalinn:
Ennþá vantar 30 hjúkr-
unarfræðinga til starfa
„TIL ÞESS að laða hjúkrunarfræð-
inga til starfa að Kleppsspítalanum
höfum við boðið upp á fræðslunám-
skeið, sem er einkum ætlað þeim
hjúkrunarfræðingum, sem hafa ekki
verið á vinnumarkaðnum í einhvern
tíma en vilja gjarnan vinnu utan
heimilisins að nýju. Þátttaka hjúkr-
unarfræðinga, sem þegar starfa við
Kleppsspítalann er mjög góð á þessu
námskeiði en aftur á móti er útlit
fyrir að við fáum fáa nýja hjúkrun-
arfræðinga að stofnuninni í gegnum
námskeið, svo við stöndum í svipuð-
um sporum og áður,“ sagði Þórunn
Pálsdóttir hjúkrunarforstjóri
Kleppsspítalans. En hún var spurð
að því til hvaða ráða Klepps-
spítalinn hefði gripið eftir að starf-
andi hjúkrunarfræðingar þar sendu
stofnuninni bréf þar sem þeir létu í
Ijósi að þeir sættu sig ekki lengur
við hið mikla vinnuálag sem fylgdi
því að 30 hjúkrunarfræðinga vantar
við stofnunina.
„Ég hef einnig haldið fund með
hjúkrunarfræðingum Kleppsspítal-
ans og á þeim fundi kom fram að
meirihlutinn af þeim lausnum, sem
hjúkrunarfræðingarnir settu fram
tilheyra fremur kjarasamningum
þannig að það er ekki beint á valdi
spítalans að bæta þar úr nokkru.
I>RJÚ íslensk skip seldu erlendis í
gær, tvö í Knglandi og eitt í Þýzka-
landi. Verðið sem skipin fengu, þykir
ekki gott miðað við árstíma og er mun
lægra en fengist hefur síðustu tvær vik-
urnar.
Bylgja VE seldi 69 tonn í Hull
fyrir 454,6 þús. kr. og var meðalverð
Það vantar einfaldlega fleiri hjúkr-
unarfræðinga til starfa þannig að
eðlilegt vinnuástand skapist, en það
virðist ætla að verða mjög erfitt að
fá hjúkrunarfræðinga til starfa
vegna lélegra launa á spítalanum,"
sagði Þórunn Pálsdóttir hjúkrunar-
forstjóri.
á kiló kr. 6,59. Þá seldi Rauðinúpur
ÞH 156,3 tonn í Grimsby fyrir 1173,2
þús. kr. og varð meðalverð á kíló kr.
7,51.
Bjarni Herjólfsson ÁR seldi 140,5
tonn í Cuxhaven fyrir 828,8 þús. kr.
og var meðalverð á kíló kr. 5,86.
ísfiskur:
Verð lækkar erlendis