Morgunblaðið - 03.11.1981, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
47
Mynd þcssa tók Olafur K. Magnússon í Gamla bíói í gær en í tilefni þess að
75 ár eru liðin frá stofnun kvikmyndahússins hafa ýmsar gamlar og sjaldséð-
ar kvikmyndir verið sýndar í bíóinu að undanfórnu. Þar á meðal er Reykja-
víkurmynd sem Bíó-Petersen tók en atriði í þeirri kvikmynd sýnir flugvél á
flugi yfir Reykjavík. Myndin er tekin árið 1919 og er hér um að ræða fyrstu
flugvél sem til íslands kom og var notuð til tilrauna með farþegaflug hér á
landi. Bíó-Petersen tók fjölda mynda af flugvélinni, sem var brezk hervél af
Afro-gerð, en myndirnar brunnu allar í Kaupmannahöfn í síðari heimsstyrj-
öldinni. Filmubúturinn sem hér um ræðir fannst ekki alls fyrir löngu í Gamla
bíó og er ekki annað vitað en að þetta sé eina myndin sem til er af
Afro-vélinni á flugi yfir Reykjavík, en á myndinni er flugvélin yfir vesturgafli
Alþingishússins.
Sleppur Korchnoi
fyrir horn?
Skák
eftir Margeir Pétursson
í Meranó
LENGST af leit mjög illa út fyrir
Korchnoi í 12. einvígisskákinni og
sérfræðingarnir svokölluðu, sem
skipta tugum, ef ekki hundruðum
hér í Merano, áttu vart til orð yfir
erfiða stöðu hans. Karpov lék nú í
fyrsta sinn í einvíginu ekki kon-
ungspeði sínu fram í fyrsta leik,
heldur valdi hann drottningarbi.sk-
upspeðið að þessu sinni. Kftir að
hafa teflt byrjunina fremur óná-
kva-int, voru margir farnir að búast
við enn einu hroðalegu tapi.
Korehnoi má ekki við enn einu
slíku, því nú þegar er staða hans
afar sla'm, Karpov hefur hlotið fjóra
vinninga en áskorandinn aðeins
einn.
Tólfta skákin hófst reyndar með
afar óvenjulegu atviki. Eftir átt-
unda leik heimsmeistarans talaði
Korchnoi til hans á rússnesku,
þannig að til kasta dómaranna
varð að koma til að skakka leik-
inn. Svo virðist, sem Korchnoi
telji Karpov vísvitandi vera að
reyna að hafa truflandi áhrif á
sig. í elleftu skákinni dvaldi hann
t.d. nokkrum sinnum í herbergi
sínu meðan hann átti leik og virti
stöðuna fyrir sér þaðan. Atvik,
sem óneitanlega minnir á hegðun
Boris Spasskys í einvígi hans við
Korchnoi 1977, en þá dvaldist
Spassky löngum frá borðinu og
virti fyrir sér stöðuna á sýn-
ingarborði.
Eftir þetta fékk Karpov yfir-
burðastöðu en tókst ekki að not-
færa sér hana betur en svo að þeg-
ar skákin fór í bið, virtist
Korchnoi eiga góðar horfur á jafn-
tefli þrátt fyrir að hann væri peði
undir. „Það er hneyksli að heims-
meistaranum hafi ekki tekist að
vinna þessa stöðu,“ sagði hinn 71
árs gamli stórmeistari frá Argen-
tínu, Miguel Najdorf. „Þetta var
lélegasta skák einvígisins," bætti
Najdorf við, en hann hefur verið
hér í Merano allt frá upphafi ein-
vígisins.
llvíU: Karpov
Svart: Korchnoi
Griinfeldsvörn.
I. c4 - RfB, 2. Rc3 — d5, 3. cxd5 —
Rxd5, 4. Rf3 - Rxc3, 5. Bxc3 - g6.
Þessi staða er vel þekkt úr
enska leiknum, en með næsta leik
sínum beinir Karpov taflinu yfir í
Grúnfeldsvörn.
6. d4 — c5, 7. e3 — Bg7, 8. Bb5+ —
Rd7, 9. 0-0 — 0-0, 10. a4 — a6, 11.
Bd3 - b6.
Hér var að öllum líkindum
nákvæmara að leika 11. — e5, því
ef 12. d5 þá e4, 13. Bxe4 — Rf6.
12. Ilbl - Bb7, 13. e4 — Dc7, 14.
Hel — e6, 15. e5
Slíkar stöður eru mjög vel
þekktar á nútíma kappmótum.
Áætlun hvíts er að leika h4-h5 og
veikja þannig svörtu kóngsstöð-
una. Næsti leikur Korchnois
hindrar þessa áætlun að vissu
marki, en svartur fær í staðinn
nýjar veilur.
— h6, 16. h4 — IIfd8, 17. Bf4
í skák í blaðamannaherberginu
var Tal fljótur að leika 17. h5 —
g5,18. Rxg5 — Hxg5, 19. h6, uppá-
stunga sem á vægast sagt mikinn
rétt á sér. Slíkar mannsfórnir eru
Karpov hins vegar ekki að skapi,
sérstaklega þegar hann er þremur
vinningum vfir í einvígi.
— Rf8, 18. Be3 — Hab8, 19. De2 —
Bc6, 20. Bxa6 — cxd4, 21. cxd4 —
Bxa4, 22. Rd2 - I)c6, 23. Hecl —
Da8, 24. Bd3
— Bc6, 25. f3 - b5!
í þessari stöðu höfðu fáir hugað
Korchnoi líf, vegna hörmulega
þröngrar stöðu hans, en hann
finnur eina möguleikann: að gefa
b-peðið fyrir mótspil.
26. Rb3 — Hbc8, 27. Rc5
Líklega hefði Karpov betur leik-
ið hér 27. Hal eða 27. h5. Nú nær
Korchnoi að létta verulega á stöðu
sinni.
— Rd7, 28. Re4 — Bxe4, 29. Hxc8
— Dxc8, 30. Bxe4 — Dc4, 31. Bd3 —
I)c3, 32. Bxb5 - Rb6.
Korchnoi lætur af hendi peð, en
í staðinn nær hann hinum mikil-
væga reiti d-5 á sitt vald.
33. Dd3 - Rd5, 34. Bf2 — h5, 35.
I)xc3 - Rxc3, 36. Hb3 - Rdl, 37.
Hd3 — Rxf2, 38. Kxf2 — Hb8, 39.
Bc4 - Ilb2+, 40. Kg3 - Hb4, 41.
Hc3.
í þessari stöðu lék Korchnoi bið-
leik.
Félag skyndi-
hjálparkenn-
ara stofnað
FKLAG skyndihjálparkennara var
stofnað 4. október sl„ en frestur var
gefinn til 14. nóvember til að gerast
stofnfélagar.
Stofnfundurinn samþykkti sam-
hljóða að Jón Oddgeir Jónsson yrði
félagi númer 1 og heiðursfélagi. Lög
fyrir félagið voru samþykkt og í
stjórn voru kjörin Nína Hjaltadótt-
ur, formaður, Oddur Eiríksson, rit-
ari, Svanhvít Jóhannsdóttir, gjald-
keri, Brynjar H. Bjarnason og Thor
B. Eggertsson, meðstjórnendur.
Jón Oddgeir Jónsson
Maj Sjöwall
áritar í dag
SÆNSKA skáldkonan Maj Sjöw-
all ntun árila bækur sínar og l'er
Wahlöös í Bókabúð Máls og
mcnningar í dag, þriðjudag, frá
klukkan 16.30—18.
Maj Sjöwall og Per Wahlöö
skrifuðu tíu „skáldsögur um
glæp“ og hafa margar þeirra
verið gefnar út hérlendis, sú síð-
asta, Maður uppi á þaki, er ný-
komin út.
Merki sem marka má
mens club — BANDIDO Wrangler
^ KARNABÆR
Útsölustaðir
Karnabær Laugavegi 66,
Austurstræti 22, Glæsibæ,
Bonanza Laugavegi 20,
Fataval Keflavík,
Bakhúsið Hafnarfirði,
Cesar Akureyri,
Eplið Isafirði,
Eyjabær Vestmannaeyjum,
Utsölustaðir
Lindin Selfossi,
Hornabær Höfn Hornafirði,
Álfhóll Siglufirði,
Versl. Inga Hellissandi,
Ram Húsavík,
Oðinn Akranesi,
Austurbær Reyðarfirði,
Verslunin Skógar
Egilsstöðum,
Báran Grindavík,
Kaupfélag Rangæinga,
Hvolsvelli,
Þórshamar Stykkishólmi,
ísbjörninn Borgarnesi,
Patróna Patreksfiröi.