Morgunblaðið - 18.12.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
29
Fjölskylduhátíð sjálfstæðis-
félaganna I Reykjavík:
Jólaskemmtun I
Valhöll á morgun
SJÁLFST/EÐISFÉLÖGIN í Reykjavík munu gangast fyrir jólaskemmt-
un á morgun, sunnudag, í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og stendur skemmt-
unin frá klukkan 15.00 til 18.00 og er aðgangur ókeypis, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaftió fékk hjá Arna Sigfússyni, fram-
kvæmdastjóra Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík.
Árni sagði í samtali við Mbl.
að sjálfstæðisfélögin hefðu sam-
einast um að halda þessa
skemmtun og væri þar boðið upp
á skemmtidagskrá í þremur söl-
um hússins, þannig að allir ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi. í
fyrsta salnum verða kaffiveit-
ingar og séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir mun flytja hug-
vekju. Einnig verður þar lesið
upp úr nýjum bókum af þeim
Matthíasi Johannessen, Áslaugu
Ragnars og Guðna Kolbeinssyni.
Ennfremur fer fram samspil og
söngur í umsjá nemenda úr Tón-
listarskólanum í Garðabæ.
í öðrum sal Sjálfstæðishússins
verður barnaefni á dagskrá og
þar verður og barnagæsla. Þar
mun töframaður leika listir sín-
ar og Guðni Kolbeinsson mun
lesa úr bók sinni „Mömmustrák-
ur“. Þá verður þar sjónvarpsefni
fyrir börnin og gos og kökur
verða veitt ókeypis.
I þriðja salnum verður fjöl-
skyldusamkoma og sagði Árni að
hugmyndin væri sú að fjölskyld-
an sameinaðist þar undir lok
skemmtunarinnar, en þar verður
jólatré og jólasveinarnir Stúfur
og Hurðaskellir mæta á staðinn
ásamt félögun sínum. Þar fer
fram bögglahappdrætti og sung-
in verða jólalög og dansað verð-
ur í kringum jólatréð.
Samkoman hefst á því að Litla
lúðrasveitin, hópur 10 ára barna,
mun leika jólalög.
Skemmtunin hefst klukkan
15.00, eins og áður sagði, og
sagðist Árni Sigfússon hvetja
allt sjálfstæðisfólk til að mæta
og skemmta sér á þessari fjöl-
skylduhátíð.
Miðfjörður:
Aðyentukvöld í
Melstaðakirkju
SlaÁarhakka, MiArirAi, 17. desember.
ÞANN 15. þessa mánaðar var að-
ventukvöld í Melstaðakirkju.
Stjórnandi og kynnir var sóknar-
presturinn séra Guðni Þór Ólafs-
son.
Vitni vantar
ÁREKSTUR varð á milli tveggja
bíla á gatnamótum Kringlumýr-
arbrautar og Miklubrautar laug-
ardaginn 11. desember síðastlið-
inn. Óljóst er hvor ökumanna ók á
móti grænu ljósi. Áreksturinn
varð um klukkan 14.10. Slysarann-
sóknardeild lögreglunnar biður þá
sem kunna að hafa orðið vitni að
atburði þessum að gefa sig fram.
Hvert sæti í kirkjunni var
skipað. Góður gestur heimsótti
söfnuðinn, sem var söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar, Haukur
Guðlaugsson. Hann lék á nýtt
orgel kirkjunnar nokkur tónverk
tilheyrandi jólahaldi og einnig
lék hann undir með kirkjukórn-
um sem söng undir stjórn Ólafar
Pálsdóttur. Benedikt Guðmunds-
son flutti erindi í tilefni af aldar-
afmæli séra Jóhanns Briem, sem
þjónaði Melstaðaprestakalli í 42
ár við sérstakar vinsældir og al-
menna virðingu.
Herdís Brynjólfsdóttir flutti
kvæðið Jól eftir Stefán frá
Hvítadal. Að lokum var almenn-
ur söngur við kertaljós. Kvöldið
var hið ánægjulegasta.
Benedikt
Ný umferdarljós
á EUiðavogi
KVEIKT var á nýjum umferðarljós-
um á mótum Elliðavogs, Dalbraut-
ar og Sundagarða í gær, 17. des-
ember.
Ljós þessi eru tveggja fasa og
umferðarstýrð að hluta til, þann-
ig að málmskynjarar eru beggja
vegna í hliðargötum Elliðavogs.
Bifreiðir í hliðargötum geta
þannig „kallað" á grænt ljós, en
sé engin umferð og engin fót-
gangandi, sem ýtt hefur á hnapp
fyrir leið sína yfir Elliðavog, þá
logar stanslaust grænt ljós móti
ökumönnum í Elliðavogi. Tafir
vegna umferðarljósanna verða
því í lágmarki fyrir ökumenn um
Elliðavog.
Fótgangandi geta með því að
ýta á hnapp, „kallað" á grænt
ljós yfir Elliðavog.
Leitað eftir sameiginlegu
prófkjöri á Reykjanesi
Á FUNDI stjórnar kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi í
fyrrakvöld var ákveðið að leita eftir
þvi við aðra flokka að fram fari sam-
eiginlegt prófkjör allra flokka í kjör-
dæminu samtímis.
Að sögn Kjartans Gunnarsson-
ar. framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins, er ástæðan fyrir þess-
ari málaleitan sú að koma í veg
fyrir að menn taki þátt í prófkjöri
fleiri en eins flokks.
Kjartan sagði jafnframt að ekk-
ert hefði verið ákveðið hvenær
prófkjör færi fram í Reykjanes-
kjördæmi, og yrði það eflaust ekki
gert fyrr en í ársbyrjun næsta árs.
„Tyllidagar" í
Breiðholti í dag
„Að baki
dauðans
dyra“ í Bíóbæ
BreiðholLsbakarí hf., Veit-
ingastofan Fell (Askur), og Bóka-
búðin Embla, munu gangast fyrir
bóka- og vörukynningu í Veitinga-
húsinu Felli í Fellagörðum, undir
nafninu Tyllidagur í Breiðholti.
Til hátíðabrigða mun Albert
Guðmundsson alþingismaður og
borgarfulltrúi árita bók sína
Albert í Veitingahúsinu Felli,
laugardaginn 18. desember kl.
14—16, þá mun veitingahúsið
kynna kaffi og kakó, bakaríið
kynnir helsta jólabakkelsi sitt
og bókabúðin jólabækur og fl.
Með þessu vilja þessi fyrirtæki
kynna fjölbreytni þjónustu
sinna fyrirtækja fyrir Breið-
holtsbúum. Og einnig að nýver-
ið hafa breytingar verið fram-
kvæmdar á þessum fyrirtækj-
um. Vilja eigendur þeirra þenda
Breiðhyltingum á að gæði og
þjónusta eru í fyrirrúmi í Fella-
görðum í Breiðholti.
(Króttalilkynning)
Alþýðuflokkur á Suðurlandi:
Prófkjör um annað sætið
BÍÓBÆR hefur tekið til sýningar
kvikmyndina Beyond Deat’s Door
byggða á metsölubók eftir hjartasér-
fræðinginn Dr. Maurice Rawlings.
Myndin er sannsöguleg og lýsir
raunverulegum atburðum er gerð-
ust í Bandaríkjunum um fólk er dó
líkamsdauða en var vakið upp frá
dauðum með nýjustu tækni
læknavísindanna og upplifun
þeirra handan við dauðans dyr.
Leikstjórn er í höndum Henning
Schellerup. Aðalhlutverk: Tom
Hallick og Melinda Naud. Myndin
er með íslenzkum texta og bönnuð
innan 12 ára.
MAGNÚS H. Magnússon alþingis-
maður var sjálfkjörinn í efsta sæti
framboðslista Alþýðuflokksins í
Suðurlandskjördæmi, þar sem eng-
inn annar gaf kost á sér í fyrsta sæti
listans.
Hins vegar verða að fara fram
kosningar milli þriggja manna
sem gáfu kost á sér í annað sæti
listans, þeirra Hreins Erlendsson-
ar Selfossi, formanns Alþýðu-
sambands Suðurlands, Guðlaugs
Tryggva Karlssonar hagfræðings
og Steingríms Ingvarssonar um-
dæmisverkfræðings. Prófkjör um
annað sætið verður 22. janúar nk.
við hofum fön n
SEM FARA PER VEL
Serlega glæsileg dökk föt Ein- eða tvihneppt,
með eða án vestis, snið og litir í úrvali.
_________Efni: Flannel, mohair o.fl. -
Komdu og sjáðu „solid” föt sem fara þér vel.