Morgunblaðið - 18.12.1982, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
33
Frá Svörlu Perlunni
Ný tízkuverzlun í Reykjavík
SVARTA Perlan heitir tízkuverzlun, unarinnar eru Hanna Holton og
sem opnuð hefur verið á Skólavörðu- fleiri.
stíg 3 í Reykjavík.
Bæjarráð Kópavogs:
Mótmælir harðlega breytingum á lög-
um um tekjustofna sveitarfélaganna
„VEGNA frumvarps til breytingar á
lögum um tekjustofna sveitarfélaga
gerði bæjarráð Kópavogs svofellda
bókun á fundi sínum 14. desember
1982:
Bæjarráð mótmælir harðlega
ákvæðum 4. gr. stjórnarfrumvarps
um breytingu á lögum nr. 73/ 1980
um tekjustofna sveitarfélaga, og
telur að með þeim sé vegið að
sjálfsákvörðunarrétti sveitar-
stjórna.
Bæjarráð telur að sveitarstjórn-
armenn verði að bera þá ábyrgð,
að meta greiðslugetu íbúanna og
þarfir þeirra fyrir samneyslu
hverju sinni, innan þeirra marka,
sem gert er ráð fyrir í tekju-
stofnalögum og að afskipti ríkis-
valdsins af tekjuöflun eins tiltek-
ins árs séu með öllu óþörf og
óeðlileg.
Bæjarráð vekur á því athygli að
á fundi sínum þann 30. nóvember
sl., þ.e. áður en umrætt frumvarp
kom fram, ákvað bæjarráð að
fasteignaskattur af íbúðarhús-
næði skyldi innheimtur án álags
að þessu sinni í stað 10% álags á
síðasta ári. Þessi ákvörðun verður
til þess að fasteignaskattur af
íbúðarhúsnæði hækkar aðeins um
61,8% milli ára, þrátt fyrir 78%
hækkun fasteignamatsins sjálfs."
í frétt frá Svörtu Perlunni segir,
að verzlunin sé í sambandi við
innkaupasambandið AMC, sem
sjái um samninga og innkaup
fyrir frægar verzlanir víða um
heim. Meðal þeirra séu vöruhús
eins og t.d. Bloomingdales í New
York, Harrods í London, Magasin
í Kaupmannahöfn, Stockmans I
Helsinki, Marshall Fields í Chic-
ago og Printemps í París.
Verzlunarstjóri Svörtu Perlunn-
ar er Asta Samúelsdóttir, en
framkvæmdastjóri er Edda
Björgvinsdóttir. Eigendur verzl-
Þessar vinsælu jóla-
seríuperur eigum við
nú fyrirliggjandi í
ýmsum litum.
RAFKEKJAŒILD
ÍhIHEKLA
J Laugavegi 170-172 Sír
PRISMA
Mikið úrval allskonar tölvu- og
fjölskylduspila
Einfalt, ódýrt og
skemmtilegt
EINSTEIN er nytt braOskemmtilegt töivuspii jspiiaö af 1—4),
sem öll fjölskyldan getur tekið þátt i aö spila.
Jólagjöf
spilamannsins
Spil í fjölbreyttu úrvali, spilabakkar, sagnbox, Autobrigde
og spilaborð.
Fjölbreytt úrval hverskonar leikspila.
Tölvuleikspil, margar tegundir. Verð frá kr. 790,00.
Töfl og skákklukkur.
Kannið okkar vöruúrval og lága verö.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Frímerkjamiðstöðin,
Skólavörðustíg 21A,
sími 21170.
Frímerkjamiðstödin, Bókabúð Máls og menningar, Skákhúsið,
Skólavöróustíg 21A, s. 21170 Laugavegi 18, a. 24242 Laugavegi 46, >. 19768