Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.09.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1986 27 Hundrað ára afmæli Mið- neshrepps Sandgerði. MIÐNESINGAR minnast þess með ýmsum hætti á þessu ári að hrepp- urinn á 100 ára afmæli á árinu. En Miðneshreppur var stofnaður út úr Rosmhvalneshreppi með tilkynningu frá landshöfðingja sem birt- ist í Stjórnartíðindum hinn 3. desember 1886. Rosmhvalneshreppur náði fyrir skiptingu yfir svæðið sem nú er Miðneshreppur, Gerðahreppur, Keflavíkurbær og Ytri-Njarðvík._ Af þessu tilefni var Asgeir As- geirsson sagnfræðingur fenginn til að rita sögu hreppsins og er áætlað að bókin komi út síðar í haust. Á liðnu vori gengust síðan nem- endur og kennarar grunnskólans í Sandgerði fyrir uppsetningu á heimildar- og sögusýningu hrepps- ins í skólanum. En aðalhátíðarhöldin í tilefni af þessu aldarafmæli hófust síðan laugardaginn 30. ágúst sl. og stóðu í viku. Þau hófust með hátíðardag- skrá í íþróttamiðstöðinni og þá var einnig afhjúpað og vígt minnis- merki sjómanna, sem Steinunn Þórarinsdóttir mjmdhöggvari hefur hannað. Minnismerkið er líkan að manni sem stendur andspænis þrem mis- háum úthafsöldum, og á að minna á að Miðnesingar hafa lengst af þurft að sækja aðallífsbjörg sína beint til sjávarins. Einnig smæð og forgengileik mannsins gagnvart náttúruöflunum og listakonan nefn- ir verkið „Álög“. Á sunnudeginum var síðan íþróttadágur og þá var einnig hátíð- armessa í íþróttamiðstöðinni. í íþróttum tóku þátt þann dag um 250 einstaklingar, það var í golfí, sundi, knattspymu, hand- knattleik og körfubolta. Vikuna á eftir voru opnar 3 sýn- ingar, það var sjóminjasýning, heimilisiðnaðarsýnin og mynda- og myndlistarsýning. I sambandi við sýningarnar fluttu Gils Guðmundsson rithöfundur er- indi um sjósókn á Sjóminjasýningu, Ásgeir Ásgeirsson sagnfræðingur erindi um sögu hreppsins á mynda- sýningu og ung stúlka ættuð úr Sandgerði, Sigurbjörg Magnúsdótt- ir, sem er við söngnám, söng á heimilisiðnaðarsýningu. Aðsókn að sýningum var mjög góð og skoðaði þær margt manna. Þessari afmælisdagskrá lauk svo sl. laugardag. Þá hófst fjölskyldu- skemmtun við íþróttamiðstöðina kl. 17, þar sem böm á öllum aldri tóku þátt í leikjum og ýmiskonar skemmtan. Þar var einnig sameiginlegt borð- hald þar sem „eld“hressir félagar úr Slökkviliði Miðneshrepps aðstoð- uðu Stefán Sigurðsson veitinga- mann við að grilla 40 lambalæri og 1.000 pylsur ofan í mannskap- inn, sem virtist renna hvom tveggja ljúft niður. Þar endaði svo hátíðin með tignarlegri flugeldasýningu. Að lokum var svo stiginn dans í samkomuhúsinu til kl. 5 á sunnu- dagsmorgun með miklu fjöri. Jón Morgunblaðið/Óskar Jóhannsson Minnismerki sjómanna í Sandgerði „Álög“, hannað af Steinunni Þórarinsdóttur myndhöggvara. Rauði kross íslands: Námskeið fyrir að- standendur aldraðra og sjúkra í heimahúsum RAUÐI kross Islands gengst fyr- ir námskeiði fyrir þá sem sjá um aldraða eða sjúka ættingja sína í heimahúsum. Námskeiðið hefst þann 22. sept- ember og stendur yfir í fjóra daga, þ.e. tvo mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9-14. Á námskeiðinu verður m.a. lögð áhersla á réttar starfs- stellingar við aðhlynningu og ýmis hjálpartæki kynnt. Námskeiðið er öllum opið og námskeiðsgjald verður kr.1.000. Kennt verður í kennslusal RKÍ, Nóatúni 21, 2.hæð og í Sjúkraliða- skóla íslands við Suðurlandsbraut. Morgunbladið/Óskar Jóhannsson Skrúðganga íþróttamanna o.fl. að íþróttamiðstöðinni í Sandgerði sunnudaginn 31. ágúst. JASSPAliLETT FYRÍR AhLA! ’ r -'Framhaldsflokkar2'x og 3x í viku,. . . •' - þrlöji tíjninn frjálst 7 JASS eða BALLETT / \ : Byrjendaflokkar i x og 2x í’viku, > . . / ,v'. ■ frá sex ára aldri. ÍNÝR SKÖLIAÐ HRAUNBERGI4 . Dansarar-Íþróttafólk ' Opnir tímar á laugardögum í Bolholti. • Þrektímar - teygjutímar- jasstímar v; - Góð aðstaða fyrír bæði kynin,' ; - • • gjald kr. 250.-^-" > . - . ' . • 'r - * ■ KENNARAR SKÓLANS: JÁSS: Bara-Ánna-;-* Sígrfður- Margrét Á. - ■ Margrét Ó. - Agries - irma. KLAS$ÍS.KTÆKNI: KatfínHall. . *\ •GÉSTAKENNÁRAR j-VETUR: JACKGÖNN .- . - New York • DEIRDRE LOVEL :• New Ybrk PATRICK DUNCAN . London . Jazzballettskóli Báru Bolholt - Suðutver - Hraunberg 83730 - 83730 - 79988

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.