Morgunblaðið - 09.03.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ1988
27
íslandskynning á ferðakaupstefnunni í Mílanó:
Beint flug til Milanó
vekur mesta eftírtekt
Mílanó, frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins.
íslending-ar tóku í annað sinn beinan þátt í hinni árlegu ferðakaup-
stefnu sem haldin var í kaupstefnuhöllinni í Mílanó. Kaupstefnan var
haldin á um 3.000 fermetra svæði og skiptu þátttakendur þúsundum.
Kaupstefnan var að þessu sinni frá 24. til 28. febrúar. Sóttu nærri
200 þúsund manns kaupstefnuna. Fyrstu dagana kom fyrst og fremst
fólk í ferðaiðnaði frá öllum löndum í leit að nýjum viðskiptasambönd-
um, en síðan voru almennir sýningargestir í meirihluta. Alls voru
rúmlega 20 islenskir aðilar á kaupstefnunni frá níu fyrirtækjum.
Aukning ítalskra ferðamanna til íslands hefur verið veruleg á síðustu
árum og það sem án efa hefur vakið mesta eftirtekt ítala nú fyrir
næsta sumar er beint flug Arnarflugs milli Keflavíkur og Mílanó.
„Satt að segja kemur það mér á nýtum þetta flug til dæmis í tengsl-
óvart hversu mikinn áhuga ítalskir
ferðaaðilar og almenningur hafa
sýnt þessu flugi,“ sagði Magnús
Oddsson deildarstjóri hjá Arnarflugi
er rætt var við hann á kaupstefn-
unni. „Undanfarin ár hefur fjöldi
ítalskra ferðamanna til landsins auk-
ist mjög mikið og því þótti okkur
eðlilegt að mæta kröfum þeirra með
beinu flugi. Einnig hafa íslenskir
ferðaaðilar sýnt mikinn áhuga á
þessu flugi, sem hefst 24. júní næst-
komandi. Ferðaskrifstofur á Italíu
hafa látið útbúa glæsilega kynning-
arbæklinga um Island þar sem sér-
stök áhersla er lögð á beina flugið."
Mikil samg’öngubót
Þeir sem þekkja Ítalíu gera sér
eflaust ljóst hversu mikil samgöngu-
bót það er að hafa áætlunarflug til
Mílanó, því borgin er miðsvæðis í
Evrópu og því vel staðsett fyrir þá
sem hafa áhuga á að ferðast sjálf-
stætt um landið og jafnvel með við-
komu í Sviss, Austurríki og Frakkl-
andi. Þá er Mílanó ein merkasta
verslunar- og menningarborg Ítalíu
og ber þar fyrst að nefna Scala-
óperuhúsið og hin ótal mörgu hönn-
unarfyrirtæki. Verslanir í Mílanó eru
með þeim glæsilegustu í Evrópu,
enda er borgin ein helsta miðstöð
tískuframleiðslu í heiminum. Frá
Mílanó er stutt til Veróna, borgar-
innar þar sem Rómeó og Júlía áttu
leynilega og forboðna ástarfundi
forðum, og þar er einnig hið
skemmtilega fom-rómverska óperu-
hús Arena, þar sem frægustu óperu-
söngvarar heims syngja undir berum
himni á sumrin. Feneyjar eru einnig
skammt frá Mílanó og einnig Como-
vatnið, borgin Asti sem fræg er fyr-
ir freyðivínin sem þar eru framleidd
og Parma, sem þekktust er fyrir
parmesan-ostinn sem þaðan kemur.
Þá er auðvelt að fara frá Mílanó á
frönsku og ítölsku rivíeruna, til
dæmis til Nizza, Cannes og Món-
akó.„Þetta flug býður upp á nýja
möguleika í ferðalögum Islendinga,
auk þess að auðvelda ferðalög ítala
til landsins," segir Hildur Jónsdóttir
hjá Samvinnuferðum-Landsýn. „Við
um við rútuferð um Evrópu, en auk
þess er Mílanó mjög skemmtilegur
ákvörðunarstaður fyrir þá sem vilja
ferðast sjálfstætt."
ítalir góðir ferðamenn
„ítalski markaðurinn er sá sem
aukist hefur mest á síðasta ári og
ég reikna með að minnsta kosti 20%
aukningu í ár,“ segir Dieter Wendler
Jóhannsson forstöðumaður land-
kynningarskrifstofu íslands á meg-
inlandi Evrópu, en skrifstofan hefur
aðsetur í Frankfurt. „ítalir eru flest-
ir góðir ferðamenn. Þeir hafa efni á
að dvelja á góðum hótelum og gera
einnig miklar kröfur. Dieter sagðist
vera afskaplega hrifinn af því hvern-
ig ítalskar ferðaskrifstofur sem
bjóða upp á íslandsferðir kynntu
landið, bæklingar þeirra væru mjög
vandaðir og til sóma.
Þýðir ekki að skrifa bara
ÍSLAND, ÍSLAND
Þegar undirrituð var á kaupstefn-
unni var þar einnig skemmtilegur
svissneskur maður að nafni Beat
Iseli, forstjóri Saga-reisen, ferða-
skrifstofu sem um þessar mundir
heldur uppá 10 ára afmæli sitt. Þessi
ferðaskrifstofa hefur boðið uppá
ferðir til íslands frá því hún tók til
starfa og er bæklingur hennar um
ísland hinn vandaðasti sem ferða-
skrifstofan hefur látið gera, og er
til fyrirmyndar. „Við höfum einnig
átt samstarf við Saga film á Is-
landi, sem gert hefur kvikmyndir
um landið fyrir okkur, sem við notum
í sjónvarpsauglýsingum í vor og
sumar, því að minu mati er mikil-
vægast að sýna fólki í Sviss hina
stórbrotnu náttúrufegurð. Það þýðir
ekki að skrifa bara ÍSLAND, ÍS-
LAND, ÍSLAND með stórum stöf-
um,“ segir hann ákafur og heldur
áfram: „heldur verður fólk að sjá
sýnishom með eigin augum áður en
það ákveður að fara til landsins. Ég
hef tekið eftir því hjá mörgum við-
skiptavina minna að þeir hafa mjög
rangar hugmyndir um landið og
gera sér ekki grein fyrir hvað það er
í raun stórkostlegt!"
Hjólað í kringum landið
Hildur Jónsdóttir deildarstjóri inn-
anlandsdeildar Samvinnuferða-
Landsýnar sagði að helsta nýjungin
sem þau biðu uppá fyrir erlenda
ferðamenn í sumar væru reiðhjóla-
ferðir um hálendið. „Við byijuðum
með þessar ferðir í fyrra og sáum
að fólk var mjög ánægt. Þetta eru
sérstök fjallareiðhjól, sem fólk leigir
í ákveðinn tíma og hjólar síðan um
landið. Flestir tóku hjól á leigu í
tvær til fjórar vikur á síðasta sumri
og fólk hjólaði hreinlega í kringum
landið!" Þá sagði Hildur að Sam-
vinnuferðir-Landsýn biði upp á vetr-
arferðir fyrir útlendinga og svo-
nefnda vpakka“ sem fælu í sér ferð-
ir um lsland og Grænland. „Mér
fínnst ítalir hafa sýnt mikinn áhuga
á þjóðlífi íslendinga og menningu
okkar, en við höfum einnig dagskrá
sem felur í sér ýmiskonar skemmti-
íslandsmyndir á
sýningu í Sviss
ZUrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara
Svisslendingurinn Leonard-
Pierre Closuit sýnir 300 ljós-
myndir frá íslandi um þessar
mundir í Ljósmyndatækjasafn-
inu í Vevey í Sviss. Sverrir Hauk-
ur Gunnlaugsson, sendiherra hjá
fastanefnd íslands í Genf, var
meðal 200 gesta þegar sýningin
Pétur Jónasson leið-
beinir og leikur á Höfn
FIMMTUDAGINN 10. og föstu-
daginn 11. mars heimsækir Pétur
Jónasson gítarleikari Höfn í
Hornafirði. Ferðin er styrkt af
menntamálaráðuneytinu, en um
skipulagingu sér Tónlistarskóli
A-Skaftafellssýslu.
Pétur mun leiðbeina nemendum
í Tónlistarskólanum, halda skóla-
kynningar í skólum sýslunnar og á
fimmtudagskvöldið mun hann halda
tónleika í Hafnarkirkju. Tónleikarn-
ir heljast klukkan 20.30 og á efnis-
skránni verða verk frá ýmsum tíma-
bilum tónlistarsögunnar, jafnt
íslensk sem erlend.
Pétur lærði gítarleik hjá Eyþóri
Þorlákssyni, Manuel López Ramos
í Mexíkó og José Luis González á
Spáni. Auk þess hefur hann sótt
námskeið til margra þekktra kenn-
ara, þ. á m. Andrés Segovia. Hann
hefur haldið tónleika í mörgum
löndum og gert sjónvarps- og út-
varpsupptökur. Hann hefur hlotið
marga styrki og viðurkenningar,
Morgunblaðsins.
var opnuð um miðjan febrúar.
Hún mun standa til 17. apríl.
Closuit tók myndimar á ferðum
sínum um ísland fyrir nokkrum
árum. Hann hefur áður sýnt þær
opinberlega, til dæmis í Náttúru-
gripasafninu í Genf í fyrra, og
hyggst sýna þær í Neuchatel næsta
vetur. Hann ætlar til íslands í sum-
ar til að taka fleiri myndir. „Ég hef
aðallega tekið landslagsmyndir
hingað til, en nú langar mig til að
bæta við í safnið myndum af íbúum
landsins við leik og störf," sagði
hann.
Sýningin er opin alla eftirmið-
daga nema mánudaga. Starfsmaður
safnsins sagði að aðsókn að sýning-
unni væri heldur dræm.
Pétur Jónasson
m.a. frá Sonning-sjóðnum í Kaup-
mannahöfn.
Silfurtúngl-
ið frumsýnt
á Akranesi
í TILEFNI 10 ára afmælis Lista-
klúbbs Fjölbrautaslcóla Vestur-
lands á Akranesi frumsýnir lista-
klúbburinn leikritið Silfurtúngl-
lið eftir Halldór Kiljan Laxnes
föstudagskvöldið 11. mars.
Æfíngar á Silfurtúnglinu hafa
staðið yfir undanfama tvo mánuði
og er Stefán Sturla Siguijónsson
leikstjóri sýningarinnar. Alls taka
um 50 manns þátt í sýningunni þar
af 25 leikendur og fjögurra manna
hljómsveit.
Símamynd/Brynja Tomer
Frá ferðakaupstefnunni i Mílanó. Vinstra megin á myndinni eru
Beat Iseli og ítalskur ferðajöfur sem ræða við Hildi Jónsdóttur full-
trúa Samvinnuferða-Landsýnar. Standandi eru Magnús Oddsson frá
Arnarflugi, Ingi Sveinsson frá Ferðabæ og Pétur Björnsson frá ferða-
skrifstofunni Sögu.
legan fróðleik um íslendinga og
þjóðvenjur þeirra."
Þeir aðilar sem tóku þátt í kaup-
stefnunni á Italíu vom auk Ferða-
málaráðs, Amarflugs og Samvinnu-
ferða-Landsýnar eftirfarandi fyrir-
tæki: Hótel Saga, Flugleiðir, Ferða-
skrifstofa ríkisins, Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur, ferðaskrifstofan Saga,
Ferðabær og ferðaskrifstofan Útsýn.
Halldór Bjamason, deildarstjóri
innanlandsdeildar Flugleiða, sagði í
samtali við Morgunblaðið að Ítalíu-
markaðurinn stefndi upp á við. „Við
vonumst til að aukin kynning á
landinu eigi eftir að skila verulegri
aukningu á ítölskum ferðamönnum
til landsins. Þeir ítalir sem koma til
íslands em yfirleitt vel stæðir fjár-
hagslega og em því eftirsóknarverð-
ir ferðamenn. Aðalumboðsaðili okk-
ar á Ítalíu er ferðaskrifstofan Hot-
ur, sem hefur kynnt íslandsferðir
vel á undanfömum ámm. Þá hafa
margir Italir dvalið á íslandi í stutt-
an tíma á leið frá Lúxemborg til
Bandaríkjanna, en Atlantshafsflug
okkar er mjög þekkt í Evrópu. Ég
tel að margir þeirra ferðamanna sem
nú velja ísland sem ákvörðunarstað
hafí fyrst kynnst landinu í gegnum
þessi flug. Varðandi ferðir milli ít-
alíu og íslands höfum við um árabil
átt samstarf við SAS og Alitalia, og
flogið þannig til Italíu í gegnum
Kaupmannahöfn eða London."
Fjallaferðir og útívist
Ingi Sveinsson var fulltrúi yngstu
ferðaskrifstofunnar sem tók þátt í
kaupstefnunni í Mílanó. Hann var
þar fyrir hönd Ferðabæjar, sem
skipuleggur ferðir á Islandi og ferð-
ir Islendinga til útlanda. „Þar sem
skrifstofan opnaði síðasta vor skipu-
lögðum við fyrst og fremst dags-
ferðir síðasta sumar. Nú höfum við
bætt við lengri ferðum um landið,
til dæmis sérstökum fjallaferðum
þar sem áhersla er lögð útivist, en
meginhluti viðskiptavina okkar er
ungt fólk. Þá höfum við samvinnu
við breska ferðaskrifstofu um ferðir
tij útlanda og eru möguleikarnir á
utanlandsferðum því ótal margir.
Pétur Björnsson framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar Sögu var
í Mílanó á kaupstefnunni og var
hann fyrst spurður álits á aukningu
ítalskra ferðamanna til Islands.
„Þessu beina flugi til Ítalíu má líkja
við hraðbraut milli landanna, því það
er óneitanlega þægilegra að fara á
milli nú þegar ekki þarf að skipta
um flugvélar eins og áður. Enda
höfum við í hyggju að nýta þetta
flug einnig fyrir Islendinga á leið til
Italíu. Mílanó er ríkasta borg Italíu
og þar býr margt fólk sem ferðast
hefur um allan heim, en á eftir að
kynnast Islandi. Með beinu flugi er
auðveldara að ná athygli ítalskra
ferðamanna, en ég veit að ferðaaðil-
ar á Italíu eru mjög hrifnir af landinu
og áhuginn á íslandi eykst stöðugt.
Við komum til með að bjóða upp á
þrenns konar ferðir í tengslum við
áætlunarflugið til Mílaó. í fyrsta
Iagi skipulagðar hópferðir á strönd-
ina Lido di Josola sem er nálægt
Feneyjum og er önnur stærsta bað-
strönd Ítalíu á eftir Rimini. Þá erum
við með ferðir sem við nefnum Villa
Italia og fela í sér flug, bíl og íbúð
á mörgum ólíkum stöðum á Italíu,
aðallega þó Forte dei Marmi sem er
á Vesturströndinni skammt frá Pisa.
Ferðamöguleikamir á Ítalíu eru svo
ótal margir að ekkert annað land í
veröldinni hefur upp á svo margt
að bjóða. Við verðum einnig með
ferðir til Garda-vatnsins á Italíu þar
sem boðið er upp á flug, bíl og íbúð.
Þessar ferðir höfða fyrst og fremst
til fólks sem treystir sér til að ferð-
ast sjálfstætt og er vant að ferðast
í útlöndum," sagði Pétur Bjömsson
að endingu.
\ / wMa islenskar getraunir
\ ■■■ íþróttamiöstööinniv/Sigtún -104 Reykjavik- Island ■ Sími84590
GETRAUNAVIIMNINGAR!
27. leikvika - 5. mars
1988
Vinningsröð: 1 XX-1 22-2X1 - X 1 X
1. vinningur kr. 641.904.48,- flyst yfir á 28. leikviku þar sem
engin röð kom fram með 12 rétta.
2. vinnlngur 11 róttir, kr. 91.700.00,-
5186 47131 127315
Kœrufrestur er til mánudagsino 28. mars 1988 kl. 12.00 á hádegi.