Morgunblaðið - 09.03.1988, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
31
36. ÞING NORÐURLANDARÁÐS í ÓSLO
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
Hvetur til norrænnar
fríverslunar með fisk
Osló, frá Steingrími Sigurgeirssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanríkisráðherra sagði í ræðu
sinni á Norðurlandaráðsþinginu
I gær að mikilvægt væri að Norð-
urlöndin kæmu sem fyrst á frí-
verslun sín á milli og lagði sér-
staka áherslu á að komið yrði á
fríverslun með fisk. Páll Péturs-
son sakaði Svía um að koma í
veg- fyrir fríverslun með fisk inn-
an EFTA og sagði afstöðu þeirra
í þessum efnum ekki vera í anda
norrænnar samvinnu.
Utanríkisráðherra sagði að ný
hertækni, ekki síst kjamorkan,
hefði aukið mikilvægi Norður-Atl-
antshafsins og hernaðarlegt mikil-
vægi landanna þar í kring. Við
værum ekki lengur í útjaðri hugsan-
legs átakasvæðis heldur í miðju
þess. í ljósi þessara breytinga væri
mikilvægt að Norðurlöndin stæðu
saman. Hvert land fyrir sig hefði
líka þá skyldu að reyna að hafa
þurfa að ákveða hvort við vildum
auka tengsl okkar við Vestur-
Evrópu eða Bandaríkin. „Ég held
að ég tali fyrir hönd flestra Islend-
inga þegar ég segi að við myndum
frekar velja fyrri kostinn," sagði
Steingrímur. Hann tók þó fram að
ríkisstjómin teldi ekki ekki koma
til greina að íslendingar gerðust
aðilar að framtíðar „Bandaríkjum
Evrópu". íbúafjöldi og sérkenni
íslenskrar menningar, lifnaðarhátta
og efnahagslífs kæmu í veg fyrir
það. Nánari samvinna væri hins
vegar mjög mikilvæg fyrir okkur
og þá sér í lagi fríverslun. Hann
sagðist vera sammála Ingvari
Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, sem lagði í ræðu sinni mikla
áherslu á mikilvægi norræns heima-
markaðar. Það gæti verið mikil-
vægt skref í áttina að auknu sam-
starfi við þjóðir Vestur-Evrópu. Það
þyrfti þó að taka tillit til hagsmuna
allra landa í þessu sambandi. Nor-
rænn heimamarkaður -yrði frekar
þýðingarlítill fyrir íslendinga ef
ekki væri fríverslun með físk. Það
væri það sem við legðum áherslu á.
Steingrímur hvatti til þess að
Norðurlöndin myndu sem fyrst
sameinast í einn markað með
fríverslun á öllum sviðum nema
hvað varðar hefðbundnar land-
búnaðarafurðir.
Páll Pétursson vék einnig að
fríverslun með físk í ræðu sinni á
Norðurlandaráðsþinginu. Páll sagði
að ekki væri hægt að samþykkja
að Svíar stöðvuðu fríverslun á þessu
sviði innan EFTA. Afstaða Svíþjóð-
ar væri ekki í anda norrænnar sam-
vinnu og ekki í samræmi við þau
viðhorf sem forsætisráðherra
Svíþjóðar hefði sett fram í ræðu
sinni.
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra vék í ræðu sinni að Evrópu-
bandalaginu. Hann sagði eðlilegt
að Norðurlöndin hefðu nokkuð sam-
ráð um að vemda sameiginlega
hagsmuni, þótt hvert ríki yrði auð-
vitað að gæta sinna sérhagsmuna.
„Aðild íslands að Evrópubandalag-
inu er ekki á dagskrá," sagði for-
sætisráðherra. „ísland mun ekki og
getur ekki gefíð þumlung eftir af
fiskveiðiréttindum sínum. ísland
getur heldur ekki án takmarkana
gerst aðili að sameiginlegum vinnu-
markaði Evrópu."
jákvæð áhrif á gang heimsmálanna.
Ef við stæðum saman yrðu þó áhrif
Norðurlandanna meiri en hvers
lands fyrir sig.
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra
Steingrímur sagði að vegna
þeirra miklu breytinga sem nú ættu
sér stað í heiminum stæðum við
íslendingar frammi fyrir því að
Thor Vilhjálmsson á blaðamannafundi í Ósló:
Verðlatin sem þessi geta
verið mjög* gagnleg
THOR Vilhjálmssyni voru í gær afhent Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs i Tónlistarhöllinni í Ósló. Hann er þriðji íslendingurinn sem
hlýtur þessi verðlaun, en áður hafa hlotið þennan heiður þeir Ólafur
Jóhann Sigurðsson árið 1976 og Snorri Hjartarson árið 1981.
„Verðlaun sem þessi geta verið
mjög gagnleg," sagði Thor í samtali
við Morgunblaðið. „Þáu hjálpa manni
að ná til fleiri lesenda."
Per Kleppe, framkvæmdastjóri EFTA:
Markvisst unnið að að-
lögun að ínmi markaði EB
ÁHRIF hins samræmda innri
markaðar Evrópubandalagsins,
sem stefnt er að árið 1992, á
EFTA-ríkin fara eftir því hversu
langt sú samræmingarvinna sem
nú á sér stað milli bandalaganna,
verður komin 1992, sagði Per
Kleppe, framkvæmdastjóri EFTA
í samtali við Morgunblaðið. Unnið
væri að því að samræma staðla og
annað þess háttar en einnig sagði
Kleppe að líklega yrði nauðsy nlegt
fyrir EFTA-ríkin að koma á meira
frelsi í fjármagnsviðskiptum.
„Ég tel ekki líklegt að Norður-
iöndin muni gerast aðilar að Evrópu-
bandalaginu á næstunni," sagði Per
Kleppe, „en það er ómögulegt að
segja til um hvað á eftir að gerast
þegar litið er lengra fram í tímann."
Hann sagðist telja að sú opinskáa
umræða, sem hefði farið fram á Norð-
urlandaþinginu um aðlögun að Evr-
ópubandalaginu væri af hinu góða.
Norðurlöndin væru í æ ríkari mæli
að dragast inn í samstarf við Evrópu
og við þyrftum að ræða málin út frá
fyrri staðreynd. Kleppe taldi vissa
hættu á því að menn myndu láta sér
nægja að aðlagast EB og lagði
áherslu á að norrænt samstarf gæti
stuðlað að því að hjálpa Evrópu að
finna lausnir á þeim vandamálum sem
menn væru að glíma við þar. Sem
dæmi nefndi hann það samstarf sem
nýverið hófst á milli EB og EFTA á
sviði umhverfísmála. Við þyrftum að
komast að því hvemig best væri að
koma umræðunni um þessi mál á
Norðurlöndum inn í þessa samvinnu.
Við gætum jafnvel verið frumkvöðlar
á 'ymsum sviðum þar sem við værum
komin lengra en Evrópubandalags-
löndin. Kleppe sagði það vera mikil-
vægt aó samræma þá umræðu sem
nú færi fram á mismunandi vett-
vangi. Okkar hlutverk væri að koma
norrænu lausnunum á framfæri.
Þegar Kleppe var spurður hvaða
áhrif störf EB um innri markað aðild-
arríkjanna árið 1992 myndu hafa á
EFTA-löndin, sagði hann að nú færi
fram samvinna á ymsum sviðum sem
hefði það að markmiði að auðvelda
viðskipti á milli EB og EFTA í fram-
Per Kleppe
tíðinni. Markmiðið væri fríverslun í
Vestur-Evrópu með vörur og þjón-
ustu. Það myndi þó taka verulegan
tíma að ná því markmiði. Unnið væri
að því að samræma staðla, og taka
saman hvar ríkisstyrkir og niður-
greiðslur væru til staðar með það að
markmiði að draga úr þeim í framtið-
inni. Kleppe sagði það líka óhjá-
kvæmilegt að ræða um fijálsari fjár-
magnsmarkað.
I stuttu máli væri verið að vinna
að því að fínna lausnir á þeim sviðum
þar sem hætta væri á því að við yrð-
um útundan þegar innri markaðurinn
yrði að veruleika árið 1992. Áhrif
atburðanna 1992 færu eftir því
hversu langt við hefðum náð þegar
þar að kæmi. Ekki væri rætt um
neinn allsheijarsamning við banda-
lagið heldur reynt að taka eitt skref
í einu og fínna lausn á hveiju máli
fyrir sig.
Reuter
Breskur sérfræðingur við sprengjuleit á Gíbraltar i gær.
Thor Vilhjálmsson hélt í gær blaða-
mannafund þar sem hann svaraði
spumingum um ritverk sín, ffamtíð-
aráform o.fl. Hann sagðist vera farinn
að íhuga nýja skáldsögu en vildi ekki
segja um hvað hún ætti að fjalla,
hann vissi það varla sjálfur enn. Einn-
ig væri hann að fara að semja óperu-
texta er byggðist á skáldsögu Gunn-
ars Gunnarssonar, Vikivaki. Tónlistin
verður samin af Atla Heimi Sveins-
syni.
Thor sagði að mönnum þætti það
mjög merkilegt hvað við íslendingar
keyptum mikið af bókum og spyrðu
hvort við læsum þær allar. Hann sagð-
ist svara því þannig að jafnvel þær
sem ekki væm auðlesnar væm lesnar
og vitnaði til orða þýska skáldsins
Hans Magnus Erzenbergers á skálda-
stefnu í Bandaríkjunum í fyrra, að
það væri sami fyöldi sem læsi alvarleg-
ar bókmenntir í hvaða landi sem er,
nefnilega 2.455 manns.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs:
Þorgerður Ingólfsdóttir
kynnti verðlaunahafann
Þorgerður Ingólfsdóttir, fulltrúi
íslands í þeirri nefnd er úthlutar
tónlistarverðlaunum Norður-
landaráðs, flutti ræðu fyrir hönd
nefndarinnar, þegar finnska tón-
skáldið Magnus Lindberg fékk
verðlaunin i gær. Elsi Hötemáki-
Olander tók við verðlaununum
fyrir hönd tónskáldsins.
í ræðu sinni minnti Þorgerður á
þau orð Konfúsíusar, að sá sem
vildi vita hvert þjóðfélagið væri að
þróast ætti að hlusta á samtímatón-
listina. f þeim fælist ástæðan fyrir
því að norrænir stjómmálamenn
ættu ekki aðeins að heiðra heldur
einnig að hlusta á samtimalista-
menn sína. Lýsti hún sfðan ferli
verðlaunahafans sem er ekki enn
orðin þrítugur og hefur búið í París
sfðan 1981. Að baki verðlauna-
verksins, sem heitir Kraftur, lægi
gífurleg vinna. Það hefði tekið tvö
ár að skrifa það en helmingur
tímans hefði farið í að semja tölvu-
forritið, sem sfðan mótaði tónverk-
ið.
IRA-menn felldir á Gíbraltar:
Thatcher hvött til að
fyrirskipa rannsókn
London, Reuter.
RÍKISSTJÓRN Margaret Thatch-
er, forsætisráðherra Bretlands,
hefur verið hvött til að láta fara
fram opinbera rannsókn á tildrög-
um þess að þrír óvopnaðir liðs-
menn írska lýðveldishersins (IRA)
voru skotnir til bana á Gíbraltar
á sunnudag. Spænsk dagblöð hafa
fordæmt verknaðinn en Sir Geof-
frey Howe, utanrikisráðherra
Bretlands, fullyrðir að IRA-
mennimir hafi haft í hyggju að
framkvæma hryðjuverk.
Yfírvöld á írlandi hafa gagnrýnt
bresku hermennina fyrir fljótræði og
segja að nærtækara hefði verið að
handtaka hryðjuverkamennina.
David Owen, leiðtogi breskra jafnað-
armanna, sagði f gær að rétt væri
að Iáta fara fram opinbera rannsókn
á málinu og bætti við að ótækt væri
að ákveðnir menn hefðu „leyfí til
manndrápa".
Óeirðir brutust út í Belfast á Norð-
ur-írlandi er fréttimar bárust og leið-
togar stjómarandstæðinga tóku und-
ir fullyrðingar talsmanna frska lýð-
veldishersins þess efnis að fólkið
hefði verið tekið af lífi.
Spænsk dagblöð fordæmdu verkn-
aðinn í gær og sagði dagblaðið El
País að þetta framferði bresku her-
mannanna stangaðist bæði á við lög
og siðaboð mannlegs samfélags.
Grunur um hryðjuverk gæti ekki
réttlætt slíkan verknað. Dagblaðið
Diario 16 sagði greinilegt að stjórn
Thatcher hefði þá stefnu „að skjóta
fyrst og spyija síðan spuminga".