Morgunblaðið - 09.03.1988, Síða 47
Hann lagði einnig fram tillögur að
lögum. Niðurstaða fundarins var
að kjósa nefnd til þess að athuga
tillögumar að lögunum, boða til
stofnfundar og fá væntanleg stofn-
félög til þess að kjósa fulltrúa og
veita þeim umboð til að standa að
stofnun sambandsins. Stofnfundur-
inn fór svo fram 28. janúar. Mættu
fulltrúar frá 7 félögum og stjórnir
5 félaga í Reykjavík og á Akureyri
óskuðu aðildar. Kosin var stjórn.
Stungið var upp á Siguijóni að taka
sæti í stjóminni, en hann baðst
undan vegna væntanlegrar dvalar
sinnar erlendis, til þess að búa sig
undir keppni í grísk-rómversku
fangi í Ólympíuleikunum í Stokk-
hólmi þá um sumarið.
Skömmu eftir fundinn fór Sigur-
jón úr landi áleiðis til Kaupmanna-
hafnar. Vegna íslaga á dönsku
sundunum kom Siguijón á skautum
inn til Kaupmannahafnar. Danskir
fangbragðamenn tóku Siguijóni
vel, létu hann æfa og keppa með
sér. Danir stóðu framarlega í fang-
brögðum. Þeir töldu ávinning að fá
Siguijón til viðfangs. Siguijón vann
ytra að væntanlegri þátttöku ís-
lands í leikunum og haifði um hana
beint samband við undirbúnings-
nefnd Svía. íslendingar i Kaup-
mannahöfn vildu standa við bakið
á Siguijóni og til þess að keppni í
glímu fari frekar fram inni í leikun-
um sjálfum, söfnuðu þeir fé til að
láta smíða vandaðan bikar fyrir
glímumennina að keppa um. Þetta
tókst. Hallgrímur vann bikarinn en
Siguijón gekk næstur honum. Þá
fengu Siguijón og þrír aðrir að sýna
fulltrúum Alþjóða Ólympíunefndar-
innar glímuna. Meðal fulltrúanna
var Pierre de Coubertin, höfundur
leikanna. Jón Halldórsson keppandi
okkar í 100 m hlaupi féll út úr
keppninni í 8. riðli.
Þau loforð voru svikin, sem Sig-
uijón hafði fengið um sjálfstæði
flokksins við inngöngu á leikvang-
inn við setningu leikanna og skrán-
ingu nafns islands aftan við nöfn
íslensku keppendanna. Flokkurinn
skyldi ganga í miðjum danska
flokknum og við nöfnin stóð Dan-
mörk (ísland). Flokkurinn gekk
ekki inn við setningu en er þeir
gengu inn til þess að heyja kapp-
glímuna, báru þeir merkispjald þar
sem á stóð ísland, gengu snúðugt,
knálegir í fölgulum búningum. Þeg-
ar keppendur í fangbrögðum voru
boðaðar var dregin á stöng veifa
með skammstafað heiti þjóðar og
númer, t.d. var einkenni Siguijóns
Dan. 1. Hvert sinn er Siguijón sá
merkið, fylltist hann reiði. Á bijósti
bar hann fálkamerkið, sem þá var
skjaldarmerki íslands.
Miðþyngdarflokkur B í grísk-
rómversku fangi, sem Siguijón Pét-
ursson keppti í voru 50 keppendur
skráðir. Var þeim raðað í 5 riðla.
Sá er tapaði tveimur viðureignum
var úr leik. Hver lota 30 mín. Hvíld
1 mín. Samkvæmt frásögn félaga
Siguijóns í blaðinu Þrótti 1918 er
teikningin tii hliðar gerð:
Siguijón og O. Wiklund komust
í undanúrslit með öðrum átta.
Keppendur í undanúrslitum urðu
níu. O. Wiklund hætti, því að hann
var þrekaður eftir viðfangið við Sig-
uijón. í undanúrslitum var hver úr
leik, sem tapaði viðureign. Siguijón
fékk Bela Varga (Ungvl.) til við-
fangs. Sá var meðal þekktustu
fangbragðakappa Evrópu. Fyrir
honum tapaði Siguijón eftir fræki-
lega framgöngu. Bela Varga hlaut
bronsverðlaun. Frammistaða Sigur-
jóns var frábær og vakti athygli.
Siguijón varð í 5.-9. sæti. Birtust
greinar um fræknleika Siguijóns í
sænskum blöðum og gátu þess að
þeirra maður, Anders Ahlgren,
mætti vara sig á honum.
Á leiðinni heim var flokknum
boðið að taka þátt í móti í Malmö.
Glímd var kappglíma innbyrðis. Jón
Halldórsson hljóp 100 m og Sigur-
jón fékkst við öfluga fangbragða-
menn í grísk-rómversku fangi og
náði öðru sæti. Er heim kom var
glímt um Grettisbeltið og hélt Sig-
uijón því.
Um haustið 1912 efndi Siguijón
Pétursson til stofnfundar skátafé-
lags í „Fjósinu", húsakynnum hins
lærða skóla í Reykjavík (MR). Hann
vildi efla útilíf og ferðalög meðal
reykvískra drengja.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
I upphafi minningargreinarinnar
er minnst á ritið Mín aðferð, sem
Siguijón gaf út 1911. Þetta rit var
mikið notað, svo að útgefanda varð
að ósk sinni, að það yrði þeim, sem
áhuga hefðu að æfa sig, þarfur
kennari.
Árið 1916 gaf stjórn ÍSÍ út
kennslubók í glímu ásamt fyrirmæl-
um um íslenska glímu. Siguijón var
einn þeirra sem sömdu bókina.
Kunnar eru margar myndir af
glímubrögðum, sem Siguijón sýndi
og voru teknar upphaflega vegna
glímubókarinnar. Siguijón hélt
áfram að æfa þær íþróttir, sem hér
voru iðkaðar og þjálfa líkama sinn.
Hann var löngum fræknastur allra.
í fyrri heimsstyijöldinni lögðust
íþróttaiðkanir að mestu niður hér í
Reykjavík. Þegar leið frá lokum
stríðsins og ekki hófust æfingar,
boðaði Siguijón til aðalfundar í
Ármanni og tók að sér formennsku
meðan íþróttalífið komst í eðlilegt
horf.
Siguijón keppti sem beltishafí í
Íslandsglímu 1919 og varð annar.
Hann keppti síðast í glímu 1920
og þá um Armannsskjöldinn.
Glímunni luku 14 glímumenn. Sig-
utjón vann skjöldinn. Lagði alla og
þar á meðal glímukappa íslands,
Tryggva Gunnarsson. Þetta voru
glæsileg lok á affarasælum og löng-
um íþróttaferli.
Árið 1924 stofnaði Siguijón
íþróttaskóla á Álafossi, sem hann
starfrækti að sumarlagi fyrir böm
allt til 1942 að breski herinn tók
húsakynnin til afnota. Fyrir skólann
hafði hann látið reisa heimavistir,
leikskála og yfirbyggða sundlaug.
Leitt til hennar heitt vatn um 1.100
m leið. Margir, sem nutu íþrótta í
þessum sumarskóla róma dvölina.
Siguijón lagaði á Álafossi til fyrir
fólk að sækja útihátíðir. Einnig
sóttu reykvískir sundmenn sundæf-
ingar um árabil í lónið ofan við
stífluna í Varmá, og við það reisti
Siguijón búningsherbergi.
Af þessari upptalningu á ferli
Siguijóns Péturssonar sem íþrótta-
iðkandi margra greina,_ keppenda í
þeim, afreksmanns á Ólympíuleik-
um, íþróttafrömuðar, má ljóst vera
að hann sé athyglisverðasti íþrótta-
maður íslenskur á 20. öld.
Við verslunarstörf og verkstjóm
starfaði Sigutjón 1902—15. Starf-
rækti eigin verslun til 1919, er
hann keypti klæðaverksmiðjuna á
Álafossi í Mosfellssveit, sem hann
starfrækti til æviloka. Samhliða rak
hann saumastofu og fataverslunina
Álafoss í Reykjavík. Stofnaði 1933
Félag ísl. iðnrekenda. Var fyrsti
formaður félagsins og í stjóm þess
í 15 ár. Stofnandi Sálarrannsóknar-
félags íslands 1918 og Náttúm-
lækningafélags íslands 1938. Lét
sig varða ýmis velferðarmál al-
mennings, t.d. vatnsveitu, gatna-
gerð, götulýsingu, að gasstöð var
reist o.m.fl.
Árið 1914 kvæntist Siguijón Sig-
urbjörgu Ásbjömsdóttur trésmiðs
Ólafssonar. Hún var virkur félagi
í Umf. Iðunni og var í leikfími-
flokki kvenna sem sýndi undir
stjóm Bjöms Jakobssonar 1911 á
Landsmóti UMFÍ. Hún fylgdi því
manni sínum dyggilega í störfum
hans að íþróttum. Segja má að þau
hjón ættu tvö heimili. Annað við
Þingholtsstræti í Reykjavík en hitt
á Álafossi. Bæði þessi heimili bám
myndarskap og hlýleika húsfreyj-
unnar fagurt vitni. Sigurbjörg
fæddist 31. mars 1892 og lést 8.
júní 1975. Böm þeirra hjóna:
Sigríður (f. 21. mars 1916) íþrótta-
kennari, forstöðumaður Sundhallar
Reykjavíkur og húsfreyja á Hurðar-
baki, Reykholtsdalshr., Borgar-
fjarðarsýslu. Pétur (f. 30. júlí 1918)
efnaverkfræðingur, forstöðumaður
Rannsóknarstofu iðnaðarins. Ás-
bjöm (f. 26. mars 1926 — d. 7.
júlí 1985) forstjóri og formaður
Handknattleikssambands íslands.
Siguijón var sæmdur Fálkaorðu
1932, sænsku Ling-orðunni 1939
og heiðursfélagi ÍSI var hann kos-
inn 1932.
Hvatning Siguijóns til sam-
starfsmanna um hvert hans áhuga-
mál, var sprottinn af eldlegum
áhuga hans og heilhuga fordæmi,
studd víkingslund hans og karl-
mannlegu stolti. Þessa fékk íþrótta-
félag hans, Glímufélagið Ármann,
að njóta, og_ þá heildarsamtök
íþróttamanna, ÍSÍ. Stór er þakkar-
skuld þessara félagsstofnana við
Siguijón Pétursson og því er hans
í dag minnst að þeirra tilstilli.
Þorsteinn Einarsson
í dag, 9. mars, em 100 ár liðin
frá fæðingu Siguijóns Péturssonar
á Álafossi. Foreldrar hans vom
Pétur Þórarinn Hansson, sjómaður
og síðar formaður (1851—1907) í
Skildinganesi suður við Reykjavík,
og Vilborg Jónsdóttir (1859—
1943), bónda Einarssonar í Skild-
inganesi. Er Pétur sagður hafa ver-
ið sægarpur mikill og hinn ágæt-
asti fískimaður.
Ungur hóf Siguijón störf hjá Th.
Thorsteinssyni, kaupmanni og út-
gerðarmanni í Reykjavík. Thor-
steinsson var tengdasonur Geirs
Zoéga, eins ötulasta brautryðjanda
stórútgerðar á íslandi. Th. Thor-
steinsson var mikill framfaramaður
og fullyrða má að hann hafi verið
á ótrúlegustu sviðum langt á undan
sinni samtíð. Hann kom á fót sér-
verslunum, t.d. fata- og vefnaðar-
vömverslun, veiðarfæraverslun og
netagerð o.s.frv. Áhersla var lögð
á snyrtilega og lipra umgengni við
afgreiðslu viðskiptavina og hefur
það átt dijúgan þátt í að efla versl-
un hans. Hann hóf vélþurrkun á
físki, sem og fískverkun í stómm
stíl á Kirkjusandi um aldamótin.
En það sem að sjómönnum sneri
bætti hann útbúnað skipa og vistar-
vemr. „Áhrif hans á unga menn,
áhugi hans og vömvöndun urðu
verslunar- og útgerðarmálum á
margan hátt til eflingar. Hann var
framfaramaður, snyrtimenni og
drengskaparmaður," segir Vil-
hjálmur Þ. Gíslason í Sjómannasögu
sinni.
Fullyrða má að starfstími Sigur-
Rækju
ostur
Producc of Iccland
enn meiri háttar
OSTATILBOí)
stendur til 19. mars
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
Rækju-, sveppa- og paprikuostur
Áður kostuðu 3 dósir ca. 329 kr., HÚ 250 líT.*
24% lækkun.
Beikonostur
Áður kostuðu 3 dósir ca. 3^7 kr., nú 285 Kr.*
24% lækkun.
* leiðbeinandi smásöluverð.
Beikon
ostur
produce of Iceland
ostur
Produce
of Iceland
JiSprfii;.'-..;
1
Produce of Iceland