Morgunblaðið - 09.03.1988, Síða 64
Sparisjóösvextir
qg yfirdráttur
á téKKareiKningum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
1 91-27233 I
L
MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1988
VERÐ I LAUSASÖLU 60 KR.
Kandamenn
leggja 70
milljónír
í íslensku
kvikmynd-
ina Meffí
Jón Ólafsson fjár-
magnar helming
myndarinnar
JÓN Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Skifunnar hf., og kvik-
myndafyrirtækið SC Entertain-
ment í Torontó í Kanada hafa
gert samning um sameiginlega
fjármögnun, framleiðslu og
dreifingu kvikmyndarinnar
Meffí. Aætlaður kostnaður við
kvikmyndina er um 140 milljón-
ir króna og fjármagna Jón
Ólafsson og SC Entertainment
kvikmyndina til helminga.
Hilmar Oddsson verður leik-
stjóri en hann skrifaði handrit-
ið ásamt Jóhanni Sigurðarsyni
leikara og bandaríska kvik-
myndahandritahöfundinum
Michael Taav.
, ^ Morgunblaðið/Júlíus
A gatnamótum Skipholts og Brautarholts í gær. Þar urðu nær samtimis tveir minni háttar árekstrar og lögreglan kölluð á staðinn,
þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir því í breyttum umferðarlögum. í þeim er ökumönnum sjálfum ætluð skýrslugerð við óhöpp,
þegar ekki er um stórfellt eignatjón eða meiðsli á fólki.
Nær 100 árekstrar í umferðaröngþveiti
Umferðaröngþveiti með tugum árekstra og miklum töfum
varð síðdegis á höfuborgarsvæðinu í gær. Talsverð skæðadrífa
var og setti niður nokkurn snjó með mikilli hálku. Alls voru
skráðir hjá lögreglunni í Reykjavík 62 árekstrar frá því um klukk-
an 6 um morguninn og fram undir kvöldmat. Langflestir þeirra
urðu á tímabilinu frá kl. 16.00 til 18.45. Aðeins urðu slys á fólki
í tveimur tilfellum. 11 árekstrar voru skráðir hjá lögreglunni í
Kópavogi og 10 hjá lögreglunni í Hafnarfirði.
Samkvæmt breyttum umferðarlögum þarf nú ekki að kalla til lög-
reglu við árekstra nema um meiðsl á fólki sé að ræða eða mikið eigna-
tjón. í flestum tilvikum hefði fólk því ekki átt að hringja í lögregl-
una, heldur ganga frá málunum samkvæmt nýju lögunum að sögn
lögreglunnar. Með því móti hefðu kraftar hennar nýtzt til að liðka
fyrir umferðinni.
Frá því breytingarnar á umferðarlögunum tóku gildi fyrsta marz
síðastliðinn hefur verið mjög lítið um það að lögreglunni berist tilkynn-
ingar um árekstra nema í gær. Því má fastlega reikna með talsvert
fleiri árekstrum en tilkynntir hafa verið og að hátt á annað hundrað
bílar hafi skemmzt.
í aðalhlutverkum verða íslensk- I Kennarar leita eftir heimild til verkfallsboðunar:
ir leikarar en einnig verða í kvik-
myndinni erlendir leikarar. Meffí
verður eingöngu tekin upp á Is-
landi og hefst kvikmyndatakan í
ágúst nk. Handrit kvikmyndarinn-
ar íjallar um þrjá æskuvini úr
lægri þrepum þjóðfélagsins sem
hafa þróað með sér sérstakt
tungumál. Dag nokkum tekst
þeim að rífa sig upp úr eymdinni
og um það snýst kvikmyndin.
Jón Ólafsson hefur einnig gert
samning við SC Entertainment
um sýningarrétt hér á landi á 12
kvikmyndum fyrirtækisins. Samn-
ingur Jóns og SC Entertainment
kveður á um að framhald verði á
kvikmyndaframleiðslu þeirra ef
vel tekst til með kvikmyndina
Meffí.
Verkföll gætu hafist í
skólum landsins 11. apríl
Kennarasamband íslands og Hið islenska kennarafélag hafa ákveð
ið að leita heimildar félagsmanna sinna til verkfallsboðunar. At-
kvæðagreiðsla fer fram í félögunum eftir um 10 daga. Verði heim-
ild til verkfallsboðunar samþykkt og hafi samningar ekki náðst
gæti komið til verkfalla kennara þann 11. apríl. Um 3.200 kennarar
eru í KÍ og um 1.100 í HÍK og myndi kennsla leggjast alveg niður
í grunn- og framhaldsskólum ef til verkfallanna kemur.
Fundur með fulltrúum HÍK og
ríkisins var haldinn í gær og var
hann árangurslaus, að sögn Win-
ciear Jóhannsdóttur, formanns
HÍK. Svanhildur Kaaber, formaður
Kennarasambands Islands, sagði
að kjararáð KÍ hefði leitað til hins
ítrasta að grundvelli til samninga
og teldi að ekki yrði lengra komist
að svo búnu máli. Samkvæmt til-
boði ríkisins væri ekki gert ráð fyr-
ir neinni upphafshækkun og ein-
ungis tæplega 6% launahækkun á
seinni hluta ársins 1988, sem þýddi
kjararýmun upp á tæp 10% miðað
við 1. febrúar. Bæði KÍ og HÍK
Stefnt að 250 tonna sjó-
kvíaeldi í Dyrhólaósi
Stórkostlegir möguleikar í iaxeldi segir Kristinn í Björgun
„Það er ákaflega mikil sam-
staða um það meðal allra heima-
manna að uppbygging fiskeldis í
Dyrhólaós sé algjört stórmál fyr-
ir héraðið," sagði Þórir Kjartans-
son framkvæmdastjóri í Vík í
Mýrdal í samtali við Morgun-
blaðið um fyrirhugaða sjókvia-
eldisstöð og hafbeitarstöð við
Dyrhólaey. Unnið hefur verið að
undirbúningi málsins og er það
nú á lokastigi, en álits Náttúru-
verndarráðs er að vænta í mánuð-
inum. Kristinn Guðbrandsson í
Björgun sem vinnur að undirbún-
ingi ásamt heimamönnum,
Byggðastofnun og fleiri aðilum
sagði í samtali við Morgunblaðið
að gert væri ráð fyrir 250 tonna
sjókvíastöð til að byrja með og
væri ekkert því til fyrirstöðu að
hefja fiskeldið í haust ef tilskilin
leyrfi fengjust. Þorsteinn Gunn-
arsson bóndi í Vatnsskarðshólum
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hér væri um stórhagsmunamál
að ræða og ef allt gengi fram sem
horfði sæju menn fram á hrein
umskipti til hins betra á svæðinu
varðandi atvinnu.
Kristinn Guðbrandsson sagði að
stórkostlegir möguleikar væru til
fiskeldis við Dyrhólaey, fyrst og
fremst í sjókvíum, en einnig í haf-
beit á laxi og sjóbirtingi. Kristinn
sagði að hitastig sjávar við suður-
ströndina færi aldrei niður fyrir 7
stig á vetrum og ef fískeldi við
Dyrhólaey heppnaðist væri þar lyk-
illinn að stórkostlegum fískeldis-
möguleikum á allri strandlengju
Suðurlands. Reiknað er með að það
kosti 50-60 milljónir króna að
byggja upp aðstöðu fyrir 250 tonna
ársafla í sjókvíum, en það er helm-
ingurinn af allri þyngd sem héraðið
framleiðir í sauðfjárafurðum. Krist-
inn sagði að ef allir möguleikar óss-
ins yrðu notaðir mætti ala þar fleiri
þúsund tonn af físki á ári. Til þess
að skapa aðstöðu fyrir sjókvíar inni
í ósnum þarf að hreyfa til 100 þús-
und rúmmetra af jarðvegi og mynda
ákveðna vöm fyrir ísinn inni á lón-
inu sjálfu. Byggðastofnun, fískeldis-
menn, heimamenn og sérfræðingar
hafa unnið að málinu, en þarna
myndi fljótlega skapast vinna fyrir
tugi manna og auk uppbyggingar
við Dyrhólaós þyrfti að stækka veru-
lega seiðaeldisstöðina í Vík og slátr-
un og pökkun á eldisfískinum við
Dyrhólaey myndi eiga sér stað í
Vík. Þeir Þórir og Þorsteinn lögðu
mikla áherslu á það í samtali við
Morgunblaðið að samstaða heima-
manna væri ákaflega mikil, enda
horfðu menn í þessu efni til eina
raunhæfa möguleikans í augnablik-
inu til atvinnuuppbyggingar á Dyr-
hólaeyjar- og Mýrdalssvæðinu.
segjast byggja kröfugerðir sínar á
skýrslu Starfskjaranefnda um
starfskjör kennara, og segir í grein-
argerð með kröfum HIK að samn-
inganefnd ríkisins hafi virt að vett-
ugi gefín loforð stjómvalda um
bætt kjör og starfsskilyrði kennara.
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði að
ástæða þess að samningar við kenn-
ara væm lausir nú væri sú að
ákveðið hefði verið að taka vinnutil-
högun kennara til endurskoðunar
og hefðu tillögur ríkisvaldsins mið-
ast við það. Kennarar hefðu fengið
um 5% hækkun eftir áramót og
fengju sambærilegar hækkanir og
aðrir ríkisstarfsmenn út þetta ár,
en gerðu nú kröfur um launahækk-
anir um tugi prósenta í ýmsu formi.
Aðspurður sagði Indriði að auðvitað
væri það mikið áhyggjuefni ef
skólastarf raskaðist vegna verk-
falla, en það væri líka mjög mikil-
vægt að ekki verði „kveikt í launa-
sprengju" í núverandi efnahags-
ástandi.
Guðni Guðmundsson, rektor
Menntaskólans í Reykjavík, sagði
að verkfall HÍK myndi fresta próf-
um í MR og raska kennslu í öðrum
framhaldsskólum, sem eru yfírleitt
búnir aðeins seinna en MR. „Ef af
þessu verður, sem ég vona að guð
forði okkur frá, þá verður þetta
þriðja eða fjórða verkfallið sem þeir
nemendur sem útskrifast í vor lenda
í,“ sagði Guðni.
Sjá einnig bls. 35: Kröfur
kennara byggðar á loforðum
stjórnvalda.