Morgunblaðið - 01.07.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988
Tillögur nefndar um fjölskyldumál væntanlegar:
Bætur með bömum undir
skólaaldri verði hækkaðar
NEFND á vegum ríkisstjórnarinnar inn fjölskyldumál hyggst leggja
til að barnabætur til foreldra barna undir skólaskyldualdri verði
hækkaðar. Markmið nefndarinnar mun vera að stuðningur við for-
eldra sé óháður því hvort eða hvar foreldrar kjósa að koma börnum
sínum fyrir yfir daginn. Nefndin mun fljótlega skila tillögum um
skóla- og dagvistarmál.
Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
Qölskyldunefndar ríkisstjómarinn-
ar, segir að við athugun nefndarinn-
ar á kostnaði við dagvistun hafi
komið í ljós að þátttaka foreldra í
þeim kostnaði sé víða afar lítil, allt
niður í 20% í dagheimilisplássum.
„Þegar svona lágt hlutfall þjónustu-
greiðslunnar er í höndum foreldra
hlýtur að vera minni vilji hjá þeim
sem þjónustuna veita, það er sveit-
arfélögunum, að auka framboðið
en ella væri,“ sagði Inga Jóna.
„Við höfum til dæmis bent á það
að víðast er kostnaðarþátttaka for-
eldra miðuð við meðlagsgreiðslur,
en við könnun á því hvemig með-
lagsgreiðslur em grundvallaðar,
kemur í ljós að það virðist ekki
vera neinn haldbær grunnur fyrir
þessu fyrirkomulagi. Við munum
leggja til að sú upphæð verði endur-
skoðuð þannig að meðlagsgreiðslur
séu í meira samræmi við raun-
verulegan kostnað," sagði Inga
Jóna.
Inga Jóna sagði að núverandi
kerfi í dagvistarmálum mismunaði
einnig foreldrum, þar sem það væm
aðeins þeir foreldrar, sem fengju
inni fyrir böm sín á dagvistar-
heimilum, sem nytu niðurgreiðslu á
dagvistargjöldunum, aðrir fengju
ekki neitt. „Það verður afgerandi f
okkar tillögum að stuðningur við
foreldra taki ekki mið af hjúskapar-
stöðu heldur tekjum, þótt það sé
reyndar staðreynd að einstæðir for-
eldrar em almennt tekjulægri en
hinir," sagði Inga Jóna. „Þetta kerfi
sem við höfum byggt upp í dag
bitnar einkum á tekjulágum hjón-
um. Til dæmis njóta engir sérstakr-
ar fyrirgreiðslu í Reykjavík hvað
dagheimilispláss varðar nema ein-
stæðir foreldrar., nema í leikskól-
um.“
Inga Jóna sagði að það bæri að
hafa í huga að það væri verkefni
sveitarfélaga og einkaaðila að sjá
um framboð á dagvistarplássum.
„Aukinn stuðningur við foreldra til
þess að mæta kostnaði við dagvist-
argjöld eða til að dvelja sjálfír með
bömum sínum, komi hins vegar frá
ríkinu," sagði Inga Jóna.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 1. JÚLÍ 1988
YFIRLIT f GÆR:
Skammt norð-vestur af írlandi er hægfara 990 mb lægð og þaðan
lægðardrag norð-austur milli Færeyja og Noregs. Yfir Grænlandi
er 1020 mb. hæð.
SPÁ: Á morgun verður norð-austlæg átt á landinu, víða kaldi. Skýj-
að verður og sumstaðar dálítil súld á Suöaustur- og Austurlandi
og við norðurströndina, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti
verður 10—14 stig suö-vestanlands, en annars á bilinu 5—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norð- og noröaustan-
átt. Skýjað um norðan- og austanvert landið og dálítil súld við
strendur. Víðast léttskýjað á Suðvestur- og Vesturlandi. Hiti 10—15
stig suð-vestanlands á daginn, en annars 5—8 stiga hiti.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10
V
*
V
Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
|T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísL tíma
httl vaður
Akureyri 9 skýjað
Reykjavík 13 alskýjað
Bergen 15 alskýjað
Helslnki 25 þrumuveður
Jan Mayen 0 alskýjað
Kaupmannah. 19 skýjað
Narssarssuaq 11 léttskýjað
Nuuk 4 þoka
0816 22 skýjað
Stokkhólmur 25 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 22 alskýjað
Amsterdam 23 mlstur
Aþena vantar
Barcelona 24 alskýjað
Chicago 10 helðsklrt
Feneyjar 25 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 21 skýjað
Hamborg 22 þrumuveður
Les Palmas vantar
London 20 rignlng
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 22 skýjað
Madríd 17 súld
Malaga 24 skýjað
Mallorca 30 skýjað
Montreal 10 skúr
New York 18 léttskýjað
París 19 rigning
Róm 26 heiðsklrt
San Diego 18 alskýjað
Winnipeg 13 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Það voru fagnaðarfundir við Reykjavíkurhöfn í gær þegar Leif-
ur Leópoldsson tók á móti hundi sínum Vaski, sem kom með
Akraborginni. Vaskur á þó lengra ferðalag framundan, göngu-
ferð þvert yfir landið.
Gengur með hundin-
um þvert yfir landið
Safnar áheitum fyrir Krýsuvík-
ursamtökin á 560 km göngu
LEEFUR Leópoldsson, 23 ára Borgfirðingur, leggur af stað i dag
ijnikla ferð til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Hann ætlar sér
að ganga ásamt hundi sínum, Vaski, þvert yfir ísland, frá fjöru-
borði í Reyðarfirði að fjöruborði á Amarstapa á Snæfellsnesi.
Þessi leið er um 560 I™ löng og ætlar hann sér 36 daga til ferð-
arinnar. Leifur segist leggja þetta á sig til þess að vekja athygli
á Krýsuvíkursamtökunum, tilgangi þeirra og markmiðum og
síðast en ekki síst tíl þess að afla fjár til starfseminnar. Samtök-
in einbeita sér að þvi að aðstoða ungmenni í vímuefnavanda.
Leifur er alvanur fjallaferðum fleiri kílómetra, sem er verðlagður
og þótt þeir Vaskur verði einir á
ferð á hálendinu munu margir
leggja hönd á plóginn og öryggi
þeirra verður tiyggt eins og kost-
ur er. Birgðum verður komið fyr-
ir í skálum og öðrum fyrirfram
ákveðnum stöðum af björgunar-
sveitarmönnum og félögum I
Krýsuvíkursamtökunum. Og
björgunarsveitarmenn munu feija
hann yfir ófærar ár á leiðinni.
Farsími og neyðartalstöð verða
með í ferðinni og verður Leifur í
daglegu sambandi við útvarps-
stöðina Stjömuna. í beinum út-
sendingum verður rætt við hann
um viðburðj dagsins og tekið við
áheitum. Áheitagangan miðast
við að fyrirtæki gefi einn eða
á 10.000 krónur. Söfnunarmark-
miðið er því 5,6 milljónir, en það
mun nægja til að klára fyrsta
áfanga skólahússins í Krýsuvík,
sem samtökin hafa yfir að ráða.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti Leif að máli við Reykjavíkur-
höfn síðdegis i gær, þar sem hann
tók á móti hundinum Vaski, sem
kom með Akraborginni. Þeir fé-
lagar áttu að fljúga skömmu síðar
austur og gangan að hefjast í
dag. Leifur sagði að hann hefði
lengi dreymt um að fara slíka
ferð og þegar hann hefði séð
möguleika á að vekja athygli á
góðum málstað í leiðinni þá hefði
hann tekið af skarið.
Vestfirðir:
Húshitimarkostnaður
hækkar um 7 þúsund
Húshitunarkostnaður þeirra
húsa sem hituð eru upp með raf-
magni á Vestfjörðum hefur
hækkað um 14% i kjölfar hækk-
unar Landsvirkjunar á gjaldskrá
sinni um 8%. Fyrir 120 fm hús
sem notar um 35.000 kUóvatt-
stundir á ári þýðir þetta um 7000
krónur i aukinn hitunarkostnað.
Kristján Haraldsson orkubústjóri
Orkubús Vestíjarða segir að hækk-
un Landsvirkjunar hafí þýtt 5%
hækkun á gjaldskrá þeirra en síðan
hafi bæst við 3% vegna annara
kostnaðarhækkanna. Hinsvegar
hafí verðið til neytenda hækkað um
14% þar sem fastir afslættir og
niðurgreiðslur háfí staðið í stað en
ekki fylgt þessum hækkunum.
Kristján nefnir sem dæmi um
aukinn kostnað neytenda sem
kynda með rafmagni að fyrir hækk-
un kostaði 54.600 krónur að kynda
120 fm hús miðað við 35.000 kfló-
vattstundir á ári. Er þá búið að
reikna með afslætti og niðurgreiðsl-
um. Eftir hækkun er þessi kostnað-
ur orðinn 61.600 krónur eða um
7000 krónum hærri.