Morgunblaðið - 01.07.1988, Side 10
10 .
• MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988
ádisVáaa-
Spariðykkur bæði
tíma og peninga.
KJÖTBOLLUR
m/kartöflum, grænmeti og
salati
KJUKLINGUR
m/kokteilsósu, frönskum og
salati
440.-
Karrý pottréttur
m/hrísgrjonum, grænmeti og
brauði
I
NAUTABUFF
m/kartöflum, grænmeti og
salati
Safnaðarferð Seltirn-
inga í Strandakirkju
Seltjarnarnessöfnuður fer í
sína árlegu safnaðarferð næst-
komandi sunnudag, 3. júlí. För-
inni er heitið í Strandakirkju og
er hún ætluð öllum aldurshópum.
Lagt verður af stað frá Seltjarn-
ameskirkju kl. 11 og ekin Krísuvík-
urleið að Strandakirkju og sótt
guðsþjónusta hjá sóknarprestinum
sr. Tómasi Guðmundssyni. Á leið
austur verður staðnæmst við
Hlíðarvatn og nesti snætt. Eftir
«622030
Lokað í dag ^
vegna flutninga
Meoöhiblaó á hterjum degi!
guðsþjónustuna verður ekið til Þor-
lákshafnar og þaðan til Hveragerð-
is þar sem kaffi verður drukkið á
Hótel Örk í boði sóknamefndar.
Siglufjörður:
Sextíu fara á
vinabæjamót
í Færeyjum
Siglufirði.
ÁRLEGT vinbæjarmót er haldið
þessa dagana í vinabæ Siglufjarð-
ar, Eiði í Færeyjum. Þangað hafa
um sextíu Siglfirðingar haldið.
Stærsti hluti hópsins er 6. flokkur
KS sem tekur þátt í knattspymu-
móti sem haldið verður i Eiði, en
þó nokkrir knattspymumenn
sóttu okkur heim þegar við héld-
um vinbæjarmót á Siglufirði fyrir
tveimur árum.
Blásarakvintett undir stjóm Tony
Raleys mun leika á mótinu, og séra
Vigfús Þór Ámason formaður norr-
æna félagsins í Siglufirði mun taka
þátt í norrænni guðsþjónustu sem
flutt verður 3. júlí nk.
Norrænt samstarf hefur verið
blómlegt hér á liðnum árum, en hér
er starfandi næst elsta norræna félag
landsins, sem hélt upp á 50 ára af-
mæli sitt 27. þessa mánaðar. Fyrsta
vinarbæjarmót á íslandi var einnig
haldið hér á Siglufirði 26. júlí til 1.
ágúst árið 1951.
- Matthías
Þetta hús er til sölu á
Hornafirði
IDJÚPSTEIKT ÝSA
m/kartöflum, sósu og salati
34IÖ--
ISAMLOKA
80 ■—stk-
IHAMBORGARAR
I wmW
I # “ stk.
I Súpa + salatbar
1260.-
Heitir réttir
framreiddirfrá
kl. 11.30-13.30
og frá kl. 16.00
Auk þess bjóðum við daglega
þjóðlegan mat s.s. svið, lifrar-
pylsu, blóðmör, rófustöppu
o.fl. eftir hádegi.
Á salatbarnum er alltaf til
rækju-, túnfísk-, laxa-, epla-,
kartöflusalat o.fl. o.fl.
sími: 656400
Það er um 130 fm ásamt bílskúr. 4 svefnherbergi.
Góðar innréttingar. Gott hús. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 97-81320.
GARÐASTÁL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
Frá verðlaunaafhendingu vegna Útiskákmótsins 1987. F.v. Þráinn
Guðmundsson, forseti Skáksambands íslands, Guðmundur Arason
og Helgi Ólafsson stórmeistari.
Útiskákmót á
Lækjartorgi í dag
ÚTISKÁKMÓT verður haldið á
Lækjartorgi á vegum Skáksam-
bands íslands í dag kl. 15.
Þetta er ísjöunda sinn sem Skák-
samband íslands stendur fyrir
þessu móti og mun fjöldi fyrirtækja
taka þátt í mótinu og flestir bestu
skákmenn landsins tefla. Á síðasta
ári tóku 34 fyrirtæki þátt í keppn-
inni og urðu efstir og jafnir Smíða-
jám, Guðmundur Arason, keppandi
Helgi Ólafsson og Morgunblaðið,
keppandi Margeir Pétursson. Háðu
þeir aukakeppni sem Helgi vann.
INNLENT
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
■
Langá léleg
„Þetta er lélegt enn sem kom-
ið er og heildarveiðin nú lakari
en í fyrra og var byijunin þó
slök þá. Við erum undrandi á
þessu, því veiðin á opnunardag-
inn var hin mesta í áraraðir. Þá
veiddust 19 laxar á neðstu svæð-
unum og 2 til viðbótar á mið-
svæðunum. Og menn töldu sig
sjá talsvert af laxi, t.d. á Breið-
unni,“ sagði Jóhannes Guð-
mundsson formaður Veiðifélags
Langár í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Alls voru þá um
100 laxar komnir á land. Hins
vegar sagði Jóhannes laxa þessa
allt öðru vísi en þá sem gengu
í ána í fyrra, þetta væru spengi-
legir og vænir smálaxar, en ekki
þessir 1 til 3 punda títupijónar
sem voru svo algengir þá.
Þá sagði Jóhannes, að svo virt-
ist sem laxinn hefði lítið gengið
ofar í ána, miðsvæðin hefðu lítið
gefið og það efsta einnig allt
fram að Sveðjufossi, en trúlega
hefur lítið eða ekkert verið reynt
þar fyrir framan enn þá. Annars
hitti ég Þorkel Fjeldsted áðan
og hann sagði mér að það væri
að byija ný aflahrota hjá þeim
í netin, en „eðlilegur lax“ að
þessu sinni, þ.e.a.s. það bæri
ekki lengur á þessum eldisfiskum
í aflanum sem svo mikið veiddist
af um daginn. Ég vona bara að
þessi ófögnuður fari ekki að
ganga upp í Langá. Annars fyllt-
ust netin á Rauðanesi, við
Langárós, svo rækilega fyrir
skömmu, að þau sukku hrein-
lega,“ bætti Jóhannes við.
Mjög gott í Haukunni.
í gær voru um 140 laxar komn-
ir á land úr Haukadalsá í Dölum
og var júníveiðin þá þegar orðin
sú besta í mörg ár. Laxinn hefur
og jrfirleitt verið mjög vænn þótt
eitthvað hafí slæðst með af 5 til
6 punda fiski. Sá stærsti var 18
punda. Lax var orðinn nokkuð vel
dreifður um svæðið, enda ekki
fossar eða slíkt til að hamla það.
Mokstur í Leirársveit.
Alger mokveiði hefur verið í
Laxá í Leirársveit síðustu daga,
á hádegi í gær hafði nýr hópur
verið að veiðum í einn dag. Lágu
54 laxar í valnum, þar af veidd-
ust 35 laxar í gærmorgun. Hópur-
inn sem var daganna þijá á undan
náði 97 löxum, en alls er veitt á
6 stangir í ánni. Stærsti laxinn
veiddist í gærmorgun, 16,5 punda
hængur sem Jón H.þJónsson fékk
í Gránesfljóti. Sá veiðistaður er
frammi í dal, en megnið af veið-
inni hefur fengist frá Laxfossi
niður á Stekkjarbreiðu, en áin iðar
nánast af laxi. Um það bil 90
prósent af veiðinni er smálax, 4
til 6 punda, en aðrir fiskar 7 og
8 punda, en auk 16,5 punda lax-
ins hefur hópurinn sem nú er að
veiðum náð einum 13 punda.
Heildarveiðin á hádegi í gær:328
laxar, sem er einhver mesta júní-
veiði sem þekkist í Laxá.