Morgunblaðið - 01.07.1988, Síða 24
24____________________________.___________MOÉGUNBLAÐÍÐ, FÓSTÚDAGUR l. JÚU 1988
Hannes Hólmsteinn Gissurarson skipaður lektor í stjómmálafræði;
Æskilegt að ólíkar
skoðanir eigi sér mál-
svara í Háskólanum
Greinargerð menntamálaráðu-
neytisins vegna stöðuveitingarinnar
ólafur Magnússon
Frá mektardögum Matardeildarinnar
Matardeild SS í
Hafnarstræti lokað
Var stofnuð árið 1908
Einni elstu matvöruverslun í Reykjavík, Matardeiid SS í Hafnar-
stræti hefur verið lokað. Öllu starfsfólkinu var sagt upp, en boð-
in störf í öðrum verslunum SS. Lokun Matardeildarinnar er liður
í þeirri stefnu stjórnar SS að draga úr rekstri smásöluverslana.
Það voru hjónin Anna Karlsdóttir og Erlendur Erlendsson, eigend-
ur Austurstrætis 17, sem keyptu Matardeildina og hyggjast þau
ekki reka þar matvöruverslun.
Menntamálaráðherra hefur í
dag skipað dr. Hannes H. Gissurar-
son lektor í stjómmálafræði við
félagsvísindadeild Háskóla íslands
frá 1. ágúst 1988 að telja.
Vegna ítrekaðra fyrirspuma
Qölmiðla um stöðuveitingu þessa,
svo og vegna umfjöllunar i fjölmiðl-
um sem á köflum hefur verið vill-
andi, þykir ráðuneytinu rétt að
gera grein fyrir þeim rökum sem
þessi ákvörðun er byggð á.
Umrædd lektorsstaða var aug-
lýst laus til umsóknar fyrri hluta
siðasta árs með umsóknarfresti til
6. apríl 1987. Auglýsingin (Lög-
birtingarblað nr. 26, 1987) var
svohljóðandi: „Lektorsstaða í
stjómmálafræði við félagsvísinda-
deild Háskóla íslands. Umsækjandi
skal vera hæfur til að annast
kennslu í undirstöðugreinum í
stjómmálafræði og kennslu og
rannsóknir á a.m.k. einu af eftir-
farandi sviðum íslenskra stjóm-
mála. 1. Ákvarðanaferli og stofn-
anaþróun innan stjómkerfísins. 2.
Hegðun og viðhorf kjósenda. 3.
Samanburðarstjómmál."
Umsækjendur vom fímm: Bjöm
S. Stefánsson, Gunnar H. Kristins-
son, Hannes H. Gissurarson, Ólaf-
ur Þ. Harðarson og einn sem ósk-
aði nafhleyndar.
Dómnefíid var skipuð 27. apríl
1987 og sátu í henni dr. Ólafur
Ragnar Grímsson, prófessor, dr.
Svanur Kristjánsson, dósent, og
Gunnar Gunnarsson, stjómmála-
fræðingur.
í bréfí dags. 29. maí 1987 mót-
mælti Jón Steinar Gunnlaugsson,
hæstaréttarlögmaður, í umboði dr.
Hannesar H. Gissurarsonar öllum
þremur dómnefndarmönnunum,
þar sem ætla mætti að þeir gætu
ekki fj'allað um umsókn dr. Hann-
esar af fyllstu óhlutdrægni. Bent
var í því sambandi á mjög nið-
randi ummæli sem einn dómnefnd-
armanna hafði látið falla í blaða-
grein um dr. Hannes. Þá var bent
á tengsl annars dómnefndarmanns
og eins umsækjenda um stöðuna.
Krafa lögmannsins var ekki tekin
til greinar.
ðlafur Ragnar Grímsson óskaði
fljótlega eftir að láta af störfum í
nefndinni og í hans stað var Sig-
urður Líndal, lagaprófessor, skip-
aður. Einnig var Jónatan Þór-
mundsson, lagaprófessor, skipaður
í nefndina sem fulltrúi háskóla-
rektors, að tillögu félagsvísinda-
deildar.
Tekið skal fram að dómnefnd
þessi var ekki skipuð samkvæmt
ákvæðum háskólalaga með aðild
menntamálaráðunejdisins, heldur
starfaði hún eingöngu á vegum
Háskóla íslands. Er hún var sett
á laggimar var ekki lögskylt að
skipa dómnefndir vegna lektor-
sembætta, þótt svo sé nú eftir
breytingu á reglugerð Háskóla ís-
lands.
Að mati ráðuneytisins gefa deil-
umar um dómnefndina tilefni til
þess að fram fari sérstök athugun
á reglum um skipan dómnefnda
um kennaraembætti við Háskóla
íslands. Verður háskólarektor og
háskólaráði innan skamms sent
sérstakt erindi þar að lútandi.
Niðurstaða dómnefndar var
kynnt umsækjendum, sem í náðist,
að kvöldi 28. apríl sl., ári eftir að
nefndin tók til starfa. Daginn eft-
ir, 29. apríl, var dómnefndarálitið
kynnt deildarfundi félagsvísinda-
deildar, sem þegar tók afstöðu til
þess. Dómnefndarálitið og niður-
staða deildarfundar vom send há-
skólarektor, sem framseldi þau til
menntamálaráðherra 9. maí sl.
Einn umsækjenda um stöðuna,
Bjöm S. Stefánsson, hefur í bréfí
til menntamálaráðuneytisins gagn-
rýnt hve fljótt var gengið til at-
kvæða um dómnefndarálitið. Að
mati ráðuneytisins er ástæða til
að deildarfundur hafí ekki gefíð
sér nægan tíma til að huga að álita-
efnum í niðurstöðum dómnefndar.
Niðurstaða dómnefndar var eft-
irfarandi: Bjöm S. Stefánsson var
ekki talinn hæfur til að gegna stöð-
unni eins og hún var auglýst.
Gunnar Helgi Kristinsson var tal-
inn hæfur til að gegna stöðunni.
Ólafur Þ. Harðarson var talinn vel
hæfur til að gegna stöðunni. Um-
sækjandinn, sem óskaði nafnlejmd-
ar, sendi engin ritverk með umsókn
sinni og var því ekki hægt að kanna
hæfni hans. Hannes H. Gissurar-
son var talinn hæfur til kennslu
og rannsókna á tilgreindu sérsviði,
þ.e. samanburðarstjómmálum, en
nefndin taldi að ekki væri hægt
að ráða það af námsferli hans né
heldur hefði hann sýnt fram 4 það
með ritverkum sínum, að hann
hefði þá þekkingu á helstu kenn-
ingum og rannsóknaraðferðum í
stjómmálafræði að hann teldist
hæfur til að kenna undirstöðu-
greinar hennar.
Við atkvæðagreiðslu á deildar-
fundi félagsvísindadeildar hlaut
Gunnar Helgi Kristinsson 1 at-
kvæði og Ólafur Þ. Harðarson 15
atkvæði. Einn seðill var auður.
í auglýsingu um lektorsstöðuna
vom tilgreindar tvenns konar
hæfniskröfur. í fyrsta lagi hæfni
til að annast kennslu í undiretöðu-
greinum stjómmálafræði. í öðm
lagi um hæftii til að annast kennslu
og rannsóknir á íslenskum stjóm-
málum innan þriggja tilgreindra
sérsviða stjómmálafræði. Hæfni í
þessum greinum er talin felast í
því að hafa á valdi sínu alla þætti
rannsókna: kenningar, val rann-
sóknaaðferðar, gagnasöfnun, úr-
vinnslu og greinargerð.
Menntamálaráðuneytið getur
ekki fallist á þá niðurstöðu dóm-
nefndar um dr. Hannes H. Gis-
surarson, að hann hafí ekki sýnt
fram á hæfni til að kenna undir-
stöðugreinar stjómmálafræði.
Maður sem lokið hefur doktors-
prófí í stjómmálafræði hlýtur að
teljast hæfur til að kenna byijend-
um almenn atriði fræðigreinarinn-
ar. Doktorspróf Hannesar er frá
einum virtasta háskóla veraldar,
Oxford-háskóla á Englandi, þar
sem ritgerð hans fékk lofsamlega
dóma.
Til að fá fullvissu um þetta at-
riði leitaði menntamálaráðuneytið
til dr. Johns Grays, kennara í
stjómmálafræði við Oxford-
háskóla, en hann var leiðbeinandi
dr. Hannesar meðan hann stundaði
nám við skólann. í svarbréfi dr.
Grays segir orðrétt í íslenskri þýð-
ingu: „Ég er fullfær um að stað-
festa að hann (þ.e. Hannes H. Gis-
surarson) er hæfur til að kenna
stjómmálaheimspeki (political tho-
ugt) og stjómmálafræði (empirical
poiitical science) bæði byijendum
og þeim sem lengra eru komnir.
Hann hefur einstaka hæfíleika og
ég er ekki í nokkrum vafa um að
hann er fyllilega undirbúinn undir
þá stöðu sem um ræðir."
Menntamálaráðuneytinu hefur
einnig borist bréf frá Norman P.
Barry, prófessor í stjómmálafræði
við Buckingham-háskóla á Eng-
landi, en hann var um tíma einnig
kennari dr. Hannesar. Norman P.
Barry kveður dr. Hannes færan
um að annast kennslu stjómmála-
fræði á öllum stigum. Þess má
geta að Barry er höfundur inn-
gangsrits um stjómmálafræði, An
Introduction to Political Theory,
sem nýtur almennrar viðurkenn-
ingar. Þess er ennfremur að geta
að ráðuneytið hefur undir höndum
ýtarlega umsögn um hæfni dr.
Hannesar H. Gissurarsonar til að
gegna lektorsstöðu í stjómmála-
fræði frá dr. Gunnari Pálssyni,
stjómmálafræðingi, en hann er
einn fárra íslendinga sem lokið
hafa doktorsprófí í fræðigreininni.
Dr. Gunnar telur dr. Hannes
tvímælalaust hæfan til að annast
kennslu og rannsóknir á háskóla-
stigi og kveður hann vel undirbúinn
til að takast á við umrætt lektor-
sembætti.
Dr. Hannes H. Gissurarson er
hinn eini í hópi umsækjenda sem
lokið hefur doktorsprófí í stjóm-
málafræði. Þá er hann einn um-
sækjenda sem gefíð hefur út heilt
fræðirit á sviði stjómmálafræði.
Er þar um að ræða doktorsritgerð
hans, sem kom út árið 1987 hjá
kunnu bandarísku forlagi, Garland
í New York, sem sérhæfír sig í
útgáfu fræðirita fyrir háskóla.
Stjómmálafræði er tiltölulega
ung fræðigrein og um eðli hennar
og hlutverk hefur ekki skapast sú
samstaða fræðimanna, hvorki hér
né erlendis, sem einkennir flestar
aðrar greinar vísinda og fræða.
Það kemur glögglega fram í áliti
dómnefndar og öðrum gögnum
málsins að skoðanir núverandi
kennara í stjómmálafræði og
Hannesar H. Gissurarsonar á eðli
og hlutverki þessarar fræðigreinar
em um margt ólíkar. Það er að
dómi ráðherra æskilegt að ólíkar
skoðanir á fræðigreininni eigi sér
málsvara á vettvangi Háskóla ís-
lands. í félagsvísindum er sér-
staklega mikilvægt að tryggja fjöl-
breytni og ftjálsa samkeppni hug-
mynda.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
er 35 ára að aldri. Hann lauk
BA-prófí í heimspeki og sagnfræði
frá Háskóla íslands árið 1979 og
cand.mag.-prófí í sagnfræði frá
sama skóla 1982. Hann hlaut dokt-
orsgráðu (Politics) frá félagsvís-
indadeild Oxford-háskóla 1985
fyrir ritgerðina „Hayek’s Conser-
vative Liberalism". Hann var gisti-
fræðimaður við Hoover-stofnunina
í Stanford í Kalifomíu 1983, 1984
og 1986 og sumarfélagi í Institute
for Humane Studies (George Mas-
on-háskólinn í Virginíu) 1984 og
1986. Hann hefur verið stunda-
kennari í viðskiptadeild og heim-
spekideild Háskóla íslands frá jan-
úar 1986. Þá var hann rannsóknar-
lektor í heimspekideild frá septem-
ber 1986 til ársloka það ár. Frá
1983 hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri Stofnunar Jóns Þor-
lákssonar og frá 1985 ritstjóri
rannsóknarrita stofnunarinnar.
Hann er aðstoðarritstjóri ritsafns
F.A. Hayeks, sem gefíð verður út
á næstu árum.
Menntamálaráðuneytið,
30. júní, 1988.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að það væri vissulega tregabland-
ið að hætta rekstri Matardeildar-
innar, en breyttar aðstæður köll-
uðu á breyttar áherslur og sú
ákvörðun hefði verið tekin á
síðasta aðalfundi SS að draga úr
rekstri smásöluverslana. Hann
vildi þakka viðskiptavinum Matar-
deildarinnar góð viðskipti í 80 ár.
Matardeild SS var opnuð í
Hafnarstræti 19, Kolasundi, árið
1908 og var í því húsnæði þar til
í ágúst 1930 þegar flutt var í
Hafnarstræti 5. Að sögn Guðjóns
Guðjónssonar, markaðsfulltrúa
hjá SS, sem hóf störf hjá Matar-
deildinni 1947, var verslunin
stærsta matvöruverslun bæjarins
á þeim tíma og nefndi harin sem
dæmi um fjölda viðskiptavina að
fyrir jól hefðu vanalega selst um
6000 ijúpur. Guðjón sagði þjón-
ustuna hafa verið mjög persónu-
lega á þessum árum, mikið um
heimsendingar og margir í reikn-
ingsviðskiptum. í útkeyrslunni
hefðu oftast tveir farið saman og
skipt með sér verkum á þann
hátt að annar tók sendingar í
Hjá Granda hf. verður unnið í
allt sumar og er þetta breytta fyrir-
komulag tilkomið eftir að starfs-
fólki var fækkað vegna hagræðing-
ar auk þess sem reynt verður að
nýta betur þorskaflan, sem berst
að landi yfír sumarmánuðina.
Þá heftir verið samið við starfs-
mannafélagið um að það reki versl-
húsin öðru megin götunnar meðan
hinn tók að sér húsin handan
hennar, slíkur hefði fjöldi við-
skiptavinanna verið. Það hefði
verið unnið dag og nótt, öll vinnsla
kjöts hefði farið fram á staðnum
og heitur matur verið á boðstólum
í hádeginu. Árið 1954 hefði verið
tekið upp kjörbúðarform í Matar-
deildinni og með tilkomu stærri
verslana hefði afkomu verslunar-
innar smám saman hrakað. Guð-
jón hefur unnið hjá SS síðan 1947
og horft upp á lokanir margra
verslana þeirra, en hann sagðist
aldrei hafa Séð eftir nokkurri
þeirra eins og Matardeildinni nú.
„Það er sjónarsviptir að þessari
verslun", sagði Guðjón að lokum.
Hjá Önnu Karlsdóttur, öðrum
hinna nýju eigenda, fengust þær
upplýsingar að ekki væri ráðið
hvað gert yrði við húsnæði Matar-
deildarinnar, en ákveðið væri að
þar yrði ekki matvöruverslun.
Anna og eiginmaður hennar Er-
lendur Erlendsson keyptu verslun
Víðis í Austurstræti 17 í mars sl.
og sagði Anna að ekki væri grund-
völlur fyrir rekstri tveggja mat-
vöruverslana á svo litlu svæði í
miðbænum.
anir með léttar veitingar í hádeginu
og meðlætimeð kaffínu, frá og með
1. ágúst þegar mötuneytið verður
lagt niður. Jafnframt hefur félagið
tekið að sér að sjá um þvotta á
búningum starfsfólks og þjónustu,
meðal annars afgreiðslu á vinnu-
sloppum og umsjón með salemum
og fataskápum.
MORGUNBLAÐIÐ/BAR
Einn af síðustu viðskiptavinunum verslar í Matardeildinni í gær
Unnið í Granda hf. í sumar
GRANDI hf. lokar ekki vegna sumarleyfa í ár eins og undanfarin
tvö sumur, segir í nýútkomnu fréttabréfi Granda. Þar kemur einnig
fram að samið hefur verið við starfsmannafélagið um að reka litlar
verslanir með létt fæði í Norðurgarði og Grandagarði.