Morgunblaðið - 01.07.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1988
Júgóslavía;
Harðlínumaður kjör-
inn flokksleiðtogi
Orðum prýddir foringjar víetnamska hersins í Kampútseu fylkja liði til athafnar, sem fram fór í Phnom
Penh í gær í tilefni af brottför þeirra.
Kampútsea:
Yfirherstjórn Víet-
nama kvödd heim
Belgrað. Reuter.
STIPE Suvar var kjörinn flokks-
leiðtogi á fundi miðstjórnar júgó-
slavneska kommúnistaflokksins í
fyrradag.
Suvar,bar sigurorð af Ivica Rac-
an, sem talinn hefur verið frjáls-
lyndur umbótasinni. Kjör hans kem-
ur á óvart þar sem efnt var til mið-
Brazilía:
Fer verðbólg-
gan í 700%?
Ríó de Janeiro. Reuter.
Verðlag hækkaði um 167% í
Brazilíu fyrstu sex mánuði árs-
ins, samkvæmt upplýsingum þar-
lendra stjórnvalda. Búist er við
að verðbólgan fari i 700% á ár-
inu.
Verðlag hækkaði um 19,53% í
júní og er það mesta verðlags-
hækkun á einum mánuði frá því í
júní í fyrra er hún nam 26,06%.
A síðustu 12 mánuðum hefur
verðlag hækkað um 336% í Brazilíu
og búast hagfræðingar við þriggja
stafa verðbólgutölu þar í landi á
næstunni. Brazilíska þjóðhags-
stofnunin, sem nýtur viðurkenning-
ar, sagði fyrr í vikunni að búast
mætti við því að verðbólgan færi í
700% á þessu ári.
Brazilía er skuldseigasta þróun-
arríki veraldar, skuldar 121 milljarð
Bandaríkjadollara, eða jafnvirði
5.500 milljarða íslenzkra króna.
stjómarfundarins til þess að fjalla
um nýja umbótaáætlun. Suvar er
52 ára króati og prófessor í félags-
fræði og heimspeki.
Kjör Suvars er einnig talið til
marks um að stefna júgóslavneska
kommúnistaflokksins eigi eftir að
harðna í framtíðinni. Suvar var
upphafsmaður og höfundur ýmissa
umbóta í menntamálum á síðasta
áratug. Undanfarin ár hefur hann
sætt mikilli gagnrýni af hálfu náms-
manna og menntamanna, sem segja
að umbætumar hafi mistekizt.
Suvar er sagður aðhylltast kenn-
ingar Marx og Lenins um að flokks-
mönnum beri að fara í einu og öllu
eftir ákvörðunum flokksins.
Á fundi miðstjómarinnar var
flokksstjómin harðlega gagnrýnd
fyrir að hafa mistekizt að vinna bug
á efnahagsörðugleikum og að hafa
ekki getað komið í veg fyrir verk-
föll. Boðuð hafa verið verkföll og
andóf gegn nýju umbótaáætluninni.
Júgóslavar glíma við 149% verð-
bólgu og erlendar skuldir þeirra
nema 21 milljarði Bandaríkjadoll-
ara, eða jafnvirði 960 milljarða
íslenzkra króna. Afkoma lands-
manna hefur versnað stómm og af
þeim sökum hefur verið efnt til
umfangsmikilla verkfalla síðustu
misseri.
Á fundinum sagði miðstjómar-
maðurinn Radomir Radonjic af sér.
Hann sagðist bera ábyrgð á því að
flokknum hefði mistekizt að vinna
þjóðina úr aðsteðjandi vandamál-
um. Aðeins nýir menn væru færir
um að leysa vandann, ekki þeir sem
hefðu skapað hann.
Phnom Penh. Reuter.
YFIRSTÓRN vfetnömsku heij-
anna i Kampútseu hélt til sins
heima í gær, og er það samkvæmt
áætlun Hanoi-stjórnarinnar um að
aflétta níu ára hersetu í þessu
nágrannalandi sínu. Þá kom Rafee
Uddin Ahmed, sendifulltrúi Javier
Perez de Cuellar, aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna, til Kampútseu í
gær og ræddi við Hun Sen forsæt-
isráðherra f Phnom Penh.
Le Ngoc, hershöfðingi í Víetnam-
her í Kampútseu, fór ásamt um 300
liðsforingjum sínum um borð í víet-
namskar herflutningavélar og þyrlur
á Pochenthong-flugvelli fyrir utan
Phnom Penh og þaðan var haldið til
Suður-Víetnams. Brottför herstjóm-
arinnar frá Kampútseu er talin vott-
ur um, að Hanoi-stjómin treysti ríkis-
stjóm Hun Sen til að standast sam-
fylkingu skæruliðasamtakanna f
landinu snúning. Víetnamar segjast
hafa um 100.000 hermenn undir
vopnum í Kampútseu um þessar
mundir. Helmingur þeirra verði
kvaddur heim á þessu ári og hinir
síðustu fyrir árslok 1990. Yfirstjóm
víetnömsku heijanna hefur nú verið
falin í hendur Kampútseuher.
Vétnamar sendu um 200.000 her-
menn inn í Kampútseu árið 1979 til
að velta ríkisstjóm Rauðu kmeranna
úr sessi. Rauðu kmeramir eru enn
aðsópsmestir skæruliðahreyfinganna
þriggja, sem vinna saman undir
stjóm Norodom Sihanouks prins.
Þeir sættu gagnrýni Víetnama og
alþjóðlegra mannréttindahreyfinga
fyrír að hafa myrt allt að milljón
manns, meðan á rjögurra ára ógnar-
stjóm þeirra undir forsæti Pol Pots
stóð í Kampútseu.
Víetnamar og stómin í Phnom
Penh hafa gert að skilyrði fyrir frið-
arsamkomulagi, að tryggt verði, að
Rauðu kmeramir komist ekki til
valda á ný.
Hun Sen forsætisráðherra átti í
gær tveggja og hálfrar klukkustund-
ar langar viðræður við Rafee Uddin
Ahmed, sendifulltrúa Javier Perez
de Cuellar, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna. Hlutverk sendifulltrúans
er að koma af stað friðarviðræðum
stríðandi aðila í Kampútseu. Ahmed
sagði Hun Sen, að hann hefði þegar
haft samband við fulltrúa skæmliða-
fylkinganna. Engar yfirlýsingar voru
gefnar út í lok viðræðnanna.
Aform um útgáfu verka
Solzhenítsyns í Moskvu
Moskvu, Reuter.
ÁFORM eru um að gefa út tvær
bækur eftir Alexander Solzhenít-
syn í Sovétríkjunum en verk hans
hafa verið bönnuð þar í mörg
ár. Solzhenítsyn var gerður út-
lægur frá Sovétríkjunum árið
1974 og opinberlega kallaður
„óvinur þjóðarinnar".
Þær tvær bækur sem til stendur
að gefa út heita „Krabbameins-.
deildin" og „Fyrsti hringurinn".
Þær greina frá lífi í fangabúðum
og byggja á reynslu Solzhenítsyns
sjálfs en hann var tekinn til fanga
árið 1945 fyrir að gagnrýna stjóm
Stalíns.
Míkahíl Gorbatsjov, leiðtogi Sov-
étríkjanna, hefur hvatt til opin-
berrar umræðu um sögulega fortíð
Sovétríkjanna og nokkrir sagnfræð-
ingar hafa undanfarið sakað Stalín
um „glæpsamjeg mistök" á
stríðsámnum. Áður hefur verið
reynt að fá þessar bækur Solz-
henítsyns gefnar út en án árang-
urs.
Búist er við að ákvörðun um
útgáfu á verkum hans verði tekin
innan tveggja vikna, þegar samn-
ingaviðræðum um tilhögun útgáf-
unnar lýkur.