Morgunblaðið - 01.07.1988, Side 37
37-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR í. JÚLÍ 1988
Júníverð kr. 914.000-
Tilboðsverð kr. 814.000
RA LIFTBACK
Skákmót Norræna
ökumatmasambandsms
Skákmóti Norræna öku- Reykjavík. Mótið hófst síðast
mannasambandsins lýkur í iiðinn mánudag. Keppt er eftir
kvöld í félagsheimili Hreyfils í Monrad-kerfi í tveimur flokk-
Ættarmót á Gríms-
stöðum á Fjöllum
Afkomendur Kristjáns Sig-
urðssonar bónda á Grimsstöðum
á Fjöllum halda ættarmót um
helgina. Þijú hundruð manns
hafa boðað þátttöku sina.
Mótið verður haldið á Grímsstöð-
um á Fjöllum. Setning verður kl.
14 á laugardag en mótinu lýkur
síðdegis á sunnudag. Slegið verður
upp tjaldbúðum á svæðinu en einn-
ig verður gist í bæjunum.
Ýmislegt er á dagskrá mótsins
svo sem fjöldasöngur og sameigin-
legt borðhald svo eitthvað sé nefnt.
Grímsstaðir stóðu áður fyrr 6 km
sunnar en byggðin núna og er ætl-
unin að skoða gamla bæjarstæðið.
Málverka-
sýning 1
Bókasafni
Kópavogs
OPNIJÐ verður sýning á mál-
verkum eftir Bjarna Sigur-
björnsson i listastofu Bókasafns
Kópavogs í dag, föstudaginn 1.
júlí. Þetta er fyrsta sýning
Bjarna og sýnir hann tiu oliumál-
verk öll máluð á þessu ári.
Bjami er fæddur árið 1966 og
starfar sem bflasmiður, en hyggst
hefja nám við Myndlista- og handí-
ðaskóla íslands í haust.
Sýningin er opin á sama tíma
og bókasafnið, mánudaga til föstu-
daga kl. 9-21, og stendur til 31.
júlí. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Allt í útileguna
Seljum-Leigjum
Hústjöld 4 m stgr. 29.900,
6 m stgr. 39.850.
5 manna tjöld m/fortjaldi
stgr. 18.905.
Samkomutjöld, svefnpokar,
gastæki, pottasett, ferðadín-
ur,borðogstólar,o.m.fl.
Útvegum fortjöld á hjólhýsi.
Tjaldaviðgerðir.
Sportleigan
v/Umferðamiðstöðina,
sími 13072.
Guðþjónusta verður
kirkju á sunnudag.
í Víðirhóls-
um, opnum flokki og öldunga-
flokki.
Að sögn Guðbjartar Guðmunds-
sonar hjá Hreyfli er þetta í fímmta
sinn sem mótið er haldið hér á
landi. Þátttakendur, sem koma frá
öllum Norðurlöndunum nema
Finnlandi, eru 42 talsins. Þeir eiga
allir sameiginlegt að _ vinna við
samgöngur. Þrettán íslendingar
eru i þeim hópi, elstur þeirra er
Steingrímur Aðalsteinsson, sem
kominn er á níræðisaldur og kepp-
ir í öldungaflokki.
Morgunblaðið/Sverrir
Setið að tafli í félagsheimili Hreyfils við Grensásveg.
toyota
RÝMINGARSALA!
Til að rýma fyrir árgerðum 1989 verða
Corolla GT-i bílarnir seldir á júníverði með
100.000 kr. afslætti.
KAUPBÆTIR!
Þeir sem koma fyrstir fá kaupbæti því þeir geta
valið sér álfelgur að verðmæti 35.000 kr. eða
sóllúgu að verðmæti 45.000 kr.
Tilboð þetta gildir til 15. júlí.
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
TOYOTA
Jumverö kr. 849.000.-*
Tilboðsverð kr. 749.000.-*
* Verö án afhendingarkostnaðar