Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
Tæpar 2
milljónir
fyrir eina
kókflösku
ÞorUluhðb.
Þ AU Hlíf Ragnarsdóttir og
Matthías Sveinsson duttu
heldur betur I lukkupott-
inn í lottóinu 22. október
þvi miðinn þeirra sem var
með fimm réttum tölum
gaf hvorki meira né minna
en 1.859.575 krónur.
Þau Matthías og Hlíf, sem eru
liðlega tvítug, eiga litla íbúð sem
þau langar til að stækka. Einnig
eru þau að koma upp hárgreiðslu-
stofu í Þorlákshöfn sem kostar
sitt þannig að peningamir koma
í góðar þarfír. „Tilviljun réð því
að þessi lottómiði var keyptur,"
sagði Matthías. „Undanfarið höf-
um við unnið langt frameftir á
hverju kvöldi en sl. laugardag
ákváðum við að hætta_ snemma
og slappa af heima. Á leiðinni
heim komum við við í Kandís í
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Hlíf Ragnarsdóttir og Matthías Sveinsson unnu rúmlega 1,8 millj-
ónir í lottóinu.
Eddufellitil að kaupa hamborgara
og kók. Á meðan verið er að af-
greiða okkur kaupir næsti við-
skiptavinur sér lottómiða, svo ég
segi við stúlkuna, renndu einum
sjálfvöldum í gegnum vélina fyrir
mig. Þegar búið var að borga
hamborgarana þá vantaði aura
fyrir lottómiðanum. í stað þess
að skila honum skilaði ég kókinu
og fékk mér ískóla og dugðu þá
aurarnir."
Þegar þau síðar um kvöldið sáu
lottótölumar í sjónvarpinu trúðu
þau varla sínum eigin augum og
hringdu þrisvar í sjálfsvarann til
að staðfesta að tölumar væru
réttar og þau væm ein með fímm
réttar tölur.
- J.H.S.
Athugun á tannheilsu 4 ára barna:
Brýnt að koma á tann-
skoðun forskólabarna
Hlutfall bama með mjög margar skemmdir óvenju hátt
FJÖGURRA ára gömul börn í Reykjavík eru að jafiiaði
með 2,4 skemmdar tennur, samkvæmt athugun á tann-
heilsu 158 barna í borginni, og hlutfall baraa með margar
skemmdar tennur er mun hærra hér en á hinum Norður-
löndunum. Skólatannlækningar Reykjavíkur leggja til að
markviss tannvemd verði hluti af almennri læknisskoðun
Qögurra ára baraa, en nú er engin skipulögð skoðun á
tannheilsu barna yngri en sex ára. ísland er hið eina af
Norðurlöndunum sem greiðir tannlækningar barna yngri
en sex ára ekki að fullu, heldur 75% af kostnaði, og er
talið hugsanlegt að sumir foreldrar bíði með að fara með
böra sín til tannlæknis af þeim sökum.
Könnun þessi var gerð af þeim
W. Peter Holbrook og Magnúsi
Kristinssyni, og segja þeir niður-
stöðuna betri en búist var við.
Hlutfall bama með enga skemmda
tönn var 45% hér á íandi, sem er
svipað og á hinum Norðurlöndun-
um. Hins vegar er þar nær óþekkt
að 4 ára böm séu með fleiri en
3-4 skemmdar tennur, en í könn-
uninni hér voru nær 5% bamanna
með 8 skemmdar tennur og dæmi
var um bam með 15 skemmdar
tennur. 70% af Öllum skemmdum
í hópnum var að fínna í aðeins 27%
bamanna. Ekki hafði verið gert
við tvo þriðju hluta hinna
skemmdu tanna í bömunum. Við
sex ára aldur er dæmigert
reykvískt bam þegar komið með
einn skemmdan fullorðinsjaxl.
Stefán Finnbogason, yfírmaður
skólatannlækninga í Reykjavík,
telur mikla og tiða sykumeyslu
íslenskra bama vera eina af orsök-
um þess að svo mörg böm eru
með fjölda skemmdra tanna. Böm
sem neyta sælgætis og sætmetis
30 sinnum á viku og sjaldnar eru
Útvegsbankinn
bauð hæst í Við
sjávarsíðuna
Útvegsbanki íslands hf átti
hæsta tilboð, 6,5 milljónir króna,
í þann hluta Hamarshússins við
Tryggvagötu, sem hýst hefur veit-
ingahúsið Við sjávarsíðuna, og
seldur var á 3. og siðasta nauðung-
aruppboði á miðvikudag. Upp-
boðshaldari tók sér 14 daga frest
til að ákveða hvort tilboðinu verð-
ur tekið.
Rekstri Við sjávarsíðuna hefur
verið hætt og hinn 7. þessa mánaðar
gerðu eigendur húsnæðisins, Egill
Kristjánsson og Garðar Halldórsson,
leigusamning til 5 ára við Guðvarð
Gíslason veitingamann sem þar
hyggst reka veitingastað undir nafn-
inu Jónatan Ldvingston mávur.
Samningnum var þinglýst hinn 18.
þ.m.. Lögmaður Guðvarðar, Ragnar
með færri en tvær skemmdar
tennur, en böm sem neyta sykurs
í 45 skipti á viku em með 8
skemmdar tennur. Burstun tanna
með flúortannkremi er einnig mjög
mikilvægt atriði og böm sem nota
flúortöflur eru að meðaltali með
1,1 skemmda tönn, á móti 2,8 hjá
hinum.
Tannskemmdum hefur almennt
farið fækkandi hjá íslenskum
börmum og unglingum hin síðari
ár, þó að sú þróun sé mun hægari
en á hinum Norðurlöndunum. Þar
eru tólf ára gömul böm að meðal-
tali með færri en tvær skemmdar
tennur, sem Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin hefur sett sem viðunandi
mörk, en reykvísk æska hefur náð
að skemma í sér 4,14 fullorðins-
tennur á sama tíma. Fyrir þremur
árum var þessi tala 6,65 I
Reykjavík og nokkrum ámm áður
6,8. Þá var samsvarandi tala fyrir
ísland allt 8 skemmdar tennur í
hverju tólf ára bami, þannig að
búast má við að tannskemmdir séu
algengari utan Reylgavíkur.
Rás 1:
Aldraðir eru
tryggir hlust-
endurbarna-
tímans
Útvarpshlustendur á aldr-
inum 61-75 ára eru tryggir
aðdáendur barnaefnis Rásar
1, ef marka má nýja fjöl-
miðlakönnun Félagsvísinda-
stofnunar Háskólans. Um
fjórðungur þessa aldurshóps
hlustaði á “litla barnatí-
mann“ og “bamaútvarpið" á
Rás 1 miðvikudaginn 19.
október.
í könnunninni kemur fram
að 23% fólks í elsta aldurs-
hópnum hlustaði á þessa dag-
skrárliði. í aldurshópnum 40-60
ára hlustuðu 10% á litla bamat-
(mann og 6% á bamaútvarpið.
Enn færri á aldrinum 25-45 ára
hlustuðuá þessa liði. í yngsta
aldurshópnum sem könnunin
náði til, 15-25 ára, hlustaði
aðeins 1% á hvom þáttinn.
Yngstu hlustendumir, undir
15 ára, voru hins vegar ekki
spurðir. Búast rriá við að þeir
hefðu slegið út afa sína og
ömmur hvað áhuga á bama-
efninu snertir.
Tómasson, átti næst hæsta tilboð á
uppboðinu, 6,1 milljón króna.
Áður en uppboðið hófst ráðlagði
Jónas Gústavsson uppboðshaldari
Guðvarði, sem ólöglærðum manni,
að gera ráð fyrir þeim möguleika að
kaupandi sæi sér hag í að krefjast
riftunar leigusamningsins fyrir dóm-
stólum á þeim forsendum að um
málamyndageming væri að ræða.
Að sögn Odds Ólasonar lögmanns
Útvegsbankans lítur bankinn þennan
samning þó mildum augum, einkum
í ljósi þess hve lítil eftirspum er um
þessar mundir eftir atvinnuhúsnæði
í borginni. Sagði hann dæmi þess
að bankinn sæti uppi með atvinnu-
húsnæði sem hann hefði eignast með
þessum hætti, þar sem enginn vildi
nýta það.
Aðstaða veitingahússins er í 9,63
hundraðshlutum hússins og um 200
fermetra stórt. Brunabótamat hlut-
ans er 18 milljónir en að sögn Odds
er meta fasteignasalar markaðsverð
um helming brunabótamats. Er þá
miðað við venjuleg greiðslukjör á
almennum markaði. Eignir, seldar
nauðungasölu, eru venjulega greidd-
ar að V< við samþykkt tilboðs og
afgangur innan 2 mánaða. Kröfur
Útvegsbankans námu um 3 milljón-
um. Oddur Ólason sagði að sér sýnd-
ist i fljótu bragði að söluverð myndi
nægja að mestu til greiðslu á kröfum
aðila sem krafist höfðu uppboðsins.
Fjöldaupp-
sagnir enn
á döfínni
BORIST hafa upplýsingar til fé-
lagsmálaráðuneytisins um að enn
sé að vænta Qöldauppsagna í lok
mánaðarins.
Óskar Hallgrímsson sagði að sér
hefðu borist upplýsingar um, að upp-
sagna væri að vænta hjá þremur
fyrirtækjum, sem hann sagðist ekki
geta nafngreint. í tveimur tilvika
væri um að ræða nokkra tugi manna
sem sagt verður upp. Annað fyrir-
tækið mun hugsaniega endurráða,
en hitt dæmið sagði hann vonlaust.
Þessar uppsagnir eiga að gilda frá
næstu mánaðamótum.
Fjölda skartgripa stolið úr peningaskáp:
Verðmætið nemur
hundruðum þúsunda
BROTIST var inn i gullsmíða-
stofti og verslun Þorgrims Jóns-
sonar að Laugavegi 20b, Klapp-
arstigsmegin, i fyrrinótt. Þaðan
var stolið (jSlda skartgripa og
nemur verðmæti þeirra hundruð-
um þúsunda króna. Þá var stolið
glösum með sýru, sem er
li&hættuleg.
Þjófurinn hefur farið inn í húsið
bakdyramegin, inn á gang og þaðan
inn í gullsmíðastofuna og verslun-
ina. Þar tókst honum að ná bakinu
af peningaskáp og stela úr honum
fjölda demantsskrejrttra gullhringa.
Einnig hurfu nokkur gullhálsmen
og nokkuð af brotagulli. Ekki er
endanlega ljóst hversu mörgum
skartgripum var stolið, en verð-
mæti þeirra skiptir þó hundruðum
þúsunda króna. Loks tók þjófurinn
með sér þijú lítil glös með sýrum,
sem notaðar eru við gullsmlðar.
Sýrur þessar eru lífshættulegar.
Rannsóknarlögregla rfkisins
vinnur að lausn málsins. Þeir sem
hafa orðið varir við mánnaferðir við
gullsmíðastofuna að Laugavegi 20b
aðfaranótt föstudagsins eru beðnir
um að gefa sig fram.