Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
21
Ráðstefna um hlutverk
bókasafiia og lestur bóka
Rúmlegfa 100 þátttakendur
voru á ráðstefhu um hlutverk
bókasaftia og lestur bóka, sem
haldin var í Viðeyjarstofu 20.
október sl. Þar voru fluttir fyrir-
lestrar og fóru fram umræður
um ýmislegt það er lýtur að
starfsemi bókasafiia og notkun
bóka tíl fræðslu og afþreyingar.
í lok ráðstefhunnar var sam-
þykkt ályktun þar sem skorað
er á öll sveitarfélög Iandsins að
greiða lögbundið framlag til
bókasafiia.
í ályktuninni segir orðrétt:
„í litlu samfélagi eins og okkar
gegna bækur sérstöku og veiga-
miklu hlutverki. Við erum miklu
háðari bókum en stærri þjóðir,
vegna þess að það er auðveldara
og ódýrara fyrir okkur að nota
íslenskar bækur til fræðslu, kennslu
og afþreyingar en ýmsa aðra miðla.
Bækur eru því og verða helsta stoð
íslenskrar tungu og menningar.
í bókum má fínna flest það sem
ungir og aldnir sækjast eftir að
fræðast um og fá reynslu af.
Hvers konar efni er að jafnaði
auðveldara að nálgast á bók en í
öðrum fjölmiðlum. Upplýsingar og
reynslu, sem bækur geyma er hægt
að nota hvar og hvenær sem er.
Formlegt fræðslustarf einkaaðila
og hins opinbera byggist einkum á
bókum, og möguleikar fólks til að
stunda sjálfsnám eru einnig háðir
því að viðeigandi bækur séu tiltæk-
ar.
Flestir fræðimenn og skáld, og
aðrir þeir sem eitthvað hafa að
segja, munu notfæra sér bækur um
ófyrirsjáanlega framtíð.
Ráðstefnan skorar á öll sveitarfé-
lög landsins að greiða jafnan lög-
bundið framlag til almennings-
bókasafna og á ríkisvaldið að
styrkja skólabókasöfn betur og
verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að
láta bækur ekki bera söluskatt
umfram aðra ijölmiðla."
Sigluqörður:
Óvíst um bætur
vegna skíðalyftunnar
Málaferli hugsanleg
STEFNT er að því að koma
skíðalyftu SigluQarðar í lag
fyrir veturinn, að sögn Þráins
Sigurðssonar bæjartæknifræð-
ings, en hún skemmdist í snjó-
Ættfræðiskólinn:
Ættfræði-
námskeið
að heQast
ÆTTFRÆÐISKÓLINN mun á
næstu vikum hefja ný námskeið
í ættfræði. Byijendanámskeið
munu hefjast í næstu viku.
Framhaldsnámskeið munu síðan
heflast eftir áramót fyrir þá sem
sótt hafa byijendanámskeiðin.
Kennd verða helstu undirstöðuatriði
ættfræðirannsókna, gerð framætta
eða áatala svo og gerð niðjatala.
Aðgangur er að einu stærsta heim-
ildasafni landsins í ættfræði. Nem-
endur munu rekja sínar eigin ættir
og leggja grunn að niðjatali.
Innritun í fyrstu námskeiðin er
hafín. '
Leiðbeinandi er Þorsteinn Jóns-
son.
(Úr fréttatilkynningu)
flóði í vetur leið.
Áhöld eru um hvort eigandi lyft-
unnar fær tryggingabætur vegna
skemmda er snjóflóð olli. Lyftan
hefur verið brunatryggð hjá Sam-
vinnutryggingum undanfarin ár,
og þar sem það iðgjald hefur ver-
ið greitt telja heimamenn sig eiga
kröfu á hendur Samvinnutrygg-
ingum. Hluti brunatryggingaið-
gjalda af mannvirlgum rennur til
Viðlagatryggingar Islands, sem er
ætlað til að bæta tjón af völdum
náttúruhamfara. Viðlagatrygging
neitar að greiða bætur og telur
að Samvinnutryggingar hafí ekki
mátt brunatryggja lyftuna. Að
sögn Héðins Emilssonar hjá Sam-
vinnutryggingum hefur fyrirtækið
tryggt skíðalyftur fyrir Ijóni af
völdum eldsvoða og eldinga enda
munu vera dæmi um slíkt tjón.
Þá telja Samvinnutryggingamenn
með öllu ófært að ekki sé unnt
að tiyggja mannvirki sem skíða-
lyftur. Að sögn Héðins virðist
stefna í dómsmál milli eiganda
skíðalyftunnar á Siglufírði og Við-
lagatryggingar Islands.
Verkfræðistofa Siglufjarðar
metur tjónið tæpar 3,7 milljónir
króna. Nú verið að steypa undir-
stöður fyrir efri hluta lyftunnar,
og vonast er til að hún verði tilbú-
in fyrir veturinn.
TIL SÖLU Á MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI:
SJÁLFVIRKUR STÁFLARI
SJÁLFVIRKUR BRETTAVEFJARI
MALARHARPA
1) Sjálfvirkur staflari fyrir sekki (palletizing robot) af gerðinni Lopamat fram-
leiddur af Osmeka f Þýskalandi. Tœkið getur staflað allt að 10 sekkjum á
mínútu, sendir brettið frá sér og tekur nýtt úr 10 bretta magasíni, algjörlega
sjálfvirkt. Staflarinn getur geymt 14 mismunandi röðunarmynstur. Röðunar-
mynstur er lesið inn með því að stafla á 1 bretti handvirkt og síðan hermir
staflarinn eftir því, ForritunarKunnátta er þvf
óþörf við notkun stafiarans.
Tœk|ð er af árgerð 1987 og hefur aðeins verið
notað f 1 mánuð.
Verð: 3.8 mlllj. (Verð á nýju
tœkl: 5.0 millj.)
2) Sjálfvirkur brettavefjari, frá Strachan Henshaw Machinery f
Bretlandi, sem vefur bretti með strekkifilmu sem bœði ver
vöruna og festir hana á brettið. Vefjarinn er útbúinn með for-
strekkingu á filmuna, sem gerir hana sterkari og sparar efni.
Strekkifilma heldur vörunum öruggar saman og við brettið en
borði (strap) og krumpuhettur og er ódýrari. Tœkið er af ár-
gerð 1987 og hefur aðeins verið notað í 1 mánuð.
Verð: 1.5 millj. (Verð á nýju taeki: 2.0 millj.)
3) (1 +2) eru í dag samtengd og mynda línu, ásamt poka-
veltara, sem leggur sekkina á hliðina, og rúllubrautum sem safna
upp 5 brettum og flytja sjálfvirkt til þegar þretti er tekið
þannig að brettin rekast ekki saman.
Verð á Ifnunni (1 +2+3): 6 mlllj.
4) Malarharpa af gerðinni Finlay Hydrascreen frá írlandi. Harpan er af árgerð
1987 og hefur aðeins verið notuð í c.a.
þrjá mánuði. Vél er Lister 3cyl 15 kw.
Fœriband og harþa eru vökvadrifin.
Hörpukassinn er 125 x 240 tvö dekk.
Hœð og halli stillt með vökva. Síló er
c.a. 10 m3, 3.5 m á breídd og
með rist.
Verð 1.1 millj. (Verð á nýju tœki:
1.5 mlllj.)
ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR VEITIR
ÓLAFUR í SÍMA 680066
••
m T0KUM EKKIÞATTIVERÐST0ÐVUN!!!
VIÐ LÆKKUM VERÐIÐ
Dæmi:
Bamaúlpur og -gallar............kr. 990
Dömu- og herraúlpur.............kr. 1.290
Barnapeysur.....................kr. 690
Dömu- og herrapeysur.....'......kr. 990
12 manna kaffistell.............kr. 950
12 manna matarstell.............kr. 1.490
Leðurkuldastígvél..............,kr. 1.990
Reimaðir leðurkuldaskór.........kr. 1.500
ÓTRÚLEGT VERÐ Á TILBOÐSKÖSSUM
DÆMI: Skór á kr. 100
Buxur á kr. 50
ÓDÝRIMARKAÐURINN
í KJALLARA DOMUS, Laugavegi 91.
Opið daglegakl. 13-18
Laugardaga kl. 10-14.