Morgunblaðið - 30.10.1988, Page 61
61
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
mennafélagi Selfoss og stofnaði
árið 1961 Sunddeild UMF-Selfoss
ásamt Herði S. Óskarssyni og fleiri
góðum mönnum. Hann var fyrsti
formaður sunddeildarinnar og
gegndi því starfi samfellt í 11 ár.
Eg held að ekki sé ofsagt að það
sé ómælt það starf sem eftir Helga
og Hörð liggur á vettvangi sund-
deildar UMF - Selfoss. Helgi var
alls staðar hvetjandi og upplífgandi
þar sem sundíþróttin var til um-
fjöllunar. Helgi var ötull sjálfstæð-
ismaður og starfaði dyggilega að
framgangi flokksins á Selfossi.
Hann gekk í Rotaiyklúbbinn á
Selfossi og starfaði þar með félög-
um sínum um árabil.
Helgi var íþróttamaður um langt
árabil og lagði rækt við sundið. Sem
lítill drengur byijaði hann að fara
í laugamar með föður sínum, Björg-
vin, sem var góður leiðbeinandi
enda gamall sundkappi og hafði um
árabil lagtr sérstaka rækt við sund-
iþróttina. Helgi og Björgvin, faðir
hans, kepptu á mörgum sundmótum
á sínu besta skeiði i sundinu.
Það var Helga mikið ánægjuefni
að sonur hans, Tryggvi, skyldi feta
f fótspor þeirra feðga og leggja
sundíþróttina fyrir sig.
Nær daglega fór Helgi í sund og
synti nokkur hundruð metra og
hélt þannig við sundþjálfun sinni.
Hann var mikill útivistarmaður og
stundaði golfíþróttina hvenær sem
tækifæri gafet.
1981 fluttu Helgi og Unnur suð-
ur. Eftir að Helgi flutti suður réðst
hann í að stofna trésmifju í Hafnar-
firði ásamt syni sínum, Gunnari,
húsasmið. Rekstur trésmiðjunnar
gekk vel í fyrstu og byggðu þeir
feðgar flölda húsa. Þeir byggðu
myndarlega }rfír starfsemina í
Hafnarfírði og höfðu flölda manns
í vinnu. Þegar frá leið fór að syrta
í álinn í þessari iðngrein og óstöðug-
leiki í þjóðfélaginu varð þess vald-
andi að mörg fyrirtæki í þessari
grein urðu að hætta rekstri. Það
má segja að það hafi verið gæfa
Helga að bregðast rétt við aðsteðj-
andi vanda á réttum tíma. Enga
fyrirgreiðslu var að fá í bankakerf-
inu til að fjármagna byggingarstig
húsanna og húsnæðismálalánin
komu seint og um síðir. Fólk gat
hreinlega ekki staðið í skilum á
réttum tíma vegna vanefnda á lán-
um.
Ég dáist alltaf af heiðarleika og
hugrekki Helga á þessum erfiðu
tímum sem fóru í hönd. Það má
segja að Helgi hafí lagt allt í sölum-
ar til að forðast það, að fólk sem
átti viðskipti við þá hlyti skaða af
er starfsemin stöðvaðist. Helgi og
Gunnar unnu í heilt ár, kauplaust,
til að skila af sér verkefnum sem
voru ófrágengin. Allt þetta tók mjög
á Helga og fjölskyldu hans.
Helgi fór aftur að vinna við iðn-
grein sína og vann nú síðustu árin
sem rakari á Keflavíkurflugvelli.
Að leiðarlokum kveð ég mág
minn og góðan vin með söknuði og
óska honum Guðs blessunar f nýjum
heimkjmnum.
Unni, bömum og bamabömum
sendi ég innilegustu samúðarkveðj-
ur og bið Guð að blessa þau og
styrkja í sorg þeirra og söknuði.
Páll Andreasson
Blómmtofa
Fnðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tli kl. 22,- einnig um heigar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
V **
Á morgun, 31. október, er til
hinstu hvílu lagður mágur minn,
Helgj Björgvinsson hárskerameist-
ari, sem lést langt um aldur fram,
hinn 24. þessa mánaðar. Það er
furðulegt hvemig tilviljanir lífs og
dauða em, því dánardag Helga ber
upp á sama mánaðar og vikudag
og lát tengdamóður hans og móður
minnar, Elínar Pálsdóttur. En vegir
Almættisins em órannsakanlegir.
Sambandið á milli Helga og mömmu
var náið og gott enda vom foreldr-
ar mínir í sambýli með Helga og
Unni systur síðustu æviár þeirra
°g þjuggu þau saman á Tryggva-
götu á Selfossi, þar til faðir okkar
Unnar, Gunnar Kristjánsson lést
1980. Móðir okkar hafði þá verið á
sjúkrahúsi og vart hugsa ég að
betri og nærgætnari tengdason
hafi hún getað átt annan en Helga,
slík var upphyggja hans og ástúð
gagnvart henni, en hún lést 24.
október 1983.
Helgi var fæddur á jóladag 1934
í Reykjavík og ólst upp á Kirkjubóli
í Laugamesinu. Hann var sonur
Björgvins Vigfússonar og konu
hans, Ingibjargar Helgadóttur, sem
nú em bæði látin.
Helgi tók snemma ástfóstri við
sundíþróttina og var virkur og snjall
sundmaður allt til dánardægurs.
Mun hann hafa haft þennan áhuga
frá föður sínum, sem var mikill
íþróttamaður á sínum yngri ámm
og hlaut Björgvin margar viður-
kenningar fyrir afrek sín. Helgi
hvatti böm sín þegar á unga aldri
til þess að leggja rækt við sund-
íþróttina. Það bar þann árangur að
yngsti sonur hans, Tryggvi, varð
margfaldur íslandsmeistari í sundi
og keppti hann fyrir íslands hönd
í sundi á Ólympíuleikunum í Los
Angeles 1984. Helgi stundaði golf
um árabil og var mjög liðtækur
kylfíngur.
Helgi kvæntist systur minni,
Unni, 27. júlí 1956. Bjuggu þau
fyrstu búskaparár sfn f foreldrahús-
um okkar Unnar og þar fæddust
þeim tvö fyrstu bömin, Gunnar, sem
nú er trésmíðameistari og fram-
kvæmdasfjóri eigin fyrirtækis, og
Elín, matreiðslumeistari hjá Loft-
leiðum. Mér er það minnisstætt
þegar Gunnar var smábam og ég
var að hasast og gantast með hann,
þá sagði móðir mín að ég ætti eftir
að gera bamið alveg óviðráðanlegt
úr óþægð. En það er nú svo að ég
veit ekki hvor hlakkaði meira til,
ég eða hann, þegar ég kom heim
af sjónum. Ekki bætti úr skák þeg-
ar Kristján bróðir kom heim eftir
þriggja ára siglingu um öll heimsins
höf, þá held ég að þeirri gömlu
hafí verið allri lokið við aðfarir okk-
ar. En þó við göntuðumst með bam-
ið þá beið það nú ekki tjón af.
Arið 1958 fluttust Helgi og Unn-
ur austur á Selfoss þar sem Helgi
setti á stofn rakarastofu og síðar
verslun. Þau bjuggu fyrst á Bjargi,
sfðan á Austurvegi þar til þau
byggðu sér ágætt einbýlishús á
Birkivöllum og kom þá dugnaður
og ósérhlífni Helga best í ljós. 1973
keyptu þau svo hús við Tryggva-
götu ásamt foreldrum mínum og
bjuggu þar uns þau fluttu frá Sel-
fossi.
Á Selfossi fæddust þeim seinni
bömin tvö, Björgvin stýrimaður,
búsettur á Selfossi, og Tryggvi,
nemi í viðskiptafræðum við háskóla
í Bandaríkjunum.
Það gefur auga leið að sund-
áhugi Helga átti eftir að hafa áhrif
á unga sem aldna á Selfossi, enda
fór svo að Helgi varð aðaldriffjöðrin
í sundíþróttinni þar og hafa fyrir
hans áhuga og tilstuðlan mörg ung-
menni náð langt í íþróttinni. Árið
1981 fluttu þau hjónin til Hafnar-
§arðar þar sem þeir Helgi og Gunn-
ar sonur hans settu á stofn
trésmíðaverkstæði sem þeir ráku í
nokkum tíma. Helgi gérðist þá hár-
skeri hjá hemum á Keflavíkurflug-
velli.
Helgi var mjög félagslyndur
maður og átti því gott með að
umgangast fólk og varð þar af leið-
andi vinmargur. Hann var hrókur
alls fagnaðar og átti gott með að
koma fyrir sig orði þegar við átti.
Það er nú skarð fyrir skildi að
honum látnum og þung raun hjá
minni elskulegu systur og bömum,
tengdabömum og bamabömum
hennar. En ég veit að almættið mun
milda harm þeirra, en góður og
gegn maður mun ekki gleymast
eins og segir í Hávamálum.
Deyr fé,
dejja frændur,
deyr sjálfur Mð sama;
en orftetir
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Siggi.
Það er mismunandi, hve auðvelt
er að sætta sig við, þegar vinir og
félagar stíga á skipsfjöl, setja upp
segl, sigla og sjást ekki aftur, en
minningin ein er eftir. í dag sigla
menn á öllum aldri, en því yngri
sem menn ganga til skips og sigla,
því erfíðara eigum við vinir þeirra
með að sætta okkur við orðinn hlut.
Alltaf er það svo, að þegar góðir
drengir stíga á ijöl og sigla, koma
margra ára minningar upp í huga
vina sem ennþá standa og bíða fars.
Við sem höfðum dagiegt sam-
band við vin okkar og félaga Helga,
erum harmi slegnir við fráfall hans.
Helgi Björgvins var ekki einn þeirra
sem bar tilfinningar sínar á borð
annarra. Hann var fyrst og fremst
mjög ákveðinn persónuleiki, hafði
sínar skoðanir á hlutunum og lét
þær í ljós.
Fyrir rúmum 30 árum flutti hann
sig um set með unga konu að Sel-
fossi. Þar byggðu þau sér fagurt
heimili og það átti að verða þeirra
samastaður. Á Selfossi var ekki
bara þeirra lifíbrauð, því Helgi var
íþróttamaður af lífi og sál. Hér
verða ekki rakin öll hans auka-
störf, án þess að vera metin á þeim
tíma. Aðeins verður þó að geta
þess mikla starfs fyrir UMS Sel-
foss, Sunddeild Selfoss, Golfklúbb
Selfoss og hjónaklúbb Selfoss o.fl.
Hægt er að halda áfram og um
langan tíma héðan í frá, munu sjást
spor sem seint skefur í og fyllast,
bæði í menningar- og íþróttamál-
um, þar sem Helgi átti stóran og
jafnvel stærstan þáttinn í.
En þegar góður drengur er geng-
inn gleymist oft að geta samferða-
félaga, en eitt vitum við öll að „ber
er hver að baki nema sér bróður
eigi“. Konu átti Helgi góða, Unni
Gunnarsdóttur, sem ávallt studdi
við bak hans og hvatti fremur til
dáða, það þekkjum við vinir hans
vel.
Og menn sem stunda golf og
sund þeir sitja ekki alltaf heima,
en einmitt þetta tvennt var dálæti
Helga. Hvonigt gefur tilefni til
heimasetu. Á frídögum var það
golfíð sem átti Helga, en flesta þá
morgna, áður en mætt var á golf-
völlinn, var hann búinn með sína
200 hundruð metra í lauginni. Og
táknrænt er það að þessi góði
drengur stígur á skipsfjöl að af-
loknu 200 m sundi.
Síðastliðin 4 ár starfaði Helgi á
Keflavíkurflugvelli. Þar eignaðist
hann nýja og góða félaga ásamt
endumýjun á gömlum og góðum
félagsskap. Kaffísopi með vinum
og spjall í smástund fyrir vinnudag
gefur öllum sem hlut eiga að máli
uppörvun fyrir starf dagsins. Þar
er rætt um menn og málefni, veður
og fleira. Að loknu tali kallar vinn-
an, það á að talast við aftur í matar-
hléinu, — en nú verðum við að bíða
sem ekki höfum fengið farseðilinn
þar til hann verður í okkar hendi
lagður. Þangað til munum við rabba
saman og minnast góðs félaga.
Biðjum við þess að sá sem ræður
byr styðji og styrki konu hans og
böm, því þau eiga á bak góðum
eiginmanni og föður og umfram
allt góðum dreng að sjá,
Vinir og vinnufélagar á
Kefiavíkurflugvelli
Helgi verður jarðsunginn frá Laug-
ameskirkju á morgun, mánudaginn
31. okt., kl. 13.30.
LEGSTEINAR
mosaik h.f:
Hamarshöföa — Sími 681960
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VILBORG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Elnlbergl 17,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin mánudaginn 31. október kl. 13.30 frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði.
Þorbjörg Þorsteinsdóttir, Jón Fr. Jónsson,
Steinþóra Þ. Arndal, Slgurður Þ. Arndal,
barnabörn og barnabarnabörn.
OTRULEGT, satt
SKÓLAFÓLK - FYRIRTÆKI - STOFNANIR -
EINSTAKLINGAR - HEIMILI
FWÍewtri hi ?«*'SsASp""'
.
ESSS
WBS,
12 geröir og veröflokkar af AMSTRAD
PC-tölvum á tilboði sem ekki er hægt aö hafna.
DÆMI 1: AMSTRAD PC 1512/20MB harður diskur 14“ sv.hv.
skjár. Fjöldi fylgihluta og forrita t.d. MÚS, GEM,
RITV.ÁÆTLG., LEIKIR O.FL O.FL
Stór fsl. handbók og 30% afsl. ó 12 tfma PC-nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
OKTÓBERTILBO0 104.900,- 79.800,-
p----------------------——— ' ----->>
DÆMI 2: AMSTRAD PC 1640/20 MB harður diskur 14“ sv.hv.
hágæða skjár.
Innbyggt EGA, HERCULES OG CGA kort, fjöldi fylgi-
hluta og forrita.
Stór ísl. handbók og 30% afsláttur á 12 tíma nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
OKTÓBERTILBOÐ 121.800,' 99.800,-
ÓDÝRASTA AMSTRAD PC: 1 drif 14“ skjár aðeins
DÆMI 3: AMSTRAD PPC 512 ferðatölva/1 drif, 10“ skjár, AT-
lyklaborð, 5,4 kg.
OKTÓBERTILBOÐ; 59.9IOO,- 49.900,-
Kynntu þér AMSTRAD - Það er ekki að ástæðu-
lausu að AMSTRAD PC-tölvur eru mest seldu tölvur
í Evrópu í ár.
Ástæðurnar eru meðal annars: Fullkomlega IBM
samhæfðar + ríkulega útbúnar af fylgihlutum og for-
ritum + ótrúlega lágt verð= Lang bestu tölvukaupin.
GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI/ H5CE) RAÐGREIÐSLUR
Allt verð miðað við gengi 30. september og staðgreiðslu.
TÖLUULHND ~ HLEMMI
LAUGAVEGl 116 V/HLEMM S.621122