Morgunblaðið - 01.08.1991, Page 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
172. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 1. AGUST 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Miðausturiönd:
Bush boðar friðar-
ráðstefnu í október
James Baker til Jerúsalems í dag
Nikosíu, Moskvu. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi i Moskvu
i gær, að bandarísk og sovésk stjórnvöld væru sammála um að boða
til ráðstefnunnar um frið í Miðausturlöndum í október næstkom-
andi. Skoraði hann á ísraela að láta ekki tækifærið sér úr greipum
ganga og tilkynnti, að James Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, færi tíl ísraels í dag til að sækja svar við bandarísku tillög-
unum.
Líbanon, hafa fallist á tillögur
Bandaríkjastjórnar um friðarráð-
stefnuna en ísraelar vilja fyrst fá
tryggingu fyrir, að fulltrúar Pal-
estínumanna verði hvorki frá
Austur-Jerúsalem né úr PLO, Frels-
issamtökum Palestínumanna. Þá
hafa þeir lýst yfir, að þeir muni
ekki láta af hendi hernumdu svæð-
in, Golanhæðir, Vesturbakkann og
Gazasvæðið. Aðstoðarmaður Yitz-
haks Shamirs, forsætisráðherra
ísraels, ítrekaði svo í gær, að þessi
afstaða væri óbreytt.
PLO, Frelsissamtök Palestínu-
manna, hafa ekki tekið ákveðna
afstöðu til friðarráðstefnunnar í
ljósi þeirra skilyrða, sem Israels-
stjórn setur, en talið er, að ráða-
menn í ýmsum arabaríkjum leggi
hart að samtökunum að standa
ekki í vegi fyrir friðarviðræðum.
Á blaðamannafundinum í
Moskvu tilkynnti Bush, að James
Baker utanríkisráðherra færi til
Jerúsalems í dag í sinni sjöttu ferð
um Miðausturlönd. Mun hann þar
inna ísraelsstjórn eftir afstöðunni
til friðarráðstefnunnar en frétta-
skýrendur segja, að hún eigi varla
annarra kosta völ en samþykkja
hana.
Austurríki:
Styttistí
EB-aðUd
Brussel, Stokkhólmi. Frá Kristófer M.
Kristinssyni og Erik Liden, fréttariturum
Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins ákvað í gær að
mæla með því, að Austurríki
fengi aðild að bandalaginu en
búist er við, að formlegar við-
ræður hefjist þó ekki fyrr en
eftir tvö ár.
Frank Andriessen, sem fer með
utanríkismál í framkvæmdastjórn
EB, sagði á blaðamannafundi, að
engin andstaða hefði verið við að-
ildarumsókn Austurríkis enda væri
efnahagslíf landsins nú þegar sam-
ofið efnahagslífí EB-ríkjanna. Hann
taldi þó, að hlutleysisstefna Aust-
urríkismanna gæti valdið nokkrum
erfiðleikum.
Talsmenn allra sænsku stjórn-
málaflokkanna nema Umhverfis-
flokksins hvöttu í gær til, að Svíar,
Finnar og Austurríkismenn semdu
sérstaklega við EB og Ingvar Carls-
son forsætisráðherra sagði, að Svíar
yrðu líklega að fara sína eigin leið
þar sem viðræðurnar um Evrópska
efnahagssvæðið hefðu strandað á
fiskveiðihagsmunum íslendinga og
Norðmanna.
START-samningurinn um fækkun kjarnavopna undirritaður í Moskvu:
Bush og Gorbatsjov segja
sairniíngmn aðeins byijun
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins.
START-samningurinn um fækkun langdrægra kjarnavopna var undir-
ritaður við hátíðlega athöfn í Moskvu í gær af forsetum Sovétríkjanna
og Bandaríkjanna, Míkhaíl Gorbatsjov og George Bush. Samkvæmt
samningnum mnu Sovétmenn fækka langdrægum kjarnavopnum um
50% en Bandaríkjamenn um 35%. Þetta er í fyrsta sinn sem risaveldin
ná samkomulagi um að fækka kjarnavopnum í raun í stað þess að
selja fjölda þeirra aðeins hömlur. Forsetarnir sögðu báðir í gær, að
samningurinn væri upphaf á frekari niðurskurði kjarnavopna. Gorbatsj-
ov kvað þó fastar að orði en Bush.
„Þetta er byrjun — byrjun á því,
að Bandaríkin og Sovétríkin skeri
niður kjamorkuvopnaforða sinn,“
sagði Gorbatsjov í ræðu sinni við
undirritun samningsins. „Þetta er
heimsviðburður því að við erum að
rífa niður virki óttans, sem hefur
stjórnað heiminum. Afl þessa augna-
bliks er svo mikið, að það verður
erfitt að stöðva það.“
Forsetinn sagði, að búast mætti
við gagnrýni á samninginn, bæði frá
þeim, sem teldu of skammt gengið,
og hinum, sem vildu ekki fórna vopn-
unum. Báðar þjóðir yrðu því að veija
samninginn, hann væri bezta niður-
staða, sem náðst gat við núverandi
kringumstæður. „Það er mikilvægt
að menn eru í auknum mæli að gera
sér grein fyrir fáránleika þess að
eiga allt of mikið af vopnum nú þeg-
ar heimurinn er að færast í þá átt,
að hvert ríki verður öðru háð efna-
hagslega og upplýsingabyltingin hef-
ur leitt æ betur í ljós, að heimurinn
er einn og óskiptanlegur."
Litháen:
Sjö landamæraverðir myrtir
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. Reuter.
SEX litháískir landamæraverðir voru myrtir í gærmorgun í skýli
sínu á landamærunum við Hvíta Rússland og sá sjöundi lést síðar
af sárum sínum. Ekki er vitað hverjir unnu ódæðið en grunur leikur
á, að hér hafi verið að verki harðlínumenn, sem vilji spilla fyrir
fundi Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna, með George Bush
Bandaríkjaforseta. Gorbatsjov harmaði þennan atburð í gær og hét
tafarlausri rannsókn.
Komið var að mönnunum sex
látnum í gærmorgun en tveir landa-
mæraverðir að auki voru mikið
særðir og lést annar þeirra á sjúkra-
húsi. Þá var níundi vörðurinn horf-
inn. Á blaðamannafundi í gær
harmaði Gorbatsjov morðin og vott-
aði fjölskyldum hinna látnu samúð
sína. Sagði hann, að sovésk stjórn-
völd myndu ekki aðeins grípa til
aðgerða vegna atburðarins, heldur
reyna að koma í veg fyrir, að svona
atvik endurtækju sig.
Getum var að því leitt í Moskvu
i gær, að morðin á landamæravörð-
unum væri samsæri harðlínumanna
til að eyðileggja leiðtogafundinn
með George Bush Bandaríkjafor-
seta. Engan skugga virtist þó bera
á fundinn og sagði Bush á blaða-
mannafundinum, að hann vildi ekki
tengja morðin á neinn hátt yfirlýs-
ingum sínum um rétt Eystrasalts-
ríkjanna til frelsis.
George Bush kallaði samninginn
„meiriháttar skref framávið fyrir
gagnkvæmt öryggi okkar og málstað
heimsfriðari*. Hann sagði, að samn-
ingurinn væri sögulegt fyrsta skref
í fækkun kjarnorkuvopna. „Fækkun
vopna ein og sér er samt ekki nægj-
anleg. START gerir ráð fyrir enn
meiri niðurskurði hættulegustu
vopnanna, sem valda mestum óstöð-
ugleika,“ sagði Bush við undirritun-
ina. Á blaðamannafundi síðar um
daginn sagði hann, að þeir, sem
hefðu unnið stærstan sigur með und-
irrituninni, væri unga fólkið um allan
heim. „Við tökum þýðingarmikið
skref til að eyða hálfrar aldar gam-
alli tortryggni. Með því að byggja
upp traust, vörðum við veginn til
friðar," sagði forsetinn.
Bush og Gorbatsjov luku viðræð-
um sínum í Moskvu í gær. Þeir höfðu
þá ræðzt við í alls átta klukkustund-
ir, ýmist í einrúmi eða með ráðgjöfum
sínum. Báðir létu þeir vel af funda-
höldunum og sögðu gagnkvæman
skilning sinn hafa aukizt. Þeir gáfu
út sameiginlegar yfirlýsingar um
friðsamlega lausn deilna í Júgóslavíu
og Miðausturlöndum og boðuðu til
ráðstefnu um frið í þeim heimshluta
í október.
Opinberri heimsókn Bush til Sov-
étríkjanna lýkur í dag. Hann fer frá
Moskvu fyrir hádegi og til Kiev þar
sem hann mun eiga stuttan stanz
áður en hann heldur heim til Banda-
ríkjanna.
Sjá ennfremur fréttir af leið-
togafundinum á miðopnu.
Fundi George Bush Bandaríkjaforseta og Mlkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna, lauk í gær í
Moskvu með sameiginlegum blaðamannafundi. Hér takast þeir í hendur í fundarlok en fyrr um daginn
undirrituðu þeir START-samninginn um fækkun langdrægra kjarnavopna og bundu þar með enda á
vígbúnaðarkapphlaup síðustu 40 ára. Undir samninginn rituðu þeir með pennum úr málmi úr niður-
bræddum Pershing- og SS-20-eldflaugum.
Bandaríkjamenn hafa ekki áður
nefnt hvenær þeir vilja að friðarráð-
stefnan verði haldin en í síðustu
viku gáfu embættismenn skyn,
að Bush kynni að þrýsta á ísraela
með því að senda út formleg boð
um þátttöku þótt þeir væru ekki
búnir að gera upp hug sinn til henn-
ar. Á blaðamannafundinum með
Míkhafl Gorbatsjov, fórseta Sov-
étríkjanna, í Moskvu í gær sagði
Bush, að enn væri beðið svara ísra-
elsstjórnar en hann kvaðst skora á
hana að missa ekki af þessu sögu-
lega tækifæri til að koma á varan-
legum friði í Miðausturlöndum.
Arabaríkin, nágrannar ísraela,
Egyptaland, Jórdanía, Sýrland og