Morgunblaðið - 01.08.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991
19
Verksummerki eftir fyrstu sprenginguna.
Jarðgöng á Vestfjörðum:
Morgunblaðið/Úlfar
Sprengingar hafn-
ar í Tungudal
ísafirði.
FJOGUR þúsund tonn af bergi
voru sprengd í einni sprengingu
á mánudagskvöld, þegar spreng-
ingar hófust fyrir jarðganga-
munna í Tungudal í Skutulsfirði.
Þriggja manna vinnuflokkur und-
ir stjórn Bjarna Kristjánssonar ann-
aðist verkið. Við sprenginguna var
notað tæpt tonn af sprengiefni,
helmingurinn var dýnamit en hinn
helmingurinn Kjarni frá Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi.
Sprengingin á mánudagskvöldið
var liður í því að útbúa 11 metra
lóðréttan bergvegg, þar sem munni
ganganna verður. Áætlað er að
byrja á sjálfum göngunum í sept-
ember. Næstu daga verða hafnar
framkvæmdir við gangamunna í
Botnsdal í Súgandafirði og Breiða-
dal í Önundarfirði. Jafnframt verð-
ur unnið að því að leggja vegi að
munnunum og er vonast til þess
að því verki ljúki áður en snjóar
fara að teppa heiðamar í vetur.
Aðalverktaki við jarðgöng á
Vestfjörðum er Vesturís hf., sem
er í eigu ístaks og tveggja erlendra
verktakafyrirtækja. Fossvirki sér
hins vegar um þær framkvæmdir
sem nú standa yfir. Töluverður
hópur manna vinnur nú við vega-
gerð og undirbúning ganganna en
þegar kemur fram á veturinn verða
um 20 manns starfandi við ganga-
gerðina.
Úlfar
Suzuki Vitara
MINNI MENGUN
• Fullkomnasti mengunar-
útbúnaður sem völ er á
• Aflmikill - bein innspýting
• Lipur í akstri
• Beinskiptur/sjálfskiptur
• Eyðsla frá 8 I á 100 km
• Til afgreiðslu strax
Verð frá 1.438.000 kr.
$SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 685100
Allt að í O °/o afsláttur
Um verslunarmannaheigi:
Föstudagur 2. ágúst opið til kl. 20.
Laugardagur 3. ágúst lokað.
Mánudagur 5. ágúst lokað.
HAGKAUP
s4Cít í elcmc