Morgunblaðið - 01.08.1991, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991
A
Irak:
Eftirlitsmenn SÞ finna
mikið magn efnavopna
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
EFTIRLITSMENN Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) hafa fundið u.þ.b.
46.000 efnavopn eða hluta þeirra
í írak en þarlend stjórnvöld
höfðu sagt fjölda þeirra vera á
STJÓRNVÖLD í Króatíu sögðust
í gær ætla að koma á fót fleiri
bardagasveitum og auka viðbún-
að sinn til að vera við öllu búin
ef til stríðs kemur í Júgóslavíu.
Þessi ákvörðun var tekin þar sem
átök á milli króatískra þjóðvarðl-
Litháen:
Sjálfstæði Slóv-
eníu og Króat-
íu viðurkennt
Moskvu. Reuter.
LITHÁEN viðurkenndi á þriðju-
dag sjálfstæði júgóslavnesku lýð-
veldanna Slóveníu og Króatíu og
lagði um leið áherslu á sína eigin
baráttu fyrir sjálfstæði.
Tilkynning um viðurkenninguna
kom frá upplýsingaskrifstofu lit-
háíska þingsins á þriðjudag. Þar
kom skýrt fram að Litháar telja
sína eigin sjálfstæðisbaráttu eiga
margt sameiginlegt með baráttu
Slóvena og Króata. Sagt var að
stjórnvöld í lýðveldunum tveimur
væru með sjálfstæðisyfirlýsingum
sínum 25. júni sl. að framfylgja
vilja fólksins samkvæmt „alþjóðlega
viðurkenndum sjálfsákvörðunar-
rétti“.
Lögfræðingur Imeldu, James
Linn, sagði að hún hefði brostið í
grát og sagt að nú hefði hún verið
bænheyrð, þegar hún frétti að yfir-
völd á Filippseyjum hefðu veitt sér
leyfi til að snúa heim. Stuttu seinna
gaf hún þó út yfirlýsingu þar sem
hún sagði að ákvörðunin væri „ótrú-
leg og grimmileg" þar sem hún fær
ekki að taka jarðneskar leifar for-
setans fyrrverandi, Ferdinands
bilinu 11-12.000. Rolf Ekeus, sem
hefur yfirumsjón með eyðingu
íraskra vopna á vegum SÞ,
greindi frá þessu í gær. Meðal
vopnanna sem fundust eru
iða og serbneskra skæruliða hafa
færst í aukana á siðustu dögum.
Þetta var tilkynnt um sama leyti
og eftirlitsmenn á vegum Evrópu-
bandalagsins komu til Júgóslavíu
til að hafa umsjón með vopnahléinu
í gær. Þá stóð einnig til að leiðtog-
ar JÚgóslavíu kæmu saman í
Belgrad í annað skipti á tveimur
dögum til að ráða bót á ástandinu.
Forseti Króatíu, Franjo Tudjman,
hunsaði hins vegar neyðarfundinn
og Æðsta ráð Króatíu ásamt ýms-
um háttsettum mönnum tilkynnti
að til stæði að efla sveitir þjóðvarðl-
iða og lögreglu í Króatíu þar sem
mestu átökin hafa átt sér stað.
Á fundi sínum í gær hvöttu þeir
George Bush Bandaríkjaforseti og
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
stríðandi aðila í Júgóslvíu til að
hætta bardögum.
ÍBÚUM Kristjaníu í Kaupmanna-
höfn hefur verið gefinn frestur
Marcos, með sér til Filippseyja.
Linn sagði að ákvörðun Corazon
Aquino, forseta Filippseyja, um að
hleypa Imeldu til landsins væri
mannúðleg og að hún hefði komið
forsetafrúnni fyrrverandi á óvart.
Hann sagði að Imelda myndi vilja
halda sem fyrst af stað en undirbún-
ingurinn tæki sennilega eina 10
daga.
sprengjur, eldflaugar, hand-
sprengjur, skothylki og eld-
flaugaoddar, að sögn Ekeus.
Ekeus greindi einnig frá því að
írakar ættu 3.000 tonn af efnum
sem notuð eru til að framleiða
efnavopn, svokallaða undanfara,
en þeir höfðu aðeins sagst eiga
um 650 tonn.
Ekeus og Hans Blix, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar (IAEA), héldu
blaðamannafund eftir að hafa gefið
öryggisráði SÞ skýrslu um hvernig
miðar í að finna og eyða íröskum
vopnum.
Eftirlitsmenn SÞ fóru í rannsókn-
arleiðangur til geymslusvæðis ná-
lægt Samarra, norðvestur af
Bagdad, þar sem efnavopn eru
geymd, víða við hættulegar aðstæð-
ur. Ekeus sagði að 70 manna hópur
eftirlitsmanna færi þangað um
miðjan þennan mánuð og myndi
fínkemba svæðið á u.þ.b. sex vikum.
Hann sagði að stór hluti efnavopn-
anna væri fylltur með tiltölulega
hættulausu táragasi en samt sem
áður þannig að svo virtist sem það
ætti að nota í hernaðarlegum til-
gangi en ekki til að hafa hemil á
mannfjölda. Nokkrir eldflaugaodd-
ar voru fylltir með taugagasinu
sarin, sagði Ekeus.
Ekeus sagði að fyrsti efnavopna-
eftirlitshópurinn á vegum SÞ færi
til Iraks í þessari viku. Hann sagði
að þá kæmi í ljós hvort yfírlýsing
íraka um að þeir framleiddu engin
efnavopn væri sönn.
til 1. október að koma á lögum
og reglu í „fríríkinu". Þingmað-
urinn Poul Quist Jorgensen sagði
í viðtali við dagblaðið Jyllands-
posten að ef fresturinn yrði ekki
virtur þá yrði að grípa til þess
ráðs að loka hverfinu.
Ástæðan fyrir því að nú er á ný
farið að tala um að loka Kristjaníu
er bréf frá aðstoðarlögreglustjóra
Kaupmannahafnar til dómsmála-
ráðherrans. Aðstoðarlögreglustjór-
inn tók saman lista fyrir ráðherrann
um allt það sem lögreglan gerði
upptækt í Kristjaníu á síðustu sex
mánuðum.
Á listanum er m.a.: 228 kíló hass,
fjögur kíló hassplöntur, eitt kíló
marhíjúana, 32 hnífar, tvær
skammbyssur, 1.031 skothylki, ein
handsprengja, tvær kylfur, 2,1
milljón danskar krónur og 86.000
norskar krónur.
Þetta finnst aðstoðarlögreglu-
stjóranum vera „allsendis óviðun-
andi ástand“.
------*-M--------
■ NÝJU DELHI - Óttast er að
yfir 700 manns hafi farist í Ind-
landi á þriðjudag þegar áin Ward-
ha flæddi yfir bakka sína og færði
í kaf 1.500 manna þorp nærri borg-
inni Nagpur.
-----------------
Grænland:
Leyfa veiðar
400 sauðnauta
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréita-
ritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landsstjórnin
hefur leyft veiðar 400 sauðnauta
frá 1. ágúst til 25. september.
Veiðimenn í Maniitsok mega
veiða 300 naut og veiðimenn í Sis-
imiut 100. Sveitarstjórnir á þessum
stöðum eiga að skipta kvótanum
niður á milli veiðimanna sem hafa
veiðar að aðalatvinnu.
Júgóslavía:
Króatar fjölga bar-
dagasveitum sínum
Belgrad, Moskvu. Reuter.
Reuter
Stjórnvöld á Filippseyjum hafa veitt Imeldu Marcos, fyrrverandi
forsetafrú, leyfi til að snúa heim.
Filippseyjar:
Imelda Marcos fær
að snúa aftur heim
New York. Reuter.
IMELDU Marcos, fyrrverandi forsetafrú á Filippseyjum, hefur verið
veitt leyfi til að snúa aftur til eyjanna eftir rúmlega fimm ára útlegð
í Bandaríkjunum, en henni til sárra vonbrigða fær hún ekki að taka
með sér jarðneskar leifar bónda síns, Ferdinands Marcos, sem lést
á Filippseyjum árið 1989.
Kaupmannahöfn:
Ibúar Kristjaníu verða að
koma á lögum o g reglu
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Sviss er þekkt fyrir náttúrufegurð sína og skíðalönd. Hér sést
hinn tignarlegi Matterhorn-tindur gnæfa yfir fjallabæinn Zer-
matt.
Sviss:
700 ára bandalag
gegn afskiptum
erlendra drottnara
cftir Önnu Bjarnadóttur.
SVISS er 700 ára í ár og af mælið verður haldið hátíðlegt með
einum eða öðrum hætti út um allt land í dag, 1. ágúst, á þjóðhá-
tíðardegi ríkisins. 50 metra hár bálköstur verður brenndur í
Utzensdorf, 700 fermetra svissneskur fáni prýðir sléttlendi við
rætur fjallsins „Birre“ við Kandersteg og sljórn Hallwil býður
öllum íbúum bæjarins, 200 talsins, á siglingu um Hallwilersee —
svo eitthvað sé nefnt. Svissneska ríkissljórnin heldur upp á dag-
inn ásamt fjölda gesta á Rutli-engi, svokölluðum fæðingarstað
Sviss, og í bænum Schwyz. Þar verða haldnar ræður og stórafmæl-
inu fagnað fram á nótt.
Svisslendingar ákváðu eftir
miklar vangaveltur að gera ekki
alltof mikið úr afmælinu. Þeir eru
lítið fyrir að hugsa stórt og sýnast
miklir fyrir öðrum. Þeir ákváðu að
láta kantónurnar 26 og sveitarfé-
lög þeirra fyrst og fremst um að
halda upp á afmælið en þjóðin
stendur þó einnig saman að fjölda
sýninga og skemmtana í tilefni
stórafmælisins.
Ein besta gjöfin sem hún gaf
sjálfri sér er göngustígur sem kall-
aður er „Vegur Sviss“ og liggur
meðfram Urner-vatni. Hann er 35
km langur og skiptist í kafla sem
eru nefndir eftir kantónunum.
Lengd hvers vegarkafla fer eftir
íbúaflölda kantónanna en þeir eru
í sömu röð og kantónumar gengu
í svissneska bandalagið. Göngu-
stigurinn er svo vinsæll að það
hefur verið kvartað undan örtröð
á honum. Almenningur var því
minntur á að vegurinn mun vera
áfram þótt afmælisárið líði og eng-
in þörf á að ganga endilega um
hann í ár.
Upphaf göngustígsins er á Rutli.
Sagan segir að fulltrúar elstu kant-
ónanna þriggja, Schwyz, Uri og
Unterwalden, hafi komið þar sam-
an fyrir 700 árum, rétt þijá fingur
(þumalfingur, vísifingur og löngu-
,töng) upp til himna og svarið þess
eið að standa saman gegn ágengni
erlendra drottnara og dómara um
ókomna framtíð og sjá um sín mál
sjálfir. Þeir áttu fyrst og fremst í
höggi við Habsborgara og voru
búnir að fá sig fullsadda af þeim
og fógetum þeirra. Þeir gerðu
skriflegan samning, sem hefur
varðveist, um bandalag sín á milli
í byijun ágúst 1291 og til þessa
bréfs rekja Svisslendingar sögu
sína. Svæðin í kringum kantónurn-
ar þijár gengu smátt og smátt til
liðs við þær og Sviss — sambands-
ríki 6 milljóna á mótum þriggja
evrópskra menningarsvæða þar
sem fjögur tungumál eru töluð —
byggist enn á bandalagi íbúa þess
gegn stórþjóðunum í kring.
Raddir heyrast nú um að sviss-
neska bandalagið hafi gengið sér
til húðar og endalok Sviss séu í
sjónmáli. Sumir telja þjóðfélagið
farið að rotna innan frá. Stór hluti
menningarvita neitaði til dæmis
að taka þátt í afmælishátíðarhöld-
unum vegna spjaldskrár og njósna
sambandsstjórnarinnar um
„grunsamlega“ borgara, margir
eru miður sín vegna leynilegrar
hersveitar sem átti að veita and-
spyrnu ef landið yrði hertekið og
hneykslið í kringum fyrsta kven-
ráðherrann, sem varð að segja af
sér sem dómsmálaráðherra af því
að hún varaði mann sinn við rann-
sókn á málum sem tengdust hon-
um, gleymist seint. En stór meiri-
hluti íbúa landsins er sáttur við
að vera svissneskur. Það felur í
sér beint lýðræði og sjálfstjórn sem
þekkist ekki annars staðar í Evr-
ópu, auk þess sem velmegunin er
mikil og lífsskilyrðin góð.
Reyndar skiptir það Svisslend-
inga meira máli hvaðan úr Sviss
þeir eru en að þeir séu frá Sviss.
Sviss sem slíkt skipti meginmáli í
heimsstyijöldinni síðari þegar stríð
geisaði allt í kringum það og það
komst hjá innrás en yfirleitt hugsa
þeir meira um kantónuna sina og
sveitarfélagið en sambandsríkið.
Það er í anda upphaflega banda-
lagsins sem þeir gerðu með sér
fyrir 700 árum. Þá ákváðu þeir
að standa saman gegn afskiptum
annarra svo að þeir gætu hagað
málum sínum að eigin geðþótta.
Nú standa þeir frammi fyrir Evr-
ópubandalaginu og hugsanlegri
aðild að því. Það er ljóst að það
borgar sig fyrir þjóðina efnahags-
lega að ganga í bandalagið eða
gera við það samning um Evrópskt
efnahagssvæði. En það er mögu-
leiki áð sjálfstæðishyggjan í þess-
ari þjóð sé svo sterk að hún geti
ekki hugsað sér nú, frekar en fyr-
ir 700 árum, að beygja sig fyrir
því sem hún álítur vera erlenda
drottnara og dómara í Brussel.