Morgunblaðið - 01.08.1991, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991
Rétt ákvörðun sjáv-
arútvegsráðherra
orsteinn Pálsson, sjávar-
útvegsráðherra, gerði í
fyrradag grein fyrir ákvörð-
un sinni varðandi aflaheim-
ildir fyrir næsta veiðitímabil.
Niðurstaða ráðherrans var
að fara mjög nálægt tillögum
Hafrannsóknastofnunar,
raunar svo mjög, að forstjóri
stofnunarinnar, Jakob Jak-
obsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að sjald-
an, ef nokkru sinni hefði
verið tekið svo mikið tillit til
tillagna Hafrannsóknastofn-
unar.
Þessi ákvörðun Þorsteins
Pálssonar er rétt. Afleiðingar
hennar verða að öllu óbreyttu
milljarða samdráttur í út-
flutningstekjum þjóðarinnar.
Þegar Þorsteinn Pálsson til-
kynnti ákvörðun sína í fyrra-
dag sagði hann m.a.: „Sjáv-
arútvegurinn þarf að mæta
mjög miklum þrengingum á
næsta fiskveiðiári, því áætl-
að er, að verðmæti botn-
fiskaflans minnki um 10-12%
á milli ára, sem þýðir 7-8
milljarða króna samdrátt í
útflutningstekj um. “
Samt sem áður var óhjá-
kvæmilegt að taka þessa
ákvörðun. Við íslendingar
eigum alla afkomu okkar
undir fiskistofnunum á
fiskimiðunum í kringum
landið. Við getum ekki leyft
okkur að taka nokkra áhættu
varðandi þá. Hafrannsóknir
eru að vísu ekki nákvæm
vísindi og úr ýmsum áttum
er deilt hart á fiskifræðinga
okkar vegna tillagna þeirra
og vinnubragða. Þeir, sem
lýst hafa öðrum sjónarmið-
um hafa hins vegar ekki
sannfært fólk með málflutn-
ingi sínum. Það á bæði við
um þá sérfræðinga, sem hafa
lýst öðrum skoðunum en sér-
fræðingar Hafrannsókna-
stofnunar , skipstjóra, sjó-
menn og aðra, sem hafa lát-
ið til sín heyra. Þess vegna
eigum við ekki annarra kosta
völ en að fylgja ráðum fiski-
fræðinga okkar.
Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, hefur gagnrýnt
sjávarútvegsráðherra fyrir
þá ákvörðun, sem hann hefur
tekið. Sú gagnrýni hefur hins
vegar ekki verið byggð á
áþreifanlegum rökum. Raun-
ar rnátti skilja orð formanns
LÍÚ á þann veg, þegar
skýrsla Hafrannsóknastofn-
unar kom fram, að hann teldi
nauðsynlegt að taka ríkt til-
lit til hennar. Hið sama má
segja um afstöðu Farmanna-
og fiskimannasambandsins.
Tillögur þeirra samtaka hafa
ekki byggzt á þeim rökum,
að veijandi væri fyrir sjávar-
útvegsráðherra að ganga
lengra til móts við þær tillög-
ur og hugmyndir LÍÚ en
hann gerði.
Umræður um skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar og
skiptar skoðanir um þessi
málefni undirstrika hins veg-
ar nauðsyn þess, að rann-
sóknir á fiskistofnum á haf-
inu við ísland verði efldar
að mun. í núverandi kerfi
felst mikið vald fyrir Haf-
rannsóknastofnun og starfs-
menn hennar. Vel má vera,
að skynsamlegt geti verið að
byggja upp þekkingu á þessu
sviði annars staðar í okkar
þjóðfélagskerfi, þannig að
tækifæri gefist til að bera
saman skoðanir sérfræðinga
hjá t.d. tveimur stofnunum.
Þess vegna eru þær hugleið-
ingar formanns LÍÚ alls ekki
fráleitar að byggja slíka
þekkingu upp annars staðar.
Um það sagði Kristján Ragn-
arsson í samtali við Morgun-
blaðið í gær: „Þess eru dæmi
erlendis, að samtök á borð
við okkar hafi fiskifræðinga
í vinnu. Ef til vill væri rétt
af okkur að ráða fiskifræðing
til þess, að við töluðum
a.m.k. sama tungumál og
Hafrannsóknastofnun. “
Þetta er vissulega umhugs-
unarefni, þótt æskilegra væri
að slík starfsemi væri á veg-
um sjálfstæðrar stofnunar
en á skrifstofum LÍÚ, þótt
hagsmunasamtök í sjávarút-
vegi gætu átt þar hlut að
máli.
En eins og mál standa nú
hefur Þorsteinn Pálsson tek-
ið erfiða en rétta ákvörðun.
Vonandi verður hún til þess
að betur gangi að byggja upp
fiskistofnana við ísland en
tekizt hefur fram að þessu.
Forsetafri
Vel fer á með Barböru Bush, eiginl
Gorbatsjovu, eiginkonu forseta Sovét
mönnum þeirra. Á myndinni sjást þí
kvöldverðar á þriðjudagskvöld.
George Bush á fum
Leiðtogí
iraðski
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamann
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti átti morgunverðarfund með
sovézkum kaupsýslumönnum í
gærmorgun á Radisson-hótelinu
í Moskvu. „Alls staðar heyrum
við raddir karla og kvenna, sem
þrá frelsi — tækifæri til að vera
eigin gæfu smiðir — að uppskera
eins og þau sá,“ sagði forsetinn.
„Sumir kalla það ameríska
drauminn, en í raun er það
draumur alls heimsins. Og það
er draumur, sem sovézka þjóðin
er nú sjálf að reyna að láta ræt-
ast.“ Forsetinn þagnaði smá-
stund, vék síðan frá skrifuðum
texta sínum og sagði: „Eftir fund-
ina hér tel ég að leiðtogarnir séu
að byrja að skilja þetta hugtak."
Bush sagði að um allan heim
hvíldi fijálst þjóðfélag á tveimur
stoðum; pólitísku og efnahagslegu
fijálsræði. Hann talaði um anda
lýðræðislegs kapítalisma og sagði
að Rússar yrðu sjálfir að skilgreina
sína tegund kapítalisma, sem væri
í samræmi við rússnesk gildi og
menningu.
„Rússneskar hefðir og gildi eru
samrýmanlegar fijálsu framtaki og
þið ættuð að varðveita þær,“ sagði
Bush. „Lítið á sjö öflugustu iðnríki
heims. Öll eru þau iðnvædd lýðræð-
isríki, hvert og eitt með eigin gildi
og hefðir. Menning og andrúmsloft
í'bandarísku viðskiptalífi kann að
vera öðruvísi en annars staðar, en
afl hugmyndarinnar er það sama
um alla veröld. Milljónir manna um
allan heim hafa beitt því á þúsund
vegu. Þeir, sem njóta velgengni
hér, ættu ekki að vera kallaðir niðr-
andi nöfnum eins og „spákaup-
menn“ eða „arðræningjar". Þeir eru
það ekki. Þeir eru fólkið, sem mun
fylla hillurnar í verzlunum ykkar.“
Bush sagði að menn skildu nú
hvers vegna tilraun sósíalista til að
skapa „nýjan Sovétmann" hefði
mistekizt — „það er ekki hægt að
bijóta niður mannlegt eðli og endur-
skapa það. í staðinn reynum við
að nýta kosti mannlegs eðlis, leyfa
körlum og konum að vera eigin
+
Sovétsambandið:
Jeltsín gefur i skyn
að nú séu aðeins
níu lýðveldi eftir
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, gaf í skyn í viðtali við CAW-sjón-
varpsstöðina í fyrrakvöld að aðeins níu lýðveldi væru eftir í Sovétsam-
bandinu. Sex lýðveldi af fimmtán; Eystrasaltsríkin þrjú, Georgía,
Armenía og Moldóva, hafa Iýst yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
í viðtali við Bernard Shaw,
fréttamann CNN, ræddi Jeltsín um
þá ákvörðun Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, að bjóða forsetum
Rússlands og Kazakhstans að vera
með í viðræðunefnd sinni á leiðtoga-
fundinum í Moskvu. „Hvers vegna
Rússland og Kazakhstan? Það eru
mörg lýðveldi í Sovétríkjunum. Við
höfum Azerbajdzhan, Uzbekistan —
og af hveiju þá aðeins tvö af níu?“
Síðar í viðtalinu endurtók forsetinn
þetta og sagði: „Hvers vegna aðeins
tvö lýðveldi af níu?“
Jeltsín var spurður hvers vegna
hann hefði ekki mætt á fund við-
ræðunefnda Bush og Gorbatsjovs á
þriðjudag. Hann svaraði því til að
hann hefði ekki viljað tilheyra þögl-
um íjölda og gaf í skyn að Gorbatsj-
ov hefði viljað láta sig og Naz-
erbajev, forseta Kazakhstans, sitja
þegjandi á fundinum, en ljá honum
engu að síður aukinn þunga sem
fulltrúar tveggja stærstu Sovétlýð-
veldanna.
Jeltsín sagði að einkaviðræður
þeirra George Bush á þriðjudag
hefðu verið gagnlegar. „Ég var
ánægður að komast að því að við
Bush forseti höfum sömu stefnu í
málum Eystrasaltsríkjanna,“ sagði
Jeltsín. „Því miður hefur forseti
Sovétsambandsins, Gorbatsjov for-
seti, aðra stefnu gagnvart Eystra-
saltsríkjunum.“
Keuter
Bush leggur blómsveig á leiði óþekkta hermannsins í Moskvu í gær.
Sigfús Rogich er
í fylgdarliði Bush
Moskvu. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÍSLENDINGURINN Sigfús Rogich, ráðgjafi George Bush Bandaríkja-
forseta um almannatengsl, er í fylgd með forsetanum á leiðtogafundin-
um í Moskvu. Er Bush lagði blómsveig á leiði óþekkta hermannsins
í gærmorgun stóð Rogich álengdar og tók myndir.
„Auðvitað var hann að taka
myndir," sögðu blaðamenn frá
Washington. „Hann te.kur myndir
af forsetanum í öllum mögulegum
og ómögulegum kringumstæðum."
Hvíta húss-pressan hafði aldrei
heyrt áður að Rogich væri af
íslenzkum uppruna. Blaðamönnum
koro. hins. y.egar saman um að
Rogich væri ein helzta hjálparhella
Bush. Hann ákveður meðal annars
fyrirfram hvar forsetinn stendur
þegar hann heldur ræður og hvern-
ig hann snýr, til þess að hann fái
sólina til dæmis ekki í andlitið eða
hafi óheppilegan bakgrunn í sjón-
varpi og á ljósmyndum.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.