Morgunblaðið - 01.08.1991, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1991
Föst í óbyggðum í nær tvo sólarhringa:
Engin hætta á ferðum,
en óvíst hversu lengi
við hefðum þraukað
- segir Björgvin Leifsson á Húsavík
„VIÐ VORUM ekki í neinni hættu, höfðum nægar vistir og það
fór ekkert illa um okkur,“ sagði Björgvin Leifsson áfangastjóri
í Framhaldsskólanum á Húsavík sem ásamt samferðafólki sínu
villtist af leið er hann var á ferð á hálendinu um helgina. Fólkið
villtist á sunnudagskvöld, en fannst síðdegis á þriðjudag. Þau
komu heil á húfi til Húsavíkur nokkru eftir miðnætti í fyrrinótt.
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
Við gosbrunn í Lystigarðinum
Fólk sem heimsótti Lystigarðinn á Akureyri í gær þurfti ekki að kvarta yfir veðrinu og það gerði hún svo
sannarlega ekki heldur hún Brynja Vala þar sem hún sullaði dálítið í einum af gosbrunnum garðsins.
Skattar í Norðurlandi eystra:
KEA greiðir mest að venju
Oddur Carl Thorarensen greiðir mest einstaklinga
KAUPFÉLAG Eyfirðinga greiðir hæstu álögðu gjöld í Norðurlands-
umdæmi eystra, svo sem venja hefur verið síðustu ár og ekki ætti
ibúum kjördæmisins heldur að koma á óvart að Oddur Carl Thorar-
ensen apótekari á Akureyri greiðir hæstu álögðu gjöld á einstakl-
inga, svo sem hann hefur gert undanfarin ár. Kaupfélaginu er gert
að greiða samtals rúmlega 85,6 milljónir króna í gjöld á árinu og
Oddur greiðir 5,6 milljónir króna. Heildarálagning gjalda í umdæm-
inu er um 3,6 milljarðar króna á einstaklinga, en lögaðilar greiða
768,6 milljónir króna. Alagning á börn nemur 5,1 milljón króna.
Gunnar Rafn Einarsson skattsjóri sagði að mun minna hefði verið
um áætlanir nú í ár en venja hefur verið til undanfarin ár.
16. KristjánR. Vernharðsson,
Eyjaij.sv., 2.585.317.
17. Júlíus Gestsson, Akureyri,
2.582.227.
18. Haukur L. Baldvinsson,
Svalbarðsst., 2 579.711.
19. Magnús Gauti Gautason,
Akureyri, 2.562.273.
20. Sigurður K. Pétursson,
Akureyri, 2.541.046.
Björgvin, ásamt erlendum sam-
kennurum sínum við Framhalds-
skólann á Húsavík, lagði af stað
síðasta föstudag og fóru þau
Gæsavatnaleið. Frá Gæsavötnum
hugðist hann aka slóð austan
megin við Skjálfanda, en þá er
komið niður í byggð í Bárðardal,
ýmist við Svartárkot eða Stórut-
ungu.
„Þarna eru aukaslóðir og ég
villtist inn á eina slika sem liggur
ofan í dal og það var ekki auðvelt
að komast upp úr honum aftur,“
sagði Björgvin. Dalur þessi heitir
Hraunárdalur og er sunnan í
Syðri-Múla, norðan við Fljóts-
hnjúk. Þar í slakka er gangna-
mannakofi, sem heimamenn í
Bárðardal fluttu úr Öxnadal og
nefna sín í milli „Bjartsýnisbúðir“.
Björgvin sagði að þau hefðu bæði
sofið þar og í bílnum og ekki hefði
farið illa um þau.
í bílnum, sem er sérútbúinn
Dodge-sendibíll var CB-stöð, en
Björgvin sagði að hún hefði ekki
dregið neitt að ráði og því hefði
ekki verið unnt að láta vita um
þá stöðu sem upp kom. Hann sagði
að þau hefðu haft nægar vistir,
engin hætta hefði verið á ferðum
og þau vitað af því að farið yrði
að leita þeirra er þau skiluðu sér
ekki til Húsavíkur á tilskildum
tima. Hann gæti þó ekki svarað
hversu lengi þau hefðu þraukað
til viðbótar þar efra.
Þröstur Brynjólfsson varðstjóri
lögreglunnar á Húsavík fór við
annan mann í leit að fólkinu síð-
degis á þriðjudag og þyrla Varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli hélt
einnig til leitar, en hún var af til-
viljun stödd norðanlands. Flug-
menn þyrlunnar komu auga á fólk-
ið og var það selflutt á henni um
15-20 kílómetra leið að lögregluj-
eppanum, sem síðan flutti þau til
Húsavíkur.
Björgvin er vanur fjallaferðum,
hann fer einhvern tíma á næst-
unni að sækja bifreiðina og sagði
að þessi villa sem hann hefði lent
í myndi ekki hafa áhrif á áfram-
haldandi fjallaferðir. Auðvelt væri
að villast á þessum slóðum, þar
sem allar vegaslóðir sem Vegagerð
ríkisins hefur ekki á sinni könnu
væru ómerktar.
Félög með hæstu álögðu gjöld í
Norðurlandsumdæmi eystra:
1. Kaupfélag Eyfirðinga,
Akureyri, 85.665.238.
2. Útgerðarfélag Akureyringa,
Akureyri, 28.646.389.
3. Hreifi hf., Húsavík,
27.600.000.
4. íslenskur skinnaiðnaður,
Akureyri, 15.639.375.
5. Celite Island, Húsavík,
12.547.265.
6. Kaupfélag Þingeyinga,
Húsavík, 12.426.511.
7. K. Jónsson ogCo., Akureyri,
11.901.808.
8. Álafoss, Akureyri, 10.775.500.
9. Slippstöðin Akureyri,
9.997.027.
10. Fiskv. Jóhannesar og Helga,
Dalvík, 9.273.520.
11. Samheiji, Akureyri, 9.221.854.
12. ístess, Akureyri, 8.426.944.
13. Fiskavík, Raufarhöfn,
8.409.105.
14. Samband ísl. samvinnufél.,
Reykjavík, 7.771.073.
15. Hagkaup, Reykjavík,
7.508.391.
16. Flugfélag Norðurlands,
Akureyri, 7.460.811.
17. Kísiliðjan, Skútustaðahr.,
7.419.003.
18. Hlíð sf., Glæsibæjarhr.,
7.176.000.
19. Oddeyri, Akureyri, 6.994.875.
20. FiskiðjusamlagHúsavíkur,
Húsavík, 6.855.220.
Einstaklingar sem greiða hæstu
álögðu gjöld í Norðurlandsumdæmi
eystra:
1. Oddur Carl Thorarensen,
Akureyri, 5.612.688.
2. Árni Helgason, Ólafsfirði,
4.535.677.
Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri,
Útgerðarfélag Ákureyringa, Kaup-
félag Þingeyinga, Súlur hf., Akur-
eyri, og Kaffibrennsla Akureyrar
greiða hæstan eignaskatt í um-
dæminu, en hæsta álagt aðstöðu-
gjald er á KEA, ÚA, K. Jónsson,
Samband íslenskra samvinnufélaga
og íslenskan skinnaiðnað. Félög
sem greiða hæstan tekjuskatt eru
Hreifi hf. og Celite ísland á Húsa-
vík, Fiskavík á Raufarhöfn, Fisk-
verkun Jóhannesar og Helga á
Dalvík og Kísiliðjuna í Skútustaða-
hreppi.
Oddur Carl Thorarensen greiðir
hæstu gjöldin á Akureyri, 5,6 millj-
ónir, þá Tómas Eyþórsson og Ari
Halldórsson sem greiða um 3,7
milljónir. Á Húsavík greiðir Vigfús
Guðmundsson mest, 4,3 milljónir,
þá Björn S. Haraldsson, rúmar 2
milljónir, og Gunnar Rafn Jónsson
rúmar 1,8 milljónir. í Ólafsfirði er
Árni Helgason með hæstu gjöldin,
4,5 milljónir, Svavar Magnússon
með 2,6 milljónir og Rannveig Ax-
fjörð með 2,2 milljónir. Valdimar
Snorrason er með hæst gjöld á
Dalvík, 3,1 milljón, Óli Þór Ragn-
arsson með tæpa 3,1 milljón og
Willard Helgason með 2,1 milljón.
Kristján R. Vernharðsson, Eyja-
fjarðarsveit, greiðir 2,5 milljónir og
er hæsti greiðandi í hreppum, þá
Haukur L. Baldvinsson, Svalbarðs-
strönd, einnig með um 2,5 milljón-
ir, og Vilhjálmur Konráðsson á
Raufarhöfn er þriðji með rúmar 2
milljónir í álögð gjöld.
Alls fengu 794 aðilar um 123,2
milljónir króna í frádrátt vegna fjár-
festinga í atvinnurekstri í umdæm-
inu.
V erslunarmannahelgin:
Fjölbreyttar siglingar
með Sæfara í boði
Vinnslustjóri - netamaður
Vinnslustjóra, vanan Baader flatningsvél og saltfisk-
vinnslu, vantar á Ásborgu EA-259, sem saltar aflann
um borð. Einnig vantar netamann um borð.
Upplýsingar í síma 96-61748 og um borð 985-22359,
985-22259.
SÆFARI verður í stöðugum siglingum um verslunarmannahelgina og
gefst ferðafólki á Eyjafjarðarsvæðinu sem og heimamönnum kostur
á að fara í lengri eða skemmri siglingu. í sumar hefur verið boðið upp
á miðnætursiglingar á föstudagskvöldum þar sem stiginn hefur verið
dans undir harmonikkuleik um borð og hafa þessar ferðir mælst vel
fyrir hjá farþegum.
3. Vigfús Guðmundsson,
Húsavík, 4.370.850.
4. Tómas P. Eyþórsson, Akureyri,
3.751.334.
5. Ari Halldórsson, Akureyri,
3.745.334.
6. Þorsteinn Vilhelmsson,
Akureyri, 3.561.540.
7. Pétur Bjarnason, Akureyri,
3.334.021.
8. Elías I. Elíasson, Akureyri,
3.126.216.
9. ValdimarSnorrason, Dalvík,
3.102.264.
10. Óli Þór Ragnarsson, Dalvík,
3.098.276.
11. Hreinn S. Pálmason, Akureyri,
3.032.318.
12. Arngrímur Brynjólfsson,
Akureyri, 2.916.855.^
13. Svavar Magnússon, Ólafsfirði,
2.699.789.
14. Benedikt Ólafsson, Akureyri,
2.676.067.
15. SigurðurG. Valdimarsson,
Akureyri, 2.651.714.
Frá föstudagskvöldi til mánu-
dagskvölds verða daglegar siglingar
með Sæfara. Fyrsta ferðin er á
föstudagskvöld kl. 19 þegar siglt
verður frá Torfunefsbryggju á Akur-
eyri og þangað er komið aftur um
miðnætti eftir viðkomu í Hrísey. Á
laugardag verður hefðbundin áætlun
til Grímseyjar og verður farið frá
Árskógssandi kl. 11.30 og komið til
baka til Akureyrar um kl. 23.
Tvisvar verður siglt á sunnudag,
fyrst er boðið upp á tveggja tíma
siglingu um EyjaQörð frá kl. 14-16
og á sunnudagskvöld siglir Sæfari
til Hríseyjar, en lagt verður af stað
kl. 19 frá Torfunefsbryggju. Á
mánudag verða einnig tvær tveggja
tíma siglingar um Eyjafjörð, sú fyrri
er frá 14-16 og hin síðar frá 17-19.
í Hríseyjarferðunum verða leið-
sögumenn og harmonikkuleikari um
borð, lagið verður tekið og sjó-
mannavalsar mun hljóma um fjörð-
inn og er fólki ráðlagt að taka danss-
kóna með í ferðirnar.
Páll Landry hjá Ferðaskrifstof-
unni Nonna sagði að miðnætursigl-
ingar hefðu mælst vel fyrir hjá þátt-
takendum, en einkum hefðu íslend-
ingar sótt í þær ferðir. Hann sagði
að kynna þyrfti þær betur, t.d.
þyrftu útlendingar að hafa um þær
vitneskju áður en þeir halda að heim-
an, þeir væru yfirleitt búnir að skipu-
leggja ferðalög sín fyrirfram. „Þetta
hefur gengið þokkalega og byrjunin
þykir okkur lofa góðu,“ sagði Páll.