Morgunblaðið - 01.08.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1991
Tölvusumarskólinn
fyrir börn og unglinga 10-16 ára
Tvær spennandi vikur í Reykjavík í ágúst:
6.-16. ágúst kl. 9-12 og 19.-30. ágúst kl. 9-12
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu
LIPURÐ í BORGARNESI
ÚTBOÐ
Landssamtökin Þroskahjálp óska eftir tilboöum í
byggingu á raðhúsi við Selvogsbraut 1, Þorlákshöfn.
í húsinu eru 6 litlar íbúðir ásamt sameiginlegu rými
samtals 376,2 fm, 1.565 rúmmetrar. Verkið tekur til
allrar vinnu við gröft á grunni, uppsteypu og frágang
utanhúss sem innan svo og frágang lóðar.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Svæðisstjórnar
Suðurlands, Eyrarvegi 37, Selfossi og teiknistofu Páls
Sófaníassonar, Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, sími
12711, gegn 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu svæðistjórnar
föstudaginn 16. ágúst kl. 14 stundvíslega að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Landssamtökin Þroskahjálp.
i
í
joggingskór
á frábæru verði
Barnaskór
Runner Plus Jr. Velcro
St. 24-35. Kr. 2.160,-
Fullorðinsskór
Runner Plus
St. 36-46. Kr. 2.530,-
Indian Velcro
Uppháirekta leðurskór.
St: 29-39. Kr. 3.640,-
H5
MAÐURINN
HÓLAGARÐI 0 BREIÐHOLTI 0 SÍMI 75020
J
Sunnudaginn 21. júlí sl. var ég
undirritaður á leið minni frá Akur-
eyri ásamt eiginkonu og einum
hundi. A miðri Arnarvatnsheiði
kom upp krankleiki í litla bílnum
okkar en okkkur tókst í örvænt-
ingu að skröltast niður í Borgarnes
þreytt og miður okkur. Á Akur-
eyri hafði ég fengið miður góðar
móttökur vegna annars smávanda-
máls í bílnum og kveip því að biðja
enn á ný um aðstoð. Á ESSO-stöð-
inni í Borgarnesi tóku á móti okk-
ur Sigurður Þorsteinsson og starfs-
menn hans. I fyrstu var biluninni
slegið upp í grín og mér sagt að
henda druslunni sem þó er nýskoð-
uð og ung að aldri. Sigurður er
gamalreyndur bílstjóri og hesta-
maður sem þurft hefur að bjarga
sér aleinn úti í óbyggðum. Eftir
að hafa lokið að raða nokkrum
vörum upp í hillu sneri hann sér
að næsta verkefni að gera við bíl-
inn minn sem þó var algerlega
fyrir utan hans verkahring. I fyrstu
tókst ekki að koma auga á bilunina
og mér fór enn á ný að verða órótt
og það fann Sigurður.
Eftir um hálfrar klst. viðgerð
tókst Sigurði að koma í veg fyrir
krankleikann og okkur tókst að
komast heim. Mér þóttu þessi við-
brögð með hreinustu ólíkindum og
mun aldrei gleyma þeim. Það sem
meira er að Sigurður neitaði að
taka við greiðslu fyrir ómakið,
hann sagði það skyldu sína að
hjálpa þeim sem væru hjálpar-
þurfi. Gott væri ef fleiri tileinkuðu
sér þann sið. Það lýsa engin orð
þeirri lífsreynslu sem við urðum
fyrir á ESSO-stöðinni í Borgarnesi
og Sigurður Þorsteinsson og hans
frábæra starfsfólk á allan heiður
að. Hafið bestu þakkir og lífið
heil. Eitt er víst að mín fjölskylda
mun leggja sig alla fram við að
hvetja ferðalanga til að bíða með
að fylla tankinn þangað til komið
er til Sigurðar í Borgarnesi. Þar
má auðvitað líka fá allt í bílinn
a.m.k. var gert við minn á staðn-
um. Lífið heilir Borgnesingar.
Árni Stefán Árnason
Um eyðni og rangl lífemi
í Velvakanda 21. júlí ámælir
Þorsteinn Guðjónsson Þórarni
Guðnasyni lækni fyrir að kalla
eyðni ekki hommasjúkdóm og seg-
ir fréttir um mikla útbreiðslu sjúk-
dómsins í þriðja heiminum notaðar
til að gefa áróðri fyrir „röngu lí-
femi“ lausan tauminn.
Með orðinu hommasjúkdómur
er átt við sjúkdóm sem einungis
hommar sýkjast af (sbr. barnasjúk-
dómur). Eins og Þorsteinn vonandi
veit sjálfur er sú ekki raunin og
skiptir þá engu máli hverjir fyrst
sýktust. Og þó við myndum gefa
okkur að einungis hommar fengju
eyðni hvaða máli skiptir það? Eg
veit ekki til þess að hommar séu
neitt verri en annað fólk. Þegar
rætt er um samkynhneigða er oft
talað um óeðli en það óeðli er býsna
illa skilgreint og byggist að því er
ég tel á vanþekkingu og fordóm-
um.
í öðru lagi er orðalagið „rangt
líferni" mjög undarlegt og ber vott
um fordóma Þorsteins gagnvart
samkynhneigðum. Samkvæmt
mínum skoðunum og að ég vona
íslensku stjórnarskrárinnar getur
ekkert líferni flokkast sem rangt
nema það skaði aðra (sbr. kynferð-
isafbrotamenn). Ég sé ekki að sam-
kynhneigð skaði einn né neinn og
getur þar af leiðandi ekki kallast
rangt líferni.
Sem umhverfisverndunarsinni
get ég svo ekki lokið máli mínu
án þess að benda á það að á tímum
offjölgunar er samkynhneigð bein-
línis af hinu góða.
Pétur Henry Petersen
Talsímakonur
Fyrr og nú
Undanfarið hefur staðið yfir
gagnasöfnun til útgáfu starfs-
mannatals Talsímakvenna. Hér er
um að ræða allar þær konur er
starfað hafa við talsímann frá því
að síminn kom til íslands 1906-
1991, það er að segja við Miðstöð
(bæjarsímann), Landsímann, og
Talsambönd við útlönd, eftir að það
tók til starfa. Það er viðamikið verk-
efni sem spannar 85 ára tímabil í
sögu okkar.
Send hafa verið út eyðublöð til
allra þeirra sem vitað er um, eða
ættingja þeirra. Fáar heimildir eru
til um þær sem unnu hér fyrr á
árum og hér með leitað eftir upplýs-
ingum um þær konur sem horfnar
eru og ættingjar eru beðnir að láta
í sér heyra og/eða benda á þær sem
vitað er um. Þegar svona langt er
liðið byggist söfnunin á frásögnum
ættingja eða vina þeirra. Þó nokkr-
ar þessara kvenna hafa búið erlend-
is og hafa þar með horfið okkur
hinum og eru allar vísbendingar vel
þegnarum þær sem og aðrar.
Vinsamlegast hafið samband við
Ásthildi Steinsen í síma 51525 e.h.
eða skrifið í Box 226, 121 Rvk.
Alnæmi ekki
homma-
sjúkdómur
Hann Þorsteinn Guðjónsson var
eina ferðina enn (Velvakandi 21.7)
að gera lýðum ljósa afstöðu sína
til þeirra sem gangast við því að
vera samkynhneigðir. Látum það
liggja milli hluta að sinni, boðskap-
ur hans að þessu leyti nær ekki
eyrum manna nú á dögum. En það
er verra að hann hamrar á þeim
boðskap að alnæmi sé sérstakur
hommasjúkdómur. Þessi villa ýtir
undir það að þeir sem ekki telja sig
til þessa þjóðfélagshóps þykist vera
stikkfrí og viðhafi enga aðgæslu til
þess að varast smit. Staðreyndin
er sú að alnæmissmit breiðist nú
hraðast út meðal þeirra sem telja
sig gagnkynhneigða.
Guðni Baldursson
0HITACHI
TVÖ 00
TILBOÐ
....A MEÐAN
BIRGÐIR ENDAST!
FERÐATÆKI
Ferðatæki m. tvöföldu
segulbandi 4 rósa
útvarpi, 80W Þrívíddar
hátalarar, surround og 5
banda tónjafnara.
Hljómar vel!
...Mll M>
I viRDUtKKUN 'k
'hrðmwounu'
RÖNNING
SUNDABORG15, SÍMI:68 58 68
TTT"T'