Morgunblaðið - 01.08.1991, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 1. ÁGUST 1991
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Armbandsúr tapaðist
Stálarmbandsúr með stórri
hvítri skífu tapaðist þriðjudaginn
23. júlí á gönguleið — Laufásveg-
ur — Lækjargata — Austurstræti
Fischersund. Finnandi vinsamlega
hafðu samband í síma
22767/22233.
Ekki fleiri sendiráð
Freyr hringdi:
Eg heyrði í útvarpinu um dag-
inn að til stæði að setja upp sendi-
ráð í Litáen og öðrum Eystra-
saltslýðveldum. Mér finnst þetta
skjóta skökku við. Alls staðar er
verið að spara það í ríkiskerfinu
sem snýr að almenningi en utan-
ríkisráðuneytið með sín kaffiboð
og veisluhöld fyrir einhverja pót-
intáta fær að þenja sig út í hið
óendanlega. Nú er vitað mál að
við þurfum ekkert sendiráð í Litá-
en heldur hefur það einungis
táknrænt gildi. Væri ekki nóg
að senda þangað ræðismann?
Ekki sendum við sendiherra til
allra landa sem við viðurkennum.
Þar að auki er ljóst að íslenskur
sendiherra hjálpar Litáum ekki
mikið, með því að fara í boð og
drekka vín.
Týndi myndavél og kíki
Myndavél og kíkir urðu við-
skila við eiganda sinn vestan
megin við Dettifoss föstudaginn
26. júlí. Þetta var sjálfvirk
myndavél af Olympus-gerð og
Practica grænn göngukíkir.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 28065 eða 16589.
Köttur í óskilum
Ungur högni hefur verið að
þvælast í Logalandi í fossvogi
undanfarnar 2-3 vikur. Kötturinn
er sviphreinn og fallegur, dökkb-
röndóttur með hvíta bringu og
hvítt andlit og fætur. Hann virð-
ist ekki vera flækingur, er mann-
elskur en dálítið hvekktur. Upp-
lýsingar gefa Ragnheiður eða
Hörður í síma 685236.
Góður veitingastaður
Dísa hringdi:
Ég vil benda fólki á veitinga-
staðinn Fiðlarann á Akureyri sem
er ótvírætt einn af allra bestu
veitingastöðum á landinu. Við
hjónin borðuðum þar 10., 11. og
13. júlí og það var alveg sama
hvenær, þjónustan var alltaf frá-
bær og ég tel að ef einhver stað-
ur eigi skilið einkunnina 10.0 þá
sé það Fiðlarinn.
Skilaboð
Ásta Guðlaugsdóttir! Hvenær
ætlar þú að ná í dúkkuna sem
þú átt á Skúlagötunni hjá Jóni?
Leiðinleg sjón
Gömul kona hringdi:
Ég var stödd úti á grasfleti
við heimili mitt að kvöldi til fyrir
stuttu síðan. Veðrið var eins og
best varð á kosið, logn og blíða.
Skammt frá mér var köttur úr
nágrenninu og naut veðurblíð-
unnar eins og ég. Eftir göngu-
braut skammt frá komu þrír ung-
ir menn, eftir útliti að dæma
milli fermingar og tvítugs. Þeir
tóku nú að grípa steina upp af
götunni og hófu skothríð á kött-
inn sem varð skeflingu lostinn
og reyndi að forða sér. Ég vil
segja við þessa ungu menn og
aðra: Látið dýrin í friði. Það er
ólánsmerki að fara illa með dýr.
Veggspjöld í óskilum
Hólkur með veggspjöldum
fannst fyrir utan Flugstöð Leifs
Eiríkssonar þann 26. júlí. Upplýs-
ingar í síma 92-11906.
Góð grein eftir Láru
Aðstandandi geðsjúkra
hringdi:
Ég vil þakka Láru Höllu Ma-
ack réttargeðlækni fyrir góða
grein í Morgunblaðinu s.l. þriðju-
dag. Einnig vil ég þakka Láru
fyrir að hafa kjark til að standa
fyrir máli sínu og hvetja alla til
að lesa þessa grein hennar.
Veiðistöng tapaðist
Ásdís hrigndi:
Ég var að veiða í Mjósundi í
Hraunfirði á Snæfellsnesi
fimmtudaginn 11. júlí er ég tap-
aði laxveiðistönginni minni. Ég
lagði hana frá mér í grasið og
hreinlega gleymdi henni. hún var
brún í blágráum poka. Ef hún
hefur fundist, gjörið svo vel að
hringja í síma 650648 og láta
mig vita.
Loka en ekki opna fyrir bílum
Mig langar til að vekja athygli á
grein Jónasar Kristjánssonar í DV
þann 13. júlí sl. sem nefnist „Dular-
fullur bíladraumur“. Þar kemur
fram að hann álítur að það eina sem
gæti bjargað gamla miðbænum frá
endanlegum dauðadaga sé að yfír-
byggja sem flestar götur í gamla
miðbænum og þar með að loka bíla-
umferð um þær. Jónas Kristjánsson
er ekki einn um þetta álit því fjöldi
fólks er sammála honum.
Sá undarlegi draumur nokkurra
kaupmanna í miðbænum að opna
aftur bílaumferð um Austurstræti
bjargar engu heldur gerir illt verra
að öllum líkindum og lýsir stöðnuð-
um hugsunarhætti þessara manna.
Þeir átta sig ekki á því að bílarnir
valda mengun sem allt fólk vill forð-
ast auk þess sem þeir taka rýmið
af götunum og hefta þar með alla
fegrun. Þessir menn átta sig heldur
ekki á að það var ekki lokun Austur-
strætis fyrir bílaumferð sem olli
þeirri kreppu sem nú heijar á Aust-
urstræti og reyndar allan miðbæinn
meira eða minna, heldur Kringlan
sem var yfirbyggð, með fallegu
umhverfi og engri loftmengun af
bílaumferð.
E.t.v. og vonandi er enn tími til
að bjarga gamla miðbænum. En
það verður aðeins gert með því að
loka fyrir bílaumferð um sem flest-
ar götur miðbæjarins svo og að
yfírbyggja þær sem flestar. Bíla-
geymsluhúsin eru sum komin og
önnur væntanleg.
Reykvíkingur
Víkverji skrifar
Ein ánægjulegasta frétt ársins
að mati Víkyeija birtist í
Morgunblaðinu í síðustu viku þegar
frá því var skýrt að forstjórar Atl-
antsáls-fyrirtækjanna væru vænt-
anlegir hingað til lands 12. ágúst
nk. til þess að undirrita samning
um byggingu 200 þúsund tonna
álvers á Kelisnesi. Með byggingu
álversins er snúið við stöðnun í ís-
lenzku efnahagslífi og punktur sett-
ur aftan við lengsta samdráttar-
skeið sem við íslendingar höfum
upplifað í marga áratugi.
Bygging álversins og rekstur
þess síðar meir mun skapa mikla
atvinnu. Helsta vandamálið á næstu
árum er að tryggja það að þenslan
innanlands verði ekki of mikil og
að sá stöðugleiki sem náðst hefur
í efnahagslífinu fyrir tilstilli aðila
vinnumarkaðarins haldist.
Bandaríska fyrirtækið Alumax
er stærst þeirra þriggja fyrirtækja
sem mynda Atlantsál-hópinn og
hefur verið ráðandi í samstarfinu.
Því voru það mikil tíðindi fyrir okk-
ur íslendinga þegar spurðist í síð-
ustu viku að Paul Drack forstjóri
fyrirtækisins hefði verið hækkaður
í tign og gerður að forstjóra móður-
fyrirtækis Alumax, AMAX. Við
starfi hans tekur Bond Evans, en
Paul Drack verður stjórnarformað-
ur.
Paul Drack mun áfram taka þátt
í samningaviðræðunum um álver á
Keilisnesi við hlið Bonds Evans.
Báðir þessir menn hafa tekið þátt
í viðræðunum frá upphafi og eru
gjörkunnugir öllum málum. Vík-
veiji veit af viðræðum við þessa
menn að þeir hafa hrifist mjög af
landi og þjóð. Þeir hafa mikla trú
á verksmiðjurekstri hér á landi,
ekki síst vegna þess hve tækniþekk-
ing og verkmenntun er hér á háu
stigi. Víkveiji vonar og trúir að
Atlantsál verði góður samstarfsaðili
í stóriðjurekstri á íslandi.
XXX
Ekki hugnast Víkveija það uppá-
tæki hestamanna að efna til
tveggja daga þolreiðar eins og
þeirrar sem þreytt var um síðustu
helgi frá Laxnesi í Mosfellsdal til
Þingvalla. Samkvæmt fréttum var
sigurvegarinn fjórar klukkustundir
og 38 mínútur að ríða þessa vega-
lengd. Væntanlega hefur knapinn
verið við hestaheilsu þegar komið
var í markið og hann fagnað ógur-
lega en engum sögum fór af ástandi
hestsins.
xxx
Islandsmótið í knattspyrnu ætlar
að verða óvenju spennandi í ár
eins og menn spáðu reyndar fyrir.
Nú þegar mótið er rúmlega hálfnað
hefur ekkert lið tekið afgerandi
forystu og a.m.k. sex lið eiga enn
raunhæfa möguleika á sigri. Þá
bendir allt til þess að fallbaráttan
verði mjög tvísýn.
Mörg falleg mörk hafa verið
skoruð á þessu móti en það glæsi-
legasta er eflaust mark Harðar
Magnússonar í leik FH og KR sl.
sunnudagskvöld. Hann fékk knött-
inn á eigin vallarhelmingi, lék á
þijá KR-inga og skaut svo hörku-
skoti á markið. Boltinn fór í báðar
stengur marksins og síðan út í teig-
inn þar sem Hörður kom á fullri
ferð og skoraði stöngin inn! Vík-
veiji er þess fullviss að ef þetta
mark yrði sent út til erlendra sjón-
varpsstöðva yrði það sett í syrpu
með beztu mörkum ársins í Evrópu.
tt þajj g&fo^ þer tuö c&r i \/<£bót fyrlr
hegður."
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
© 1991 Los Angeles Times Syndicate
Blessaður vertu rólegur. Hvert sinn sem ég tek mér
Meðan þú ert hér á spítal- 7 daga megrunartörn, lýk
anum gengur fyrirtækið ég henni á þrem dögum.
aldrei betur.
HÖGNI HREKKVÍSI