Morgunblaðið - 05.09.1991, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1991
-----j'i‘o-ur■ i ri / (i j111:-■" ( k:iru ji :ioi.
c!3
. %í/0
toMtunjif.
dagar
^00'
Borgarfj örður:
Sveitarsljórnarmömi-
um boðið í Daníelslund
Opnar sýn-
ingu í FIM-
salnum
MYRIAM Bat Yosef, María Jó-
sefsdóttir, opnar sína 17. sýningu
í Reykjavík, í FÍM-salnum,
fimmtudaginn 5. september kl.
17.00.
Myriam Bat Yosef kom fyrst til
íslands árið 1957, þá gift listmálar-
anum Erró. Hún hélt fyrstu sýningu
sína í nóvember á þvf sama ári í
„Sýningarsalnum" sem var til húsa
að Hverfisgötu 8-10. Síðan þá hefur
hún komið reglulega til íslands og
er íslenskur ríkisborgari.
Listform Myriam er fjölbreyti-
legt, hún málar á pappír, silki,
striga og á fólk fyrir gjörninga.
Tvær video-filmur með gjörningum
Myriam verða sýndar á meðan á
sýningunni stendur.
Sýningin er sölusýning og verður
opin alla daga frá kl. 14-18, henni
lýkur 23. september.
Skorradal.
Skógræktarfélag Borgar- staði.
fjarðar bauð sveitarstjórna- Verkefni eru næg en fjárskortur
mönnum og fleiri velunnurum hamlar ræktunarstarfi og hvatti
skógræktar í kynnisferð í Daní-, formaðurinn gestina til að stuðla
elslund við Svignaskarð mið- að auknu fjárstreymi til skógrækt-
vikudaginn 28. ágúst. ar úr sveitarsjóðum og frá hveijum
sem væri aflögufær.
Stjórnarmenn Skógræktarfé
lagsins tóku á móti gestunum og
fóru með þá um skógarstíga sem
norrænir skógræktarmenn lögðu
um Daníelslund sumarið 1990.
Ágúst Árnason skógarvörður,
Birgir Hauksson verkstjóri,
Hreðavatni, og Þórunn Eiríksdótt-
ir á Kaðlastöðum höfðu á hendi
leiðsögn á göngunni um skógar-
stígana, en sú ganga tók rúmlega
eina klukkustund.
Að göngunni lokinni flutti for-
maður Skógræktarfélagsins, Guð-
mundur Þorsteinsson, Efri-Hrepp,
erindi um sögu og starfsemi Skóg-
ræktarfélags Borgarfjarðar frá
stofnun þess 1938.
Þar kom meðal annars fram að
Daníelslundur sem í fyrstu var um
15 ha en er nú rúml. 20 ha var
girtur 1960. Fyrstu árin voru
gróðursettar 6-7.000 plöntur ár-
lega en síðar komst gróðursetning
upp í 16-18.000 plöntur á ári.
Lundurinn var skírður Daníels-
lundur í virðingarskyni við Daníel
Kristjánsson skógarvörð frá Hreð-
arvatni sem var einn af stofnend-
um Skógræktarfélagsins og
stjórnaði öllum framkvæmdum
þess fyrstu 40 árin.
Aðalverkefni Skógræktarfé-
lagsins nú er í Grafarkotsgirðingu,
en einnig eru skógræktargirðingar
í Bæjarsveit við Leirá og Gríms-
Að ræðu formanns lokinni las
Ragnar Olgeirsson upp ljóð og
stjórnaði síðan fjöldasöng við
harmonikuundirleik Ingimars Ein-
arssonar, Fífusundi. Að lokum var
boðið upp á góðar veitingar.
- D.P.
Myriam Bat Yosef.
Morgunbladiö/Davíö Pétursson
I Daníelslundi, f.v.: Guðmundur Þorsteinsson formaður Skógræktar-
félags Borgarfjarðar, Ágúst Árnason, skógarvörður, Ragnar Olgeirs-
son og Sædís Guðlaugsdóttir sem eru stjórnarmenn í Skógræktarfé-
lagi Borgarfjarðar.
Allir eru að spyrja um Rokklingaskóla og nú opnum við hann fyrir
hressa krakka, 6-14 ára. Kennum undirstöðuatriði í að koma fram, dansa
og syngja á sviði. Kennarar verða Birgir Gunnlaugsson söngstjóri Rokklinganna
og Bára Magnúsdóttir danshöfundur Rokklingadansanna.
A NAMSKEIÐUNUM ER BOÐIÐ UPPA:
Rokklingadansa
Rokklingasöngva
Sviösframkomu
Textaframburó
Takthreyfingar
Nemendasýning í lok
nómskeiðs
(2 mióar innif aldir)
Myndband af sýningunni
t Möppu meó námsgögnum
i Hljóóversvinnu
i Þína eigin söngsnældu
- meó hljómsveit!
i Hæfnispróf
Kennslan stendur i 7 vikur oghefst sunnudaginn 8. sept. t Jazzballetskó/a Báru í Suöúrveri.
Kennt veröur á sunnudögum, 2 kennslustundir í senn, auk 3ja tíma i hljóöveri. í hverjum tíma
takmarkastfjöldipátttakenda viö 12. Innritun alla virka daga til 7. sept. ísíma 813730.
/Ifhending kenns/ugagna laugardaginn 7. september kl. 13—16.
Verð kr. 13.500