Morgunblaðið - 05.09.1991, Qupperneq 31
1
I
I
i
!
I
t
i
í
i
I
j
I
I
I
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1991
Morgunblaðið/Sverrir
Nýir eigendur Ingólfsbrunns, hjónin Jónína Olesen og Konráð J.
Stefánsson ásamt syni sinum Brynjari.
Eigendaskipti að
Ingólfsbrunni
Eigendaskipti urðu fyrir skömmu á matar- og kaffihúsinu Ing-
ólfsbrunni, Aðalstræti 9. Hinir nýju eigendur ætla að bjóða upp
á fjölbreytta þjónustu á þessum gamalgróna stað, en Ingólfsbrunn-
ur er 20 ára um þessar mundir.
Nýju eigendurnir eru ung hjón, '
Jónína Olesen og Konráð J. Stef-
ánsson, en hann er lærður mat-
reiðslumaður og kjötiðnaðar-
meistari. Boðið er upp á kaffi og
meðlæti allan daginn og sömuleið-
is upp á síldarrétti og smurt brauð.
I hádeginu er boðið upp á fjórrétt-
aðan matseðil og súpu. Boðin
verða sérkjör fyrir skólafólk og
aðra sem vilja vera í föstu fæði.
Á sunnudögum kl. 14,30 verður
boðið upp á kaffihlaðborð. Salur
Ingólfsbrunns tekur 40 manns í
sæti og verður hægt að fá hann
leigðan fyrir smærri samkvæmi.
Staðurinn hefur léttvínsleyfi.
Ingólfsbrunnur er opin alla
virka daga kl. 8,30-21, laugar-
daga kl. 10-19 og sunnudaga kl.
11-19.
• •
100 ára vígsluafmæli Olfusárbrúar:
Póstferð frá Reykja-
vík á moiímn til Selfoss
Cnlfnc.,:
PÓSTFERÐ á hcstum verður farin á morgun, föstudag 6. september,
frá miðbæ Reykjavíkur til Selfoss. Ferðin er farin til þess að minna
á 100 ára vígsluafmæli Olfusárbrúar og þróun samgangna. Póstlestin
kemur á Selfoss á afmælisdag brúarinnar 8. september en þann dag
verður opið pósthús í Tryggvaskála þar sem í notkun verður sérstak-
úr póststimpill.
Það eru hestamannafélagið
Sleipnir og Félag frímerkjasafnara
á Selfossi sem standa fyrir ferðinni.
í tengslum við hana verða sérprent-
uð 1000 umslög. Þau verða seld í
Tryggvaskála í dag, fimmtudag og
við pósthúsið í Pósthússtræti í
Reykjavík áður en lagt verður upp
í ferðina. Þessi umslög er síðan unnt
að senda með póstferðinni frá
Reykjavík til Selfoss og fá sérstakan
ferðastimpil á þau ásamt sérstökum
póststimpli sem verður í notkun í
Tryggvaskála 8. september en þá
mun Póstur og sími opna þar póst-
afgreiðslu í tilefni 100 ára víglu-
afmælis ölfusárbrúar. Póst- og síma-
afgreiðsla var í Tryggvaskála auk
þess sem Landsbankinn var þar með
afgreiðslu á árum áður.
Nokkur fyrirhöfn er hjá hesta-
mönnum vegna ferðarinnar því
þjálfa þarf upp hross til þess að
flytja póstkassana en notkun klyfja-
hesta er alls ekki algeng þó svo
mikið sé ferðast á hestbaki.
Sig. Jóns.
■ Á PÚLSINUM í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, verða aukatónleikar
franska bandeoneónleikarans Olivi-
er Manouray en hann var með
fyrir tónleika sína í gærkvöldi.
Olivier Manouray er mörgum
íslenskum tónlistarunnendum að
góðu kunnur, enda leikið oft áður
hér á landi og þá ekki síst tangó,
en hljóðfæri hans, bandeoneón er
einmitt lykilhljóðfæri í argentískum
tangó. í kvöld á þessum aukatón-
leikum skipa bóleró og samba önd-
vegi á efnisskránni, auk ýmissa
stefja úr latíndjassi eftir Dizzy Gil-
lespie o. fl. Þeir sem spila með Olivi-
er á þessu suðræna sveiflukvöldi
Púlsins eru: Kjartan Valdemars-
son, píanóleikari, Tómas R. Ein-
arsson kontrabassaleikari og Einar
Valur Scheving trommuleikari.
PíanÖleikarinn Egill B. Hreinsson
verður sérstakur gestur kvöldsins,
en hann ásamt Olivier munu sem
dúó flytja íslensk þjóðlög í útsetn-
ingu Egils við upphaf tónleikanna
sem hefjast kl. 22. „Happy hour“
verður á sínum stað milli kl. 22-23.
■ KURAN-SWING flokkurinn
mun næstkomandi fimmtudags-
kvöld halda tónleika á veitinga-
staðnum Garðakráin, Garðatorgi
1 í Garðabæ. Garðakráin býður
uppá allar veitingar og hefur að
undanförnu boðið gestum sínum
uppá lifandi tónlist af ýmsu tagi.
Kuran-Swing skipa þeir Björn
Thoroddsen, gítar, Þórður Högn-
ason á kontrabassa, Olafur Þórð-
arson á gítar, Magnús Einarsson
á mandólín og gítar og sjálfur
Szymon Kuran á fiðlu. Kuran-
Swing hefur leikið víða m.a. í
Reykjavík, Egilsstöðum (á djass-
hátíðinni þar í júlí sl.) og í Finn-
landi. Tónlist þeirra er einskonar -
blanda af „Hot club du Frans“ blús-
grassi og swingi. Gestum er bent á
að tónleikarnir hefjast um kl. 10.30
á fimmtudagskvöld.
Mynd frá vinstri: Magnús Einarsson, Þórður Högnason, Björn Thor-
oddsen, Szymon Kuran og Olafur Þórðarson.
■ Á BORGINNI í kvöld verða
haldnir samtónleikar hljómsveit-
anna Todmobile, Sálarinnar hans
Jóns míns og Point Blank. Tón-
leikarnir eru liður í undirbúningi
sveitanna fyrir tónleikaferð sem
farin verður til Danmerkur í næstu
viku. Sveitirnar leika nýtt og gam-
alt frumsamið efni. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.00.
..♦
Aðeins sam-
starfsmenn
Sú meinlega villa kemur íyrir í
viðtali í blaðinu í gær að eistnesku
krabbameinssérfræðingarnir Mar-
ianne Niin og Váino Ratsep eru
sögð hjón. Því fer hins vegar fjarri,
þau Niin og Rátsep eru aðeins
samstarfsmenn. Einhversstaðar
skoluðust upplýsingar til og er
beðist velvirðingar á mistökunum.
Innkaupatöskur
Töskukerrur
, <33S3r,.
GEfSÍPr
Vesturgötu 1, sími 1 1350
Philico sparar peninga
Þvottavélarnar frá Philico taka inn á sig heitt og kalt
vatn og stytta með því þvottatímann og umfram allt:
þær evða minna rafmagni
L64
• Vinduhraði: 600 snúningar
• Fjöldi þvottakerfa eftir þínu vali
• Sérstakt ullarþvottakerfi
• Fjölþætt hitastilling
• Sparnaðarrofi
• Stilling fyrir hálfa hleðslu
L85
• Fullkomin rafeindastýring
• Val á vinduhraða: 500/800 snúningar
• Vökva höggdeyfir
• Ryðfrítt stál í tromlu og ytri belg
L105
• Stillanlegur vinduhraði: 400/1000 snúningar
• Sérstaklcga styrkt fyrir mikið álag
• Fjöldi mismunandi þvottakerfa
• Sjálfstæð hitastilling
• Traustur vinnuþjarkur
PHILCOB
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISIMI691520
sanauKtfUto