Morgunblaðið - 05.09.1991, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1991
ínám
FOLK
■ HÖTTUR frá Egilsstöðum,
sem leikur í 1. deild í körfuknatt-
leik, hefur fengið leikmann frá
Bandaríkjunum. Það er Samuel
Grahan, 25 ára, frá Pittsburg í
Pensylvaníu. Hann er 2,03 m og
hefur leikið með írska liðinu Bu-
gerland Cork.
■ GUÐJÓN Guðmundsson,
meistari í fimleikum, er nú staddur
í Indianapolis í Bandaríkjunum,
þar sem hann tekur þátt í heims-
meistaramótinu í fimleikum, sem
hefst á morgun. Guðjón keppir á
laugardaginn í skylduæfíngum.
M JÖRGEN Tellnor, þjálfari
Guðjóns, er með honum, en þeir
fóru út 30. ágúst. Fararstjóri er
Guðmundur Haraldsson, vara-
formaður FSÍ.
■ GRÓTTA hefur fengið sovésk-
an leikmann, sem mun leika með
liðinu í 1. deildarkeppninni í hand-
knattleik í vetur. Það er Alexander
Revin, sem er markvörður.
■ TREVOR Steven, sem Mar-
seille keypti frá Glasgow Rangers
á dögunum - á 5,5 millj. pund,
sagði frá því í viðtali um sl. helgi,
að áður en boðið frá Marseille kom,
hafí Liverpool verið tilbúið til að
greiða 4,5 millj. pund fyrir hann.
■ FIORENTINA var sektað um
2,16 millj. ísl. króna í gær, vegna
óláta áhanganda félagsins í leik
gegn Juventus í ítölsku 1. deildar-
keppninni um sl. helgi. Fimm stuðn-
ingsmenn félagsins voru hendtekn-
ir, 24 meiddust - þar af nítján lög-
reglumenn, eftir leikinn, sem Ju-
ventus vann, 1:0. Juventus var
sektað um 270 þús. ísl. kr.
■ Matteo Mareggini, markvörð-
r~úr Fiorentina, var dæmdur í
þriggja leikja bann fyrir að ráðast
að Casiraghi, miðheija Juventus,
undir lok leiksins.
ÚRSLIT
Evrópukeppnin
Bratislava, Tékkóslóslóvakíu:
Tékkóslóvakía - Frakkland ........1:2
Vaclav Nemecek (21.) - Jean-Pierre Papin
2 (53., 89.). 50.000
Vináttuleikir
Stokkbólmur, Svíþjóð:
Svíþjóð - Júgóslavía..............4:3
Martin Dahlin 2 (20., 69.), Anders Limpar
(51.), Jonas Them (85.) - Dejan Savicevio
2 (33., 66.), Mikael Nilsson (75. - sjálfsm.)
11.510
— > Oviedo, Spánn:
Spánn - Uruguay...................2:1
Rafael Martin Vazquez (9.), Manolo San-
chez (18.) - Alvaro Gutierrez (67.). 1.600
England
Leikir í 1. deildarkeppninni:
Aston Villa - C. Palace...........0:1
- Ian Wright (3.).
Luton - Southampton...............2:1
Gray (32.), Harvey (48.) - Le Tissier (31.).
■Richard Hall hjá Southampton var rekinn
af leikvelli á 48. mín.
Man. City - Nott. Forest..........2:1
Keith Curle (14.), A. Hill (86.) - Teddy
Sheringham (65.)
■Garry Parker, miðvallarspilarar hjá For-
est, hefur óskað eftir að vera sfettur á sölu-
lista, en hann er metinn á 700 þús. pund.
■Lee Glover hjá Forest hefur verið lánaður
til Luton.
QPR- West Ham.......................0:0
^ 2. DEILD:
Bristol City - Bristol Rovers.......1:0
Derby - Blackbum....................0:2
' Leicester - Grimsby.................2:0
! Millwall - Brighton.................1:2
Newcastle - Plymouth................2:2
Oxford - Middlesbrough..............1:2
Skotland:
Leikur í 8-liða úrslitum deildarbikarkeppn-
innar:
Hearts - Rangers....................0:1
- Ally McCoist.
ARangers, Hibs, Dunfermline og Airdrie
eru komin í undanúrslit.
Þýskaland
Leikir í bikarkeppninni:
Fortuna Köln - Hansa Rostock.......5:3
■Fortuna sem er neðst i 2. deild vann topp-
lið úrvalsdeildarinnar eftir framlengingu.
Fátt benti til sigurs Fortuna sem var 3:1
undir þegar íjórar mínútur voru til leiksloka.
Juelich - Mönchengladbach..........0:1
Reutlingen - Rot-Weiss Erfurt......3:1
Hamburger - Bergmann Berlín........6:5
■Hamburger vann í vítaspyrnukeppni.
Wolfsburg- Stuttgart...............1:3
■Kastl kom inn í liðið og skoraði eitt
marka Stuttgart gegn 3. deildarliðinu.
—. -Walther og Gaudino skomðu hin mörkin.
Freiburg - Rot-Weiss Hasborn.......1:0
Bamberg - Havelse..................4:0
FRJALSIÞROTTIR
Ráty missir heimsmet
sitt í spjótkasti
Nemeth-spjótin og sænsku báru-
spjótin bönnuð. Bretinn Steve Bac-
kley hefur endurheimt met sitt
HEIMSMET Finnans Seppo Ráty í spjótkasti frá í sumar verða
strikuð út af metaskrám Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins (IAAF)
ívetur og sænsku báruspjótin, sem hann setti metin með, bönn-
uð frá 20. september, eftir úrslitakeppni Grand Prix-mótanna,
að sögn finnska dagblaðsins Huvudstadssbladet. Sömuleiðis
verða svonefnd Nemeth-spjót sem notuð hafa verið íkeppni í
þrjú ár bönnuð frá sama tíma. Islandsmet Einars Vilhjálmssonar
frá alþjóðlegu móti íMalmö íSvíþjóð í fyrrasumar, 85,48 metr-
ar, ætti að standa óhaggað þar sem Einar kastaði spjóti með
sléttu yfirborði, enda lögðu mótshaldarar bann við notkun Ne-
meth-spjóta þar.
Steve Backley hefur endurheimt
heimsmet sitt.
Deilur hófust strax um réttmæti
Nemeth-spjótsins og ekki minnkaði
gagnrýnin með tilkomu sænsku
spjótanna. Bretinn Backley var
meðal þeirra sem gagnrýndi til-
komu Nemeth-spjótanna og sagði
að með þeim væri farin af stað
þróun þar sem hyggjuvit framleið-
enda skipti meira máli en þjálfun
íþróttmannanna og kasttækni
þeirra. Nú ætti breyting að verða
þar á aftur og snilli íþróttamann-
anna og þjálfara þeirra að ráða
úrslitum.
Aþingi IAAF í tengslum við
heimsmeistaramótið í fijáls-
íþróttum í Tókýó 'dögunum var
ákveðið að frá og með næsta ári
yrðu einungis leyfð til keppni spjót
sem hefðu alveg slétt yfirborð. Arið
1985 var reglum um þyngdarpunkt
spjótsins breytt þar sem slysahætta
þótti of mikil á mótum eftir að
þýski spjótkastarinn Uwe Höhn
kastaði 104,80 metra 1984. Spjótin
lentu svo til flöt og þeyttust síðan
tugi metra til vjðbótar eftir völlun-
um. Með því að færa þyngdarmiðj-
una fram stungust spjótin niður á
endann og stóðu föst í sverðinum.
Kastlengdirnar styttust mjög veru-
lega en slysahættan hvarf.
Framleiðendur fundu hins vegar
glufur í reglum til þess að auka
flugeiginleika spjótsins og þar með
kastlengdina. Ólympíumeistarinn
frá 1976, Miklos Nemeth frá Ung-
veijalandi, gerði árangursríkar til-
raunir með nýtt spjót sem við hann
hefur verið kennt. Með því að gera
hluta yfirborðs spjótsins aftan við
gripsvæðið sendið, eins og þar hefði
verið settur grófur sandppapír,
tókst honum að auka lyftikraft þess
og margir spjótkastarar stórbættu
skyndilega'árangur sinn.
Sænskir spjótframleiðendur
sendu svo frá sér í fyrra nýtt spjót
með gáróttu yfirborði og var tii-
gangurinn hinn sami, að lengja flug
spjótanna. Seppo Ráty sannaði
ágæti spjótanna með því að stór-
bæta heimsmetið. Kastaði hann
fyrst 91,98 í Shizuoka í Japan 6.
maí og 96,96 í smábænum Punkala-
idun í Finnlandi 2. júní. Sigurður
Einarsson varð annar á mótinu í
Shizuoka með 84,94 metra kasti
með sænska spjótinu. A HM í Tókýó
köstuðu flestir kastaranna sænska
spjótinu, þ.á.m. Kimmo Kinnunen
sem bætti þar árangur sinn á mót-
inu um fimm metra.
En nú verður árangur Ráty strik-
aður út úr metabókum og þegar
ný metaskrá IAAF tekur gildi frá
næstu áramótum eru allar líkur á
því að heimsmet sem Bretinn Steve
Backley setti á Grand Prix-móti í
Stokkhólmi í júlí í fyrra, 89,58
metrar, verði þá aftur gildandi. Það
var sett með spjóti með alveg sléttu
yfirborði. Backley bætti metið rúm-
um mánuði seinna í 90,98 með
Nemeth-spjóti en sá árangur verður
sömuleiðis strikaður út. Að sögn
breska blaðsins Daily Telegraph er
hugsanlegt að ekkert eldra met
verði látið gilda, heldur byijað að
skrá heimsmet upp á nýtt frá ára-
mótum. Ekkert met gilti árið 1986
er fyrst var keppt með spjótum með
nýrri þyngdarmiðju og aðeins besti
árangur þess árs skráður sem
heimsmet frá 1. janúar 1987.
Einar Vilhjálmsson og Seppo Raty, sem hefur misst met sitt.
Leroy Burrell og Carl Lewis.
Lewis og Burrell:
Einvígi kostar
36 milljónir
Bandarísku spretthlaupararnir Carl Lewis og Leroy Burrell ætlast
til þess að fá vel borgað fyrir að keppa mótum og ekki lækkaði
gengi þeirra við HM í Tókýó á dögunum. Hæst þarf að greiða fyrir
einvígi þeirra í millum í 100 metra hlaupi. Mótshaldarar á Grand Prix-
mótinu í Berlín næstkomandi þriðjudag, 10. september, vilja fá þá til
að keppa í 100 metra hlaupi á móti sínu en verða að punga út 600.000
dollurum, jafnvirði rúmlega 36 milljóna ISK., eigi það að verða að
veruleika, að sögn franska íþróttablaðsins L’Equipe.
Þjófstart í
10O m hlaupinu
á HM íTókýó
Mesta 100 metra hlaup sög-
unnar, sjálft úrslitahlaupið á
HM í fijálsum í Tókýó í síðustu
viku, hefði í raun ekki átt að fara
fram, að sögn breska blaðsins Inde-
pendent. Bandaríkjamaðurinn
Dennis Mitchell, sem varð þriðji,
þjófstartaði og hefði ræsirinn, jap-
anski háskólaprófessorinn Tad-
anobu Nozaki, átt að kalla hlaupar-
ana til baka. Búnaður sem tengdur
var rásblokkum hlauparanna nam
ólöglegt viðbragð Mitchells og tölv-
ur sendu ræsinum boð um það sem
berast honum sem hljóðmerki í
heyrnartóli. Einhverra hluta vegna
gleymdi Nozaki hins vegar að setja
heyrnartólin á sig fyrir úrslita-
hlaupið og heyrði því ekki hljóð-
merkið sekúndubroti áður en hann
hleypti af rásbyssunni. Blaðið hafði
eftir talsmanni Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins að úrslitum hlaupsins
yrði ekki breytt og metin sem sett
voru stæðu þar sem ákvörðun ræs-
is væri endanleg. í ljósi atviksins
myndi stjórn sambandsins líklega
ákveða í næsta mánuði að skylda
ræsi á mótum af þessu tagi til að
setja herynartólin á höfuðið og þar
með yrði það forsenda þess að ár-
angur yrði viðurkenndur.
I