Morgunblaðið - 02.12.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.12.1992, Blaðsíða 33
Umboðslausir þingmenn eftir Kristin H. Gunnarsson i. Á dögunum var felld tillaga um að bera undir þjóðina hvort Island ætti að gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Það voru þing- menn stjórnarflokkanna að undan- skildum þremur þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins, sem greiddu at- kvæði gegn þjóðaratkvæðagreiðslu. Fróðlegt er að fara yfir röksemdir þeirra gegn þjóðaratkvæðagreiðsl- unni. Nokkur rök voru tínd til en veigamest voru þó þessi: I almennum kosningum velja kjósendur þingmenn sem fá umboð. Allir meginþættir EES-málsins lágu skýrir fyrir við þingkosningar í fyrra og kjósendur gátu gert sér grein fyrir afstöðu einstakra þing- manna og flokka. Málið bar hátt í kosningabaráttunni. Þingmenn fengu þvi umboð í kosningunum til að ljúka málinu. n. Þetta eru athyglisverð sjónarmið og fela í sér tvennt: í fyrsta lagi er viðurkennt að þingmenn þurfí umboð frá kjósendum í málinu og í öðru lagi að það umboð sem þeir fá afmarkast af þeirri afstöðu sem þingmenn og flokkar gefa upp fyrir kosningamar. Gjörðir þeirra verða því að rúmast innan afstöðunnar sem upp var gefin, að öðrum kosti þrýtur umboðið. Þá eiga þingmenn einungis um þtjá kosti að velja: — Fella málið. — Rjúfa þing og sækja nýtt umboð á grundvelli breyttrar at- stöðu. — Vísa málinu til kjósenda til úrskurðar með þjóðaratkvæða- greiðslu. III. í þessari blaðagrein er borin von að gera úttekt á afstöðu einstakra þingmanna til EES-málsins fyrir síðustu Alþingiskosningar, en það er fyóðlegt að skoða afstöðu núver- andi stjómarflokka til EES-málsins eins og hún birtist í kosningastefnu- skrám flokkanna og athuga hvort EES-samningurinn eins og hann liggur fyrir nú uppfylli yfírlýsingar flokkanna. Ef svo er má fallast á að þeir hafi fengið umboð til að ljúka málinu eins og þeir halda fram sjálfir. Hins vegar ef samningurinn er lakari en yfirlýsingamar og upp- fyllir þær ekki að einhveiju leyti hafa þingmenn stjórnarflokkanna ekki umboð til að ljúka málinu. Um þetta er ekki ágreiningur samkvæmt röksemdum stjórnarliða sjálfra, svo málið snýst þá um hvort samningurinn uppfylli kröfur flokk- anna, eins og þær vora kynntar fyrir síðustu Alþingiskosningar. Þær yfirlýsingar bera með sér að samningur lá þá ekki fyrir um EES því lýst var afstöðu til Evr- ópsks efnahagssvæðis með til- teknum skilyrðum sem væntanleg- ur samningur yrði að uppfylla. IV. Lítum fyrst á yfírlýsingar Sjálf- stæðisflokksins. Þær era samþykkt- ar á landsfundi flokksins í mars 1991, rúmum mánuði fyrir kosning- ar. í ályktun um sjávarútvegsmál segir m.a.: „Fiskistofnamir á íslandsmiðum era enn sem fyrr okkar dýrmætasta sameign og á sjávarútvegi byggjast lífskjör þjóðarinnar. Yfírráðum okk- ar Islendinga yfír fískistofnunum og afrakstri þeirra má ekki stefna í hættu og samskiptin við Evrópu- bandalagið verði þannig háttað að forræði yfir fískimiðunum og nýting þeirra haldist hjá íslendingum ein- um.“ Þetta er skýrt, bæði forræði og nýting fískimiðanna verða að vera hjá íslendingum einum. Hins vegar hefur verið samið um að EB-ríkin fái að veiða 3.000 tonn af karfa árlega (eða ígildi þess) í íslenskri fískveiðilögsögu. Þar með er nýting fískimiðanna ekki hjá íslendingum einum eins og skilyrt er í landsfund- arsamþykktinni. Reyndar má einnig deila um það hvort forræðið er að öllu leyti í höndum Islendinga, t.d. má benda á frétt í Morgunblaðinu þriðjudaginn 17. nóvember sl. þar sem fram kemur að ekki er sam- komulag um rétt íslendinga til eftir- lits með löndunum í höfnum innan EB úr þeim skipum sem koma af íslandsmiðum. Þar hafa EB-ríkin hafnað öllum hugmyndum íslend- inga um slíkt eftirlit skv. fréttinni. Það er augljóst að EES-samning- urinn uppfyllir ekki þessa ályktun Sjálfstæðisflokksins og hér er ekki um smámál að ræða skv. ályktun- inni, fiskistofnarnir era okkar dýr- mætasta auðlind og lífskjör okkar byggjast á nýtingu þeirra. Hér skortir þingmenn Sjálfstæð- isflokksins umboð samkvæmt eigin málflutningi. í ályktun um utanríkismál er áréttað að samningar hafí ekki tek- ist um EES og að ekki sé enn ljóst hvort viðræðum ljúki með sam- komulagi eða hvenær. Síðar segir: „Sjálfstæðismenn teija að íslend- ingar eigi samleið með öðrum EFTA-ríkjum um þátttöku í evr- ópsku efnahagssvæði, að því til- skildu að samningar takist um hindrunarlaus viðskipti með sjávar- afurðir." Enn er skýrt að orði kveð- ið um skilyrði fyrir stuðningi, og Kristinn H. Gunnarsson „Það er hins vegar al- veg ljóst að EES-sam- komulagið uppfyllir ekki markmið ríkis- stjórnarinnar og ekki heldur skilyrði flokk- anna sem þeir settu fyr- ir kosningar.“ EES-samningurinn er einnig skýr, samningar tókust ekki um hindran- arlaus viðskipti með sjávarafurðir. Tollar voru ekki afnumdir sem meginregla heldur samið um lækk- un þeirra. Tollfrelsi er ekki í við- skiptum með sjávarafurðir. Þá er ekki hróflað við ríkisstyrkjum EB til sjávarútvegs í ríkjum bandalags- ins, sem nema milljarðatugum króna árlega. Hér er samningurinn órafjarri yfírlýsingum flokksins til kjósenda fyrir síðustu Alþingis- kosningar. Niðurstaðan: Þingmenn Sjálf- stæðisflokksins hafa ekki umboð til að fullgilda slíkan samning. V. Kosningastefnuskrá Alþýðu- flokksins er fátæklegri um málið, enda formaður flokksins búinn að fjárfesta pólitíska framtíð sína meira og minna í því að samningar tækjust. Þó segir í ályktun um sjáv- arútvegsmál: Útgáfutónleikar Jet Black Joe í Tjarnarbíó Rokkhljómsveitin Jet Black Joe heldur útgáfutónleika i Tjarnarbíói, Tjarnargötu 12, miðvikudaginn 2. desember. Þar munh þeir leika lög af geisladiski sínum sem ber sama nafn og hljómsveitin auk fleiri frum- samdra laga. Tónleikarnir hefj- ast kl. 22. Jet Black Joe er skipuð fimm ungum tónlistarmönnum: Gunnari „Tollar á unnum físki og styrkir til sjávarútvegs í Evrópubandalag- inu torvelda innlendri fiskvinnslu að keppa um fískinn sem aflast á íslandsmiðum. Við þessu þarf að bregðast með því að knýja fram aukna fríverslun með fiskafurðir í samningaviðræðum EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsins." Til þess að unnt sé að tala um fríverslun þarf bæði að afnema tolla og ríkisstyrki. Hvoragt hefur tekist. Það er því afar hæpið að þingmenn Alþýðuflokksins geti haldið því fram að þeir hafi fengið umboð til þess að ljúka EES-málinu á grandvelli fyrirliggjandi samningsuppkasts. VI. Auk yfírlýsinga flokkanna fyrir kosningar þarf að athuga yfírlýs- ingar í samstarfssáttmála ríkis- stjómarinnar sem þessir flokkar mynduðu eftir kosningar. Þær yfír- lýsingar afmarka umboð þingflokk- anna gagnvart eigin flokkum. í stefnuyfírlýsingu ríkisstjómar Davíðs Oddssonar frá 3. apríl 1991 segir að markmiðið sé að „tryggja hindranarlausan aðgang sjávaraf- urða að Evrópumörkuðum" og í starfsáætluninni Velferð á varan- legum granni segir á bls. 31: „Stefnt er að þvi að ljúka samning- unum um Evrópskt efnahagssvæði. Mikilvægi þeirra fyrir íslenskan sjávarútveg felst í óhindraðum markaðsaðgangi með afnámi er- lendra tollmúra." Ennfremur segir í starfsáætlun- inni á bls. 38: „Ríkisstjómin lítur á það sem meginmarkmið sitt varð- andi stefnuna í utanríkisviðskiptum og markaðsmálum að tryggja ís- lenskum sjávarútvegi og öðrum út- flutningsgreinum jafna samkeppn- isaðstöðu á við erlenda keppinauta. Lækkun og afnám tolla er ekki nóg. Einnig verður að spoma við þeim skekkjuáhrifum, sem ríkis- styrkirgeta haft á eðlileg viðskipti.“ VII. Þessar yfirlýsingar era að miklu leyti í samræmi við yfirlýsingar landsfundar Sjálfstæðisflokksins og benda til þess að þingmenn hans hafí talið sig bundna af þeim, þ.e. umboð þeirra afmarkist af skilyrð- um landsfundarins. Það er hins vegar alveg ljóst að EES-samkomulagið uppfyllir ekki markmið ríkisstjómarinnar og ekki heldur skilyrði flokkanna sem þeir settur fyrir kosningar. Þingmenn stjómarflokkanna era því algerlega án umboðs til að ljúka EES-máiinu. Það er rökrétt niðurstaða sem fæst með því að beita þeirra eigin rök- um. Áð taka sér umboð til annarrar afstöðu en umboðið byggir á heitir á mæltu máli að svíkja kjósendur. Það virðist ætla að verða hlutskipti þingmanna stjómarflokkanna í máli sem er samkvæmt þeirra eigin mati stærsta málið sem upp hefur komið frá stofíiun lýðveldisins. Höfundur er alþingismaður fyrir Alþýðubandalagið & Vestfjörðum. Bjarna Ragnarssyni á gítar, Hrafni Thoroddsen á hammond-orgel, Jóni Emi Amarsyni á trommur, Starra Sigurðssyni á bassa og Páli Rós- inkranz söngvara. Hljómsveitin vakti fyrst athygli sl. sumar með smellinum Rain. Jet Black Joe eiga líka lag á safnplötunni Sjúk grimm- heit en það er gamla Trúbrotslagið Starlight. (Úr fréttatilkynningu.) HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ EIGNAST Miele UPPÞVOTTAVÉL? MIELE G579SC: 8 ÞVOTTAKERFI, 3 HITASTIG, HNÍFAPARASKÚFFA OG MIELE GÆÐI. TILBOÐSYERÐ: 89.522,- KR. STGR* VENJULEGT VERÐ: 108.872,- Tilboðið gildir meðan birgðir endast. 1P s Jóhann Ólafsson & Go ~ -7’ StlNDAHOKC l.t • 104 KKYKJAVÍK - SlMlhKHSKK Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18. Lokað á laugardögum. *Verð miðast við gengi þýska marksins 15.10. 1992. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1992

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.