Bókasafnið - 01.04.1994, Qupperneq 36
Fríða S. Fiaraldsdóttir skólasafnskennari, Selásskóla
Skólasafn Selásskóla
Selásskóli tók til starfa árið 1986. Hann er grunnskóli
fyrir 6 - 12 ára börn í Seláshverfi í Reykjavík. Nemend-
ur eru rétt rúmlega 400. Skólastjóri er Kristín H. Tryggva-
dóttir.
Skólasafn hefur verið starfrækt í skólanum frá upphafi
en fyrstu tvö árin var starfsemin lítil sökum þrengsla. Þeg-
ar safnið fékk eigið húsnæði í skól-
anum var ákveðið að hver bekkur
fengi einn fastan vikulegan tíma á
safninu. Þetta var gert til kynna
starfsemi skólasafnsins og tryggja
samstarf kennara og skólasafns-
kennara. Þessi háttur hefur reynst
svo vel að kennarar hafa æ síðan
óskað eftir sama fyrirkomulagi.
Stundataflan er því þannig upp-
byggð að hver bekkur á fastan
vikulegan tíma og hefur mögu-
leika á fleiri tímum ef þörf krefur.
í flestum tilfellum er um skipti-
tíma að ræða, þannig að tveir
kennarar annast kennsluna í sam-
einingu.
I upphafi skólaárs eru sam-
starfsfundir með árgangakennur-
um og skólasafnskennara. A þess-
um fundum er safnvinnan skipu-
lögð. Þessi háttur hefur gefist mjög
vel því þannig fær skólasafnskenn-
ari tækifæri til að fylgjast með hvað
gerist í hverjum árgangi og getur
fellt safnkennsluna inn í heildar-
kennsluáætlun hvers árgangs.
Samstarfsfundir eru síðan haldnir
allt skólaárið eftir þörfum.
Starfsemi skólasafnsins má í
stórum dráttum skipta í eftirfar-
andi þætti: safnfrœðslu, heimilda-
vinnu, lestur.
Markmið safnfræðslunnar er
m.a. að kenna nemendum að
finna gögn í safninu, kynna þeim uppbyggingu bóka og
gagna og að þjálfa þá í að afla heimilda og vinna úr þeim.
Við safnfræðsluna eru notaðar bækur Kristínar Unnsteins-
dóttur og Ragnhildar Helgadóttur I leik á skólasafhi 1 sem
nemendur í 4. bekk vinna (9 ára nemendur) og Leitum og
finnum á skólasafhi 1 sem unnin er í 6. og 7. bekk (11 og
12 ára nemendur). Að auki notum við hluta af verkefnum
Ragnheiðar Jónsdóttur og Sigríðar Maríu Jónsdóttur Safn-
kennsla : verkefni fyrir 2. -7. bekk grunnskóla. Nemendur
vinna fjölmörg önnur verkefni sem oft tengjast heimilda-
verkefnum eða vinnu með skáldsögur.
Heimildavinna
Meginvinna nemenda á skólasafni Selásskóla er heim-
ildavinna. Námskrá skólasafns Selásskóla er byggð þannig
upp að hver aldurshópur á að tileinka sér ákveðna færni og
þekkingu. Þannig verður til ferli sem á að tryggja að nem-
endur hafi lært undirstöðuatriði í að nota safnkostinn við
heimildavinnu þegar þeir útskrifast úr skólanum. I tengsl-
um við heimildavinnuna eru lögð verkefni fyrir nemendur
þar sem þeim er kennt að nota
þær handbækur og fræðibækur
sem þeir koma til með að nýta
við vinnuna. Heimildavinnan
tengist aðallega móðurmáli og
samfélagsfræðigreinum. I stuttu
máli má segja að þessi vinna fari
fram á eftirfarandi hátt:
I 1,- 2. bekk kanna nemend-
ur heimildir, aðallega myndir í
tengslum við efni sem þeir eru að
fjalla um og fljótlega fara þeir að
skrifa einfaldan texta. Sem dæmi
má nefna að í vetur hafa 6 ára
nemendur m.a. rannsakað fugla,
helstu einkenni þeirra s.s. fæðu,
umhverfi, og hugtökin staðfugl
og farfugl. Vinnan fer þannig
fram að nemendur skoða upp-
stoppaða fugla, ræða saman um
hin ýmsu sérkenni fugla þar á
meðal skoða þeir fjaðrir í víðsjá.
Síðan fá nemendur fuglabækur í
hendurnar og eiga að finna sinn
fugl. Þá teikna nemendur fuglinn
eins rétt og hver hefur getu til og
að síðustu skráir nemandinn heiti
fuglsins og skrifar um fuglinn
með aðstoð kennara eða foreldra.
Sjö ára nemendur hafa unnið að
margvíslegum verkefnum í vetur
þar má t.d. nefna samvinnu við
tónmenntakennara þar sem ýmis
tónskáld hafa verið kynnt og
nemendur skrifað um þau og
hlustað á verk þeirra. Annað
verkefni hjá þessum aldurshópi
tengist þjálfun í ritun. Nemendum er kennt að semja texta
í tengslum við heimildavinnu um villt dýr á Islandi.
I 3. bekk er unnið markvisst með heimildir og nemend-
ur þjálfaðir áfram í að semja eigin texta út frá þeim. Á
haustmisseri unnu átta ára börn t.d. heimildaverkefni urn
tré. Bók Jóns Guðmundssonar um Trévar að mestu leyti
notuð sem heimild. Þessi nemendahópur hefur undanfarið
unnið heimildaverkefni um húsdýr og hefur bókin Húsdýr-
in okkar eftir Stefán Aðalsteinsson verið notuð. Þar hafa
nemendur lesið textann og skilað lesskilningsverkefnum
um nokkur húsdýr. Annað verkefni í þessari heimildavinnu
er að skrifa eigin texta um eitt húsdýr og meta þá um leið
aðalatriði frá aukaatriðum. Ég tel að það sé mikilvægt að
börn á þessu aldursskeiði styðjist aðallega við eina heimild
36 Bókasafnið 18. árg. 1994