Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Blaðsíða 31
vernd í Danmörku á hinu heimsþekkta snyrtivörumerki
„4711“ og er það í samræmi við alþjóðadómvenju. Hið
þýzka firma stóð í miklum og mörgum málaferlum gegn
dönskum aðila, sem framleiddi snyrtivörur og notaði
töluna „711“ á þær. Hann hafði og fengið „711“ skráð í
vissum samböndum. Of langt mál yrði að ræða þessar
saksóknir nákvæmlega, enda voru þær hinu þýzka firma
erfiðari en ella, af því að það hófst ekki handa gegn
notkun og skráningu tölunnar „711‘ fyrr en seint og
síðarmeir. Þess má aðeins geta, að Hæstiréttur Dan-
merkur hefir tvisvar sinnum dæmt að táknið „711“, notað
á snyrtivörur, væri að grundvelli til brot gegn rétti eiganda
merkisins „4711“.
Dæmi þess, að notkun bókstafsmerkis hafi skapað sér
rétt, er bókstafurinn P. Hann var notaður til auðkennis
á smjörlíki. Smjörlíkisgerðin Otto Monsted notaði þetta
tákn árum saman til auðkennis á smjörlíkistegund nokk-
urri. 1 skjóli notkunarinnar var bókstafurinn „P“ skráður
vörumerki firmans. Otto Monsted höfðaði síðar mál gegn
annarri smjörlíkisgerð, sem notaði sama stafinn til ein-
kennis á smjörlíki sínu. Varnaraðili bar fram, að eigi
hefði átt að skrá stafinn „P“ sem vörumerki, því að hann
skorti sérkenni. Dómurinn varð á hinn bóginn sá, að
skráningin væri gild. Rökin voru þau, að langvarandi notk-
un hefði gert stafinn „P“ að sérstæðu tákni á smjörlíki
stefnanda, sbr. U.f.R. 1932, bls. 371.
Þess eru nokkur alkunn dæmi, að merki, sem í rauninni
fela í sér lýsingu, hafa öðlazt vernd fyrir notkun. Nefna má
dóm So- og Handelsretten uppkveðinn 1941, sbr. U.f.R.
1942, bls. 240. Urslitin voru þau, að lögmæt væri skráning
vörumerkisins „Matt-creme“, en áðurnefnt firma Ferd.
Miihlens hafði fengið þetta merki skráð. Rökin voru hin
ríka fótfesta, sem merkinu hafði áunnizt á markaðnum,
sem auðkenni á vörum frá þýzka firmanu.
Árið 1952 gekk dómur í So- og Handelsretten — sbr.
U.f.R. 1952, bls. 830 — um hið alþekkta ryksugumerki
93