Tímarit lögfræðinga - 01.04.1955, Blaðsíða 48
Frá bæjarþingi og sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur:
Nokkrir dómar frá árinu 1954.
FJÁRMUNARÉTTUR.
Vanheimild á seldum hlut. Gjaldmælir í bifreið.
Á árinu 1948 seldi P. manni einum S. bifreið. 1 samn-
ingi um söluna var tekið fram um ýmsa hluti varðandi
bifreiðina, hins vegar var þar að engn getið gjaldmælis,
sem í henni var. Tók S. við bifreiðinni með gjaldmælinum.
Notaði hann síðan bifreiðina og mælinn þar til á árinu 1952,
að H. gaf sig fram og sannaði eignarrétt sinn á mælinum
og tók hann til sín. S. krafði nú P. um bætur vegna þessa,
að hann hefði misst mælinn, en hann hafði fylgt með i
kaupunum. P. taldi, að við kaupin hafi S. verið kunnugt
um að H. átti mælinn, cn H. ætti alla slíka mæla í bifreið-
um hér á landi.
Ekki var talið sannað, að S. hefði verið kunnugt um
það við kaupin, að H. ætti mælinn og var P. gert að bæta
honum verð mælisins.
(Dómur B.Þ.R. 12/4 1954.)
ÁbyrgS á seldum grip.
1 aprílmánuði 1951 seldi P. kú eina. Var svo tekið fram
við kaupandann D., að kýrin væri snemmbær. Var kýrin
afhent síðast í maí 1951 og kaupverðið greitt nokkrum
dögum seinna. Eftir að kýrin hafði verið skamma hríð í
vörzlum D., beiddi hún. Kveðst D. hafa tilkynnt P. um
þetta, en P. neitaði, að hann bæri nokkra ábyrgð á kúnni.
Um haustið lét D. slátra kúnni og krafðist síðan riftunar
á kaupunum og skaðabóta. P. taldi, að kýrin hefði misst
110