Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2009, Blaðsíða 25
„Heiti potturinn"
„Heiti potturinn" er nýjung hjá VFÍ. Þetta eru morgunfundir þar sem félagsmönnum
gefst tækifæri til að hittast og ræða málin yfir kaffibolla og rúnstykki. Ekki er um forrn-
lega dagskrá að ræða.
Fyrsti „Heiti potturinn" var í nóvember 2008 en þá fjallaði Sveinn Ólafsson verkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri Verkís um stöðuna á vinnumarkaði verkfræðinga og sagði
frá fundi sem hópur verkfræðinga átti með iðnaðarnefnd Alþingis. í „Heita pottinum"
30. janúar 2009 sagði Kolbeinn Kolbeinsson, verkfræðingur og aðstoðarframkvæmda-
stjóri fstaks, frá verkefnaöflun fyrirtækisins erlendis. Á þriðja fundinum sagði Helgi Þór
Ingason, dósent í iðnaðar- og vélaverkfræði, frá tilurð verkefnis á hans vegum þar sem
farin er ný leið við rafvæðingu bílaflotans.
Samstarf við verkfræðideildir
Verkfræðingafélag íslands leggur mikla áherslu á gott samstarf við Verkfræði- og
náttúruvísindasvið Háskóla íslands og Tækni- og verkifræðideild Háskólans í Reykjavík.
Samstarfið er afar mikilvægt því eitt af meginmarkmiðum félagsins er að standa vörð um
starfsheitið og tryggja gæði náms í verkfræði hér á landi. í júnímánuði brautskráði
Háskólinn í Reykjavík í fyrsta sinn nemendur með BS-próf í verkfræði. Voru þeir af
fjórum námsbrautum: fjármála,- hátækni,- heilbrigðis- og rekstrarverkfræði.
Nýtt skipulag Háskóla (slands
Þann 1. júlí 2008 var tekið upp nýtt stjórnkerfi og skipulag Háskóla íslands. Fræðasvið
skólans eru fimm sem hvert um sig skiptist í 3-6 deildir. Fræðasviðin eru Félags-
vísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði-
og náttúruvísindasvið. Innan þess síðastnefnda eru sex deildir: iðnaðarverkfræði-,
vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, jarðvísindadeild, líf- og umhverfisvísindadeild,
rafmagns- og tölvuverkfræðideild, raunvísindadeild og umhverfis- og byggingarverk-
fræðideild. Kristín Vala Ragnarsdóttir er forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Heimsóknir í skólana
Forystumenn VFÍ og SV halda sameiginlega kynningu fyrir fyrsta árs nema í verkfræði
við Háskóla íslands til að kynna starfsemi félaganna. 1 marsmánuði fóru formenn SV, VFÍ
og TFf auk framkvæmdastjóra til Danmerkur til að kynna nemendum í verkfræði og tækni-
fræði starfsemi félaganna og ræða við þá um námið. Að loknum aðalfundi VFI verður
mótttaka SV og VFI fyrir þá sem útskrifuðust með próf í verkfræði á síðastliðnu ári.
Þess má geta að nemendafélög verkfræðinema hafa fengið að nota fundarsalinn á
jarðhæð Verkfræðingahúss án endurgjalds, m.a. fyrir spilakvöld og aðra viðburði. Með
þessu vill félagið sýna velvilja og styrkja tengsl við nemendur í verkfræði.
Námssjóður J.C. Möller
Námssjóður J.C. Möller frá 6. október 1938, hefur úthlutað styrkjum til efnilegra íslenskra
stúdenta, sem stunda nám, eða ætla sér að stunda nám í tækniháskóla á Norðurlöndum.
Styrkurinn er þó sérstaklega ætlaður þeim sem stunda eða ætla sér að stunda nám í raf-
magnsverkfræði og þá einkum þeim er stunda, eða ætla sér að stunda nám í Danmarks
Tekniske Universitet í Kaupmannahöfn. Ekki hefur verið úthlutað úr sjóðnum undan-
farin tvö ár og er það til að styrkja stöðu hans. Frá stofnun sjóðsins árið 1938 hafa alls
57 verkfræðinemar hlotið styrk úr sjóðnum.
2 3
Félagsmál Vfí/TFÍ